17.4.2012 | 19:57
Rithöfundurinn SIR
Ég byrjaði á skáldsögu árið 2009. Var kominn með 8 kafla. Hún gekk undir vinnuheitinu ,,Draumur í dós".
Var á rölti um fríhöfnina og rak augun í bók
HOLD THE PHONE!!!!
Einhver gaur búinn að gefa söguna mína út!
Þetta er svo weird......
Keypti hana samstundis og datt inn í hana.
Helvíti góð lesning og eiginlega nákvæmlega eins og ég hefði skrifað hana
Fjallar um sama hlutinn. Skrifuð í sama stíl.....og allt
Eiginlega pínu spúkí
Ef áhugasamir vilja kynna sér það sem ég var búinn að plana að skrifa í rólegheitum þegar tími gæfist þá mæli ég með bókinni ,,Ready player one"
Mjög skemmtilegt stöff
Soldið bitter sweet því ég er pínu svekktur yfir því að einhver varð á undan mér að skrifa bókina en samt pínu stoltur yfir góðri hugmynd.
Ready player one....go checkitout
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.4.2012 | 21:33
Mæli með þessu
http://jacksonpollock.org/
Ef maður vill feika Pollock málverk á innan við mínútu :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2012 | 21:22
Hversu marga 5 ára krakka myndi ég geta sigrað í slag í einu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2012 | 20:17
pælt
Sebas heldur upp á afmælið sitt á laugardaginn
Við erum að plana kökurnar. Beta spurði prinsinn hvernig kökur hann vildi
Hann var með þetta allt útpælt
1. Súkkulaðiköku eins og geislasverð í laginu
2. Súkkulaðiköku eins og fótbolti í laginu
3. Súkkulaðiköku eins og hjarta í laginu. Bleika. Fyrir stelpurnar.
Hann vill að allir verði ánægðir og glaðir og fái eitthvað við sitt hæfi
So it shall be
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2012 | 20:06
Jet lag
að fljúga á nóttinni.....uuuuuu ekki svo gaman
Ef maður nær ekki að sofna í vélinni þá er þetta lifandi helvíti
Í svona þröngri vél þá er þetta hell
Ef maður gæti sofið þægilega þá væri þetta ekkert mál.
Ég er enn að jafna mig
Allur dagurinn í dag er off
Jet lagged
Fór að sofa kl 7 í morgun. Búinn að vera vakandi í 22 klst
Vaknaði aftur kl 12 og fór í fermingu
en.....maður er ungur og ætti ekki að vera að kvarta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2012 | 18:11
golfo
Búinn að spila mikið golf undanfarna daga
Tók þennan klassíska vor fílíng
Byrjaði vel og fór svo versnandi
En.....helvíti góð upphitun fyrir sumarið sem er handan hornsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2012 | 18:09
The return of the Mac
Heimferð í dag. Nánar tiltekið í kvöld. Nánar tiltekið á morgun
Förum í loftið kl 1:30 að staðartíma og lendum 4:20 á íslenskum tíma
Fínt að nýta nóttina í flug. Hef aldrei skilið af hverju fólk er á móti því. Dauður tími hvort eð er
Hlakka mikið til að sjá mæ píps
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2012 | 19:39
Dramatísk saga af baráttu SIR og PÓS
Þetta var epic bardagi á milli mín og Póska (Pétur Óskar) í dag. Hann byrjaði á tripple-fugl-dobbúl. Ég var kominn með 3 högg á hann strax í upphafi.
Hann var allan tíman að reyna að klóra í bakkann. Það tókst á níundu.
Þá spýtti ég í lófana og komst aftur yfir
Það var ekki fyrr en á sautjándu sem hlutirnir fóru að skýrast.
Ég allan tíman yfir.....Póski grípur til sinna ráða
Ég er að fara taka innáhöggið á þessari par 4 sautjándu braut þegar Póski hrópar til mín ,,ég er kominn inn á grín!"
Ég bara huh?
Þarna stóð kvikindið, 30 metrum fyrir framan mig(enda big hitter) og hafði sneikast til að gera á undan mér!
Þetta er alþekkt dirty trick frá gömlu fari. Gera á undan til að setja pressu.
Bastard
Ég fipast við þetta og slæ út í vatn
Bálreiður enda ég svo á tripple en Póski sneikar 10 metra pútti ofaní fyrir fugli!
Fjögurra högga sveifla og leikurinn búinn
Ég átti lokapúttið og beygi mig svo niður til að ná í kúluna. Þegar ég rís upp þá er Póski kominn óþægilega nálægt mér á svipstundu out of nowhere og hvíslar í eyra mér með pervertískum blæ.
,,Þú ert alveg eins og Man city. Ert á toppnum en glatar svo öllu í lokin"
Þarna var rýtingnum snúið í sárinu
Við tókum svo aftur níu holur í smá holukeppni. Hann sló í pinnann af 130m færi á áttundu til að merja sigur.
Það er enginn skömm að tapa fyrir svona meistara
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.4.2012 | 18:14
Strákurinn, Kjéppinn, The Myth
Fór nokkrar holur í dag
Kom fyrst inn á 35 punktum sem kom mér á óvart.
Vippaði og púttaði mun betur. Eðlilega.
Sló líka falleg högg og drævaði inn á grín á einni
Byrjaði á fugli og læti
Eftir þennan 18 holu hring átum við og fórum svo aftur út að spila
Hér fer lýsing á því sem var að gerast í höfðinu á mér á þeim hring:
Skolli ,,hmmmm ekki fugl eins og síðast, hlýt að vera orðinn þreyttur"
Par ,,nei, nei hvaða vitleysa, strákurinn á nóg inni"
Skolli ,,nei, nú er ég orðinn þreyttur. Kominn á +2 eftir þrjár"
Par ,,enga vitleysu. Ég er ferskur sem nýútskriðinn lundaungi"
Skolli ,,Jæja, þá kom að því, strákurinn loksins orðinn þreyttur"
Dobbúl ,,Þreyttur.is....."
Dobbúl ,,yup"
2 OB og x-uð braut ,,stick a fork in me...I'm done"
Par ,,yeah wha evaaa bitches, I'm outta here"
Ég snarhætti eftir 27 holur
Gjörsamlega búinn á því. Þrekið ekki meira en þetta.
Fór bara heim í langa sturtu og baðaði mig því næst í Aloe Vera, enda vel brunninn.
Talandi um það subject....það er ekkert verra en að vera brunninn í hársvörðinum. Tékk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2012 | 21:07
labbakútur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2012 | 14:27
1.dagur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2012 | 23:57
Endur fyrir löngu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2012 | 11:03
........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2012 | 10:58
Dagurinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2012 | 22:48
ofmat
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2012 | 11:47
Sebas
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2012 | 10:42
páskar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2012 | 23:45
er til betra lag í heiminum í dag?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.4.2012 | 20:51
Sölutölur dagsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar