Leita í fréttum mbl.is

Casio Fatso

Djöfull er ég ánægður með gengi Casio Fatso

Tókum 5 tíma æfingu í gær. Er búinn á því í öxlum. En hey, ekki er ég að kvarta

Erum byrjaðir að snerta á 6 lögum. Þrjú þeirra þekkjum við núna vel.

I bleed
it's mesaured in tears
We should float....
Mustang
Heartbeat(delay the reverb)
Sullivan boys

Þetta síðastnefnda er bitchin rokkari í ætt við Smashing Pumpkins/silversun Picköps. Loksins tókst mér að semja eitt sem er pínu í áttina að því sem ég fíla

Erum með diktafón tengdan í mixer og ég næ að ýtá play þegar chaplin tekur ræðuna í ,,it's measured.." og þegar Rocky tekur sína ræðu í ,,mustang".

Það er svakalega dramatískt og góð tilfinning þegar maður nær að kikka því á réttri tímasetningu inn.

Næst á dagskrá.....bassaprufur


He's BAAaaack

Muniði eftir þessum.......

He's bAAaaaaack

Reyndar frá 2010 en það er eitthvað við þessa rödd sem ég fíla. Hann sjálfur er náttúrulega gríðarlega dramatískur og ýktur.En maður fyrirgefur honum það.

Þetta er bara létt powerballaða, en annað stöff frá honum er líka fínt


Kúkur og önnur hámenning

Ég var staddur í Staðarskála og þurfti að taka tvist

Er ég sat þarna og hugsaði um vandamál heimsins þá voru sirka 3 fullorðnir karlmenn við hliðina á mér að gera slíkt hið sama.

Þetta var sunnudagur og allir á leiðinni heim eftir nammiát og helgarfjör

Mjög busy dagur

Það leið ekki á löngu þar til skothríðin hófst. Menn eru ekkert feimnir við að láta í sér heyra. Sem mér finnst ekkert mál. Og í raun bara fyndið þar sem ég er enn soldið óþroskaður og finnst prump fyndið.

Þarna inni var dauðaþögn fyrir utan þessa þriðju heimsstyrjöld sem geisaði.

Ég fór þá að hugsa.......væri ekki sniðugt að hafa dúndrandi tónlist þarna inni?

Því ég þykist vita að það séu ekki allir jafn óhræddir við að láta í sér heyra og að heyra í öðrum.

Þetta er jú mjög náttúrulega athöfn og allir gera þetta. Á mis hljóðbæran máta.

Hvernig væri að hafa bara rammstein í botni eða eitthvað nógu filthy svo það drekki öll önnur hljóð út og myndi ákveðna einangrun fyrir mann. Á þessum annars fráhrindandi stað sem almenningssalerni er.

Betra en steríl þögn lituð af kúkahljóðum allavega


Gallup kannanir

Beta vinnur í Capacent við að rigga upp könnunum. Hún er braniacinn á bakvið að þetta allt virki sem skildi. Hún er ekki að bögga neinn, hún er bara í hönnun og eitthvað.

Í rauninni veit ég eiginlega ekkert hvað hún er að gera þarna....þetta er soldið svona eins og vinnan hans Chandlers í friends. Man aldrei hvað hún segir þegar hún er að útskýra þetta fyrir mér.

Allavega

Hún er oft hérna heima að strúktura kannanir og láta þær ganga upp. Tæknilega.

Rosalegur höfuðverkur stundum.

Sem ég bara SKIL EKKI!

Ég skil ekki af hverju þetta er svona flókið.

Við erum að tala um að þetta séu bara spurningar.......og fólk svarar!

Svo er annað.............af hverju er þetta hausverkur ennþá?

Það er ekki eins og hún hafi ekki unnið þarna í rúman áratug og ég hefði haldið að hún ásamt fleirum væru búin að koma sér upp ágætum gagnagrunni af allskonar könnunum!

Varla getur mikið breyst frá könnun til könnun.

Nota bara eitthvað gamalt dæmi sem template og málið dautt

Þetta er alltaf vinsælt umræðuefni hérna á heimilinu á kvöldin ;Þ

p.s. fyrir þá sem ekki vita að þá er capacent samsett úr orðunum capability og center. Ekki 50 cent.


Bravo

Það byrja allir góðir dagar á því að einhver segir ,,bravo" við þig

Fátt sem gefur meiri vellíðan en það

Fór sem sagt að skutla Sebas á leikskólann og þar vinnur ítali

Ég sagði Sebas að segja bara bongiorno við hann með mínum gríðarlega sjarmerandi ítalska hreim

Paolo sagði ,,bravo" við því

Sem mér fannst ómetanlegt


nörda update

Þar sem ekki margir sem lesa þetta blogg eru gítarnördar þá hef ég haldið mér saman um þá dásamlegu hluti sem eru að gerast varðandi magnaramálin hjá mér

En til að henda því út í umheiminn að þá áskotnaðist mér Fender Bassman 1959 reissue gaur um daginn. Kostar nýr 265þ en ég fékk hann á 110þ

Þessi gaur er svona legendary magnari og einn af tveimur sem eru mínir drauma gaurar. Svona dæmi þar sem ég verð að eignast allavega áður en ég dey.

Jæja, been there og done that

Hann sándar ógéðslega næs en ekki samt alveg að henta því sem ég vil koma til skila. Hann er með of mikinn karakter en ég þarf bara clean stöff til að lita svo með effektum og látum.

Þannig að ég keypti hann til að leika mér og þegar það var búið að þá seldi ég hann aftur.

Eða öllu heldur skipti á honum og Mesa/Boogie Mark III

Sá magnari var keyptur árið 1989 af Gunna í Skímó og notaður alveg til ársins 2011 af honum.

Þetta kvikindi er monster. Svo er ég að fá mér Marshall 1960 4x12 box á móti því og þá er ég þokkalega græjaður. Fyrir lífstíð.

Nema þá að hinn drauma magnarinn poppi upp. JCM 800 týpan.

Til að gera langa sögu stutta að þá er ég núna að spila í gegnum Skítamórals magnarann með volume pedal frá Greifunum. Er þetta uppskrift af heimsyfirráðum eða dauða!


Kæruleysi

Skil ekki af hverju það eru ekki bara sett ákveðin viðmið varðandi færð.

Eins og í gær með þessar vindhviður.

Mér finnst að það ætti að vera vinnuregla að þegar vindhviður mælast t.d. 40 eða whatever að þá ætti bara að loka þeim köflum. Eins og undir Hafnarfjalli.

Ég tala nú ekki um ef það skefur yfir veginn og vitað mál að þá myndast hálka þegar hitastigið er 0 eða minna. Eins og í gær.

Fólk með minni vitneskju á færðinni þarna veit ekkert hvernig ástandið er þegar það sér einhverjar tölur á síðum vegagerðarinnar. Þannig að það fer sér að voða og kostar peninga ef það þarf að ræsa út hjálparsveit og slíkt.

Vinnureglur

Ekki bara sama gamla ,,þetta reddast" viðhorfið eins og við Íslendingar erum orðnir frægir fyrir.

Kæruleysi


DK

DK er sennilega að taka fyrstu tönnina. Hann er allaveg með hita og alveg ómögulegur. Honum líður betur þegar hann fær gómagel, kaldan þvottapoka á hausinn og stíl. Greyið

Flatus Lifir

Komin aftur heim

Eftir mikla baráttu við veðrið

Við skriðum undir Hafnarfjallið og létum vindhviðurnar daðra við okkur. Lúsuðumst bara áfram og allt í kay.

Það var ekki fyrr en eftir göngin að alvaran helltist yfir okkur

Kjalarnesið var loco

Sami vindur og hinum megin en núna bættist hálka við dæmið.

Við vorum um 10 bílar í samfloti og keyrðum á 40 eða svo.

BEM!

Einn bíll fauk útaf!

4 bílar stoppuðu og hlúðu að þeim er fór útaf. Hinir héldu áfram. Við líka, enda með lítið barn og ekki í stakk búin að stoppa mikið.

5 bílar héldu þá áfram

BEM!!!!!!

annar bíll útaf!

Og í þetta sinn út í skurð með nefið ofan í og afturendinn stóð upp

Við hringdum á neyðarlínuna og þau höfðu fengið annað símtal (örugglega frá bílnum) og sögðu að það væri hjálparsveit á leiðinni.

4 bílar héldu þá áfram og við síðust í lestinni

BEM!!!

okkar bíll rásaði og gerði sig líklegan til að fjúka út af en verandi að norðan þá náði ég stjórn á ástandinu og beindi bílnum úr hættu.

Hjúkk. Þar skall hurð nærri hælum.

Við héldum áfram og rétt náðum aftur í rassgatið á næsta bíl. Sem var gríðarlega mikilvægt.

BEM!!!!

aftur rásaði bíllinn en í þetta sinn var ekkert sem ég gat gert og við vorum á valdi vindhviðanna.

Sem betur fer þá slotaði þessari hviðu rétt í tæka tíð og ég náði að bjarga þessu

0.4 sek lengri hviða og við hefðum endað út af!

Þetta var ekkert grín

Við lúsuðumst þetta áfram og ekki fyrr en við sáum okkar heittelskaða ,,Flatus lifir" fannst okkur sem við værum laus við mestu hættuna

Við erum komin heim og erum þreytt

Flatus lifir......indeed


klósettferðir SIR

Jæja, þá er það dagur tvö á Akureyri. Mældi fullt af fólki í dag. Það var fullbókað. Framar vonum.

Þessi aðstaða er við hliðiná þrekhöllinni. Það er hurð á milli og ég kíkti þar inn til að skoða fyrr um daginn.

Næs aðstaða fyrir fólk til að sprikla

Allavega, ég ætlaði sko ekki að klikka á því að fara á klósettið í þetta sinn eins og í gær.

Það er engin salernisaðstaða þarna hjá golfurunum þannig að ég sá mér leik á borði og opnaði millihurðina og læddist inn í þreksalinn.

Enginn á ferli og ég sá strax að þetta yrði nú þægileg klósettferð með lámarkstruflunum. Bíp

Ég rölti þarna aðeins um og reyndar fannst mér þetta undarlega rólegt allt. Bíp

fann klósettið og hafði reyndar bara ekki séð sálu þarna á ferli. píp

PÍÍÍÍÍÍÍÍÍP

Sargasti durgur!

Þjófavarnarkefið af stað.

Nei, nei, þá var búið að loka stöðinni og ég þarna í leyfisleysi að brjótast inn.

Securitas kom og læti

Til að gera langa sögu stutta þá komst ég ekki á klósettið fyrr en ég kom aftur heim

Jei


Bílaleikurinn

Ég og Beta fórum í hinn hefðbundna hljómsveitaleik á leiðinni í bílnum í gær. Ég opnaði leikinn með Casio Fatso...þá kom náttúrulega klassískur leikur frá Betu.....Oasis......ég setti í vörn og sagði......Smashing Pumkins. Þannig gekk þetta. Við fórum...

Ferð

Erum komin til Akureyrar í faðm fjölskyldu Kristjáns Sturlusonar. Fer vel um okkur hér. Er að mæla Norðlendinga fyrir nýjum golfkylfum. Það var allt uppselt í mælingar í dag. Svo eru bara tveir tímar eftir á morgun. Þetta rokgengur. Mjög ánægður með það....

Strákurinn með svörin

Eftir dágott spurningarsession einn daginn þá var ég farinn að brosa bara til Sebastians. Hann bara........,,af hverju ertu að brosa?" ,,Af því að ég vildi að ég væri aftur svona lítill strákur eins og þú" ,,ha? af hverju viltu það?" ,,Af því að það er...

rational

Mér finnst svo gaman að hlusta á Sebs vera lítill strákur. Endalausar spurningar um allt og ekkert. Litlir mundane hlutir eru honum rosa mikilvægir. Dæmi: Hann á erfitt með að sætta sig við að bíll sé t.d. rauður. ,,Nei, það er líka smá svart í honum. Þá...

Lífið sem lítil strákur

Við Sebas erum búnir að ræða mikið um Star Wars myndirnar. Þó ég sé ekkert brjálað fan þá er sonurinn allavega að missa sig þessa stundina. Ég hef verið að útskýra fyrir honum hvernig kvikmyndir eru bara plat og eitthvað sem einhver tekur upp á myndavél...

SIRZENEGGER

Djöfull er ég ánægður með sjálfan mig. Byrjaði fremstur í upphitunarhringnum í Crossfit áðan. Það tóku bara 1/4 frammúr mér. Sem er mikil framför síðan fyrir viku. Eftir hringinn átti svo að koma inn í sal og sippa 50 sinnum og taka: 10x push eitthvað...

sans svefn

DK með kvef......vorum vakandi frá kl 4.....erum þreytt.....sérstaklega Beta sem er sú eina sem ekki hefur getað lagt sig aftur...........so........beware!

framtíð

Davíð Kári hefur áhuga á Danmörku. Hann tjáði mér það í gegnum dulin skilaboð. Hann komst nefnilega í sjónvarpsfjarstýringuna og uppá skjáin kom allt í einu leitarglugginn á voddinu. Svo komu stafirnir ,,mön" Ég leit á minn mann. Hann bara eitthvað...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband