Leita í fréttum mbl.is

Laukardakur

Ég hætti mér loks út í smá æfingar. Djöfull er ég ryðgaður. Þetta verður eitthvað athyglisvert golf sem ég mun framkvæma á mánudaginn í mótinu.

Ég ýtti fyrstu 100 boltunum alltaf til hægri því tempóið var ekki í sinki. Svo kom þetta aðeins til baka á næstu 100 boltum. En langt frá því að vera stabílt eins og þegar ég var uppá mitt besta. Myndi segja að kannski þriðja hvert högg væri eins og ég vildi (eða innan skekkjumarka). Ásinn er alls ekki góður og ég ætla að leggja nokkra áherslu á hann á morgun.

Við höfum fengið fjölda fyrirspurna um að láta lögin hennar Maríu á netið. En ég verð að hryggja ykkur með því að þar sem takmarkaður tími gafst til að vinna lögin í Songsmith þá eru þau ekki hæf opinberri hlustun. Reynslu tíminn er útrunninn og við erum að salta það að kaupa forritið.


Flott brjóst

Ég er að undirbúa mig fyrir Barcelona ferðina. Er núþegar búinn að læra hvernig á að segja gott kvöld á katalónsku. Bona tarda.

Þar sem þetta er í mikilli óþökk fjölskyldu minnar hér á Spáni, sem eru ramm Andalúsísk og á móti aðskilnaði Katalóna, þá hef ég gert ráðstafanir.

Ég hef lofað þeim að tala ekki katalónsku þannig að ég ætla bara að segja Buenas tetas í staðinn. Borið svipað fram en aðeins öðruvísi meining.

Þessi aðlögun hjá mér þýðir, flott brjóst.

Djöfull verð ég svalur þarna fyrir norðan, rölti um götur borgarinnar með glott á vör og segi öllum hve flott brjóstin á þeim séu.

Bona tarda = Buenas tetas...........nei...held ekki.


Brattur hjalli

Var að kíkja yfir lista þátttakenda á Campeonato de Barcelona og rak augun í nokkur nöfn sem vöktu áhuga minn.

Þarna er skráður til leiks eitt stykki Ballesteros.....úps...vonandi ekki náskyldur ættingi.

Einn sem heitir Lilja, rústa honum....sissí boy

En það versta við þetta er að það er einn þarna skráður sem heitir

JESUS

ekki nóg með það heldur heitir hann Jesus Oh Won......þetta er ekki djók.

Þessi gæji á örugglega ekki í vandræðum í vatnstorfærum....gengur bara yfir slíkar hindranir.

Ég held að ég sé bara hættur við.


Gleðifréttir

Eftir fimm daga non stop hlustandi á John Frusciante get ég með fullri vissu sagt að mér tókst að fá mig til að fíla nýja diskinn hans. Húrra fyrir mér.

Það tók svita og tár.

Fyrstu hlustanir voru erfiðar en eftir því sem á leið, sá ég fegurðina í þessu og fíla nú í botn. Það eru nokkur rosaleg lög þarna. Lag númer þrjú sem stendur uppúr. Búinn að setja það í djúkarann hérna á hægri hönd svo þið getið notið snilli hans.

Acquired taste er nokkuð sem á vel við (bara fyrir KJ). Alveg eins og kaffi, sígarettur og vín. Viðbjóður fyrst en batnar svo og verður vanabindandi (þess má geta að ég hvorki drekk kaffi,vín né reyki, ástæðan fyrir því er efni í heila færslu). Reyndar var diskurinn ekki viðbjóður fyrst, bara soldið rólegur. En núna get ég ekki hlustað á hann án þess að sprengja allavega eina æð. Svo mikil er tilfinningin í þessum gítarsólóum og þessari angurværu rödd hans sem er hlaðin tilfinningum og einfaldleika. Ekki besti söngvarinn í heimi en samt sá flottasti.

Sem minnir mig á gamla og athyglisverða athugasemd mína, en meira af henni síðar. Þarf að fara ná í dverginn í leikskólann (sem btw heitir the infants)


allt að gerast

Hér sit ég heima enn soldið slappur. Finn að þetta er samt allt að koma. Hef miklar áhyggjar af því hvað ég er búinn að æfa lítið. Verð bara að treysta á heildargetuna á mánudaginn þegar ég byrja í Campeonato de Málaga.

Hér er líka mikið rok og leiðinlegt veður. Rigning on og off. Það er aðallega útaf því sem maður vill ekki fara of snemma út. Gæti slegið niður og misst af þessum stórmótum. Stalst samt út í gær og fór í kringluna (miramar). Svona rétt til að anda að fersku lofti. Held að það hafi ekkert haft slæm áhrif, allavega fannst nautinu það ekki.

Er í staðinn á gúggel earth að skoða brautirnar og leggja drög að leikskipulagi. Frábært að geta notast við þetta tæki og súmmað inn á hverja braut fyrir sig. Maður mælir svo metrana og sér sirka hvar maður er að lenda. Þannig sér maður sirka hvort maður taki ás eða blending af teig.

Ef ég sé að eftir venjulegt upphafshögg ég eigi 230m eða meira inná grín þá tek ég oftast bara blending af teig. Reyni þá ekki við grínið í tveimur og legg bara upp til að eiga kannski 50-100 metra eftir fyrir innáhögg.

Þessi Prat völlur lítur ROSALEGA flott út. Það eru 7 brautir sem eru gjörsamlega faldar í skóg. Lendingarsvæðin á brautunum eftir upphafshöggið þar eru frá 20 til 30 metra breiðar, mjög tæt. Þetta verður allur pakkinn.

Völlurinn sem ég er að fara spila á Campeonato de Málaga núna á mánudaginn heitir el Parador og er í Málaga. Hef spilaði hann einu sinni og á hann teiknaðann í litla rassvasa stílabók. Gerði nefnilega leikskipulag á hann þegar ég tók æfingarhring þar einu sinni með Gabriel og forstjóra San Miguel verksmiðjunnar. Hann ætti að vera þægilegri yfirferðar en el Prat.


Er verið að grínast í mér

Erum við ekki soldið að fara yfir strikið þarna. Af hverju setur blaðamaðurinn stóran hluta fréttarinnar í spurningaformi?

"Varð að flytja fundinn úr fundarsalnum í anddyri nýja hluta Laugardalshallarinnar svo allir kæmust fyrir. Var þétt setinn bekkurinn"

Þetta er svo fáránlegt......sér þetta enginn nema ég? Finnst öllum þetta eðlilegt? Finnst ykkur neðangreint ekki hljóma betur?

"Það varð að flytja fundinn úr fundarsalnum í anddyri nýja hluta Laugardalshallarinnar svo allir kæmust fyrir. Bekkurinn var þétt setinn."


mbl.is Fjölmenni með réttlæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

8 Seconds

Ég reið nauti í dag!!!!!!!!

Það var fjör. Hámarkstíminn var 1

og hálf mínúta sem ég stútaði.

Spánverjinn hafði aldrei séð aðra eins meðferð og Víkingurinn notaði. Ég gróf bara í kvikmyndabankann og gerði eins og í myndunum. Setti hægri á hnúfan og þá vinstri sveiflandi í hringi til að halda jafnvægi. Rústaði nautinu.

Fór allt í allt í gegnum þrjá styrkleika áður en nautið lippaðist niður og hætti. Það má segja að ég hafi sett met þá og þar. Því engum hefur tekist að ríða nautinu lengur en ég (enda ekki hægt). 

Naut


Loco

funny pictures of cats with captions
more animals

Rosalegt

Listinn yfir þá sem komust á El Campeonato de Barcelona í feb var að birtast á netinu. Og OMG. Djöfull verður þetta sterkt mót.

Sterkasti golfarinn er með -2.8 í fgj. Það eru 6 með meira en -2
26 gæjar með betri forgjöf en 0.

Ég er með 2.5 og er með forgjöf númer 79. Þeir hleyptu 90 golfurum inn og sá slakasti er með 2.7.

Ég endurtek.....OMG.

Það er 60 manna biðlisti í mótið.

Gabriel er meiddur á olnboga og skráði sig ekki. Vinur okkar Graham, sem er með 5,4 ætlaði með mér en er bara númer 50 á biðlistanum og kemst pottþétt ekki inn.

Þá er það ákveðið. Ég fer á bílnum þann 3.feb upp eftir (tekur mig rúmlega 9 tíma að keyra þetta). Sef á hóteli rétt hjá vellinum og keyri niður eftir þann 9.feb

Eins og áður sagði er þetta 4 daga mót með niðurskurði eftir 3 daga. Einn æfingarhringur þann fjórða. Málið dautt. Skorið verður niður úr 90 í 50 leikmenn. Gangi mér vel.

Djöfull er ég spenntur.......en fyrst....El campeonato de Málaga þann 26-28 jan. Eitt í einu.


Svona er þetta bara

Þegar maður er veikur og hefur ekkert að gera þá gerast slysin. Eyddi síðustu mínútunum í Songsmith í að fikta í raulinu og tókst að gera þessa fínu versjón í líkingu við ballöðu af dýrari gerðinni. segi sona.

bætti við smá akkústik gítar, reversaði hann og málið dautt.

Ekki missa af þessari ballöðu meets jón Fruss meets amatör útgáfu af Þegar ég var lítill. (jón fruss kemur á síðustu mínútu lagsins)

Fallegt.

Verð að fara komast héðan út.....gengur ekki lengur.


Gúddí

Horfði á Barca-Espanyol með öðru í gær. Gúddí var skipt útaf fyrir xavi og þulirnir skitu á sig. Þeir töluðu um að hérna væri engin taktísk breyting því þeir leika sömu stöðu. En þvílík breyting í gæðum. Himinn og haf þarna á milli sögðu þeir og héldu...

Ricky Gervais

Ricky Gervais er fyndnasti maður ever. Office dótið er náttúrulega bara 5% af þessu. Farið á youtube og tékkið á uppistöndunum hans.....annað hvort politics eða animal showunum.

Songsmith

Ég fann skemmtilegt forrit á netinu frá Windows. Maður syngur einhverja laglínu sem manni dettur í hug og forritið reiknar út og kemur með undirspil við hæfi eftir á. Allskonar möguleikar eru fyrir hendi og einkar skemmtilegt að fikta áfram. Gæti heldur...

Nýjar myndir

Vek athygli á nýjum myndum í albúmi 09. Þær eru sjóðheitar að vana. Þar eru aðalleikendur kókódíllinn kókó og skrifstofa the iceman......újeeeee að venju þá sendið þið mér bara línu ef þið hafið ekki lykilorðið. Allir

Klassíker

Sebastian er að taka alla klassísku barnahlutina og stúta þeim. Hann krotaði á vegginn(sem er klassískt), hann eltir mjása með golfkylfu og lemur til hans (svo þykist hann vera að sveifla alvöru golfsveiflu ef hann sér að ég er að fylgjast með). Klassík....

El gordo

Jæja, hvað skildi gerast í dag. Nær Obama að lifa daginn af.....ef ekki þá sé ég það allavega í beinni á La Primera. Ef ekkert gerist þá má náttúrulega nefna að John Frusciante gaf út skífu í dag sem er nokkuð huge. Er að hlusta á hana núna. Þetta er...

Sanngjarnt

Nokkuð sanngjörn úrslit í derby leiknum í dag. 1-1 fyrir dómaranum. Auðvitað átti LP að fá vítaspyrnu þarna en maður er ekkert að væla yfir því. Til hamingju Neverton að ná að gera jafntefli við LP.

By the way

Ég og Sebas erum búnir að vera einir heima síðan kl 8 í morgun að dunda okkur. Báðir soldið veikir, með flensu. María kom svo heim kl 19 í kvöld og kátt í höllinni. Er að fara horfa á Liv rústa Neverton. Spái 3-0. JÓ GÓIN...

Vanda sig mar

Vinsamlega dragið úr fjölda spurninga þegar einungis er verið að þylja upp staðreyndir eins og hér að neðan. Neðangreint hljómar fáránlega... "Er myndbandið, sem er við lagið „Clangour and Flutes“ sýnt á vefnum pitchfork.tv, einslags undirvef...

Nei hættið nú alveg

Hold the phone maður......eru fréttamenn og blaðasnápar gjörsamlega búnir að missa það. Ég veit að þetta lið er ekkert sérstaklega skarpt lið en fyrr má nú vera. Ég hef talað um þetta áður hér og sé mig knúinn til að minnast aftur á þetta þar sem þetta...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband