Leita í fréttum mbl.is

Dobbúl Dí

Ný könnun.

Hún snýst um hvort fólk Dobbúl dippi.

Dobbúl dippar þú?

ps. eurovision könnunin var gölluð, það vantaði víst jákvæðan svarmöguleika.....nei, bíddu.....ÞAÐ ER EKKERT JÁKVÆTT VIÐ EUROVISION!


Bring me the Disco King

Ég er búinn að hlusta soldið á nýjustu skífu David Bowie sem kom út árið 2003. Hún heitir Reality og hún sökkar big time.

Til merkis um ömurlegheit skífunnar þá fær hún bara 1.3 stjörnur í rythmbox stjörnugjöfinni minni.

Það var bara eitt jákvætt sem kom úr þessu verkefni hans. Á skífunni er lag sem heitir ,,bring me the disco king". Í hans flutningi er lagið leiðinlegt. En bassaleikar og hljómborðsleikari NIN remixaði það og fékk John Frusciante til liðs við sig. Út kom snilldar útgáfa.

Merkilegt hve textinn á vel við þetta klip úr Constantine. 

 

ps. fyrir þá sem ekki hafa þolinmæði á að horfa (Pétur), þá tékkiði allavega á mín 2:10 til 3:05. 


Er í lagi að Dobbúl Dippa?

horfði á þátt af mythbusters þar sem þeir prófuðu goðsögnina um dobbúl dippið.

Hún segir að eigi skuli maður dýfa einhverju(brauðstöng,nachos,doritos) í ídýfuna, éta af því og dýfa svo aftur í með hálfétinni flögu(brauðstöng).

Þetta var gert ódauðlegt í Seinfeld þar sem George var gripinn glóðvolgur við að dobbúl dippa. Þar var þessu líkt við að setja bara allan munninn í ídýfuna.

Adam Savage og Jaime prófuðu þetta vísindalega.

Niðurstaðan var sú að það skiptir akkurat engu máli.

Í fyrsta lagi þá voru ídýfurnar, beint úr pakkningunni, morandi í bakteríum til að byrja með.

Í öðru lagi, þegar þeir tóku á ofangreindum vanda og voru með bakteríulausa ídýfu, þá fluttust nánast engar bakteríur með nachos-inu í ídýfuna við að dobbúl dippa.

Þessi goðsögn var gjörsamlega busted.

Pétur og Sverrir hafa lengi verið miklir advókatar gegn dobbúl dippinu. Það var með það að leiðarljósi sem ég gerði í því við öll helstu tækifæri sem ég komst í að dobbúl dippa í ídýfuna þeirra. Helst svo þeir sæju til.

Kemur á daginn strákar mínir að siggi litli sörensen hafði rétt fyrir sér. Eins og svo oft áður með málefni sem rædd eru í bachelor paddinu hans Sverris.


Hugarfar

Við gerðum öndunaræfingar á æfingunni á þriðjudagin. Mjög slakandi. Þetta er gert til að bæði slaka á við stressandi aðstæður og að ná einbeitingu aftur.

Mun koma að gagni í golfinu næsta sumar án efa.

Mig er farið svo að hlakka til að spila aftur. Bæði útaf nýju sveiflunni sem ég er að vinna í með Derrick og útaf nýju hugarfari.

Næsta þriðjudag er svo coopers test hjá okkur. Fokk! er það eina sem ég get sagt við því. Ekki búinn að vera beint duglegur í fittnessinu.

Ætla samt að hlaupa lengra, taka fleiri armbeygjur og slá nýtt met í plankanum.

GÆS,djók, myndi aldrei segja gæs. Það finnst mér uþb það hallærislegasta sem einhver gæti sagt.


...and another thing

Er að lesa ,,...and another thing" eftir Colfer. Þetta er sjötta bókin í Hitchhikers guide seríunni. Douglas Adams er náttúrulega dáinn, hann fékk hjartastopp á hlaupabretti árið 2001. Þessi Colfer var fenginn til að skrifa þessa viðbót við núþegar legendary 5 bóka seríu.

Er búinn með 66% og verð að segja að þarna eru mínusar og plúsar. Meira af mínusum. Gæjinn er að troða svo fáránlega mikið af refrensum úr fyrri bókum í þessa bók að það er yfirfall. Það er eins og hann haldi að enginn hafi lesið bækurnar sem á undan komu.

Of mikið af stöffi úr fortíðinni og of lítið af áhugaverðum samtölum milli skemmtilegra karaktera.

Samt skyldulesning fyrir HGTTG aðdáanda.

Eftir þessa bók eru svo tvær rokkarabækur á borðstólnum.

-Ævisaga Keith Richards
-The Dirt, saga Mötley Crue


LP

Feðgarnir eru mættir í lundinn. Hér sé stuð. Vonandi næ ég að kíkja smá á leikinn, ars-liv. Er ekkert sérlega bjartsýnn fyrir hönd minna manna. Vonast í raun til þess að Fabregas eigi stórleik þar sem hann er í fantasí liðinu mínu. Hann þrennu en Aguilani fernu. Sáttur.

Bowie

Er dottinn algjörlega í David Bowie þessa dagana. Þá er ég bara að tala um Heathen og Hours. Er líka að tékka á síðustu skífunni sem heitir Reality en dómur um hana á enn eftir að gerjast í maðkahrúgunni sem er hausinn á mér.

Það sem heillar mig við nútíma Bowie er líkingin við John Frusciante. Það er einhver neisti, eitthvað að gerast í tónlistinni þeirra sem er svipað. Held það séu þessar subliminal dúllu skreytingar allt í kringum lögin sem eru svipaðar. Gítarvæl hér, synthi þar. En allt í allt sennilega líka að þeir eru báðir svo anti mainstream. Þeir eru þá ekkert að reyna að vera það, heldur bara eru svo quirkí af náttúrinnar hendi.

Þetta finnst mér vera hápunktur Heathen. Slip away. Þessi kórus er haunting.

Don't forget to keep your head warm
Twinkle twinkle Uncle Floyd
Watching all the world and war torn
How I wonder where you are

Sailing over Coney Island
Twinkle twinkle Uncle Floyd
We were dumb but you were fun, boy

How I wonder where you are 


Useless knowledge of the day

The male fox will mate for life, and if the female dies, he remains single for the rest of his life. However, if the male dies, the female will hook up with a new mate.

useless knowledge of the day

Lead poisoning has been blamed for contributing to the fall of the Roman Empire. Women became infertile by drinking wine from vessels whose lead had dissolved in the wine, and the Roman upper classes died out within a couple centuries. The Romans used...

Það sem er framundan

Æfing á eftir kl 19 í kórnum.Atvinnuviðtal á morgun. Ná í Sebas á morgun og leika við hann. Fjör. Vera töff, hress, fallegur og frár. Reyna að stytta þennan texta. fara út á rúntinn núna. blasta white lies með rúður niðri koma öllu hér fyrir og já Bless...

eftirherma Liverpool

(Margmiðlunarefni)

Æfing

Fór á æfingu kl 6 í morgun. Allir nema ég og Alfreð fóru svo klukkan 7. Við vorum lengur að æfa okkur, Alfreð til 10 en ég til 11. 5 tíma session undir beltið hjá tsjéppenum. Það er sérstaklega gott að æfa með Ace þar sem hann er óspar á góð ráð varðandi...

White Rabbit

(Margmiðlunarefni)

note to self

see more Lolcats and funny pictures

eftirlitsmanninum mútað?

Hahaha....eftirlitsmanninum pottþétt mútað.

Dr Gunni is back in black

omg hve ég er máttugur. Êg þarf ekki nema að lyfta litla fingri og heimurinn hættir að snúast og byrjar að breikdansa í kringum sólina. Ég talaði um hve Dr. Gunni væri orðinn leiðinlegur bloggari og hve sjaldan hann ritaði á síðuna sína. Viti menn. Hann...

no ice ice baby

Nú er komið að því. Heimurinn verður aldrei samur. Ég gerðist meðlimur í hóp á FB sem heitir ,,I asked for a drink, not a shitload of ice" Êg bið alltaf um alla drykki án klaka. Enda gæti ég bara skrúfað frá krananum sjálfur ef ég vildi vatn í glas. Þoli...

8 tímar er plentí

Svo fór um sjóferð þá. Þessi kenning mín um 11 klst svefn hjá Sebas sundraðist sem gler í hálku í nótt. Hann var erfiður að sofna og gaf sig loks bara kl 22 eftir eins og hálfs tíma baráttu. Vaknaði svo kvartandi kl 06 í morgun og lýsti því yfir að nú...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband