Leita í fréttum mbl.is

golf

Það var absólútlí loco að gera í dag. Kylfingar eru sem kvígur að koma út á vorin.

Ég öppaði mig svo í bolum fyrir utanlandsferðina. 3 stykki Hilfiger eintök. Bleikt og fallegt. Bara verst hve geirvörturnar á mér sjást vel í gegnum þessa boli. Ó well.....ég virðist þá allavega alltaf vera kátur og í stuði :)

Svo er bara að fara á morgun að sveifla pínu. Ekkert gert slíkt síðan í ágúst eða svo. Sem er náttúrulega skandall.

Þá má þessi burtfarardagur bara koma mín vegna

Veit að það bíður mín allavega einn bolli af baileys þegar ég kem. Hansi og Póski voru settir í það. Þeir voru líka settir í að stilla sólina í max og vind og rigningu í all time low.


laug

Vinna í dag. Spái brjáluðum degi af spánarförum utan af landi.

Beta verður með za boys

Það verður þétt dagskrá hjá þeim

Leikfangabúðir þræddar og matsölustaðir kannaðir


Þykkness in the bigg muffness

Fórum pínu út í Casa Fatso (æfingarhúsnæðið) til að prófa Big muffinn sem ég var að kaupa fyrir bassaleikonuna.

Djöfull er þetta feitt í gegnum bassa!

Sebas var með heyrnahlífarnar mínar

Hann tók Flying V gítarinn sinn með og rokkaði feitt á hann meðan ég var að prófa big muffinn í gegnum basaann

20120406_150734

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gítarinn er enn soldið stór fyrir hann. En það skiptir ekki máli. Þetta er bara gert svo hann fái fílínginn og áhugann. Það er nóg.

Spurning hvort líði á löngu þangað til að Sebas stofnar sitt eigið band.....Casino Fatso :) 


Bíó

Fórum í bíó. Ég og Sebs.

Lorax

Hún var sæmó

Fín afþreying en ekkert eins góð og t.d. megamind eða incredibles


Google street view

Var að rannsaka staðinn sem ég er að fara á út á Spáni. Datt inn í Google street view...men ó men hve þetta er géggað.

Útfrá þessu fór ég að tékká stöðunum sem ég hafði búið á þarna úti á sínum tíma. Þetta er amazing. Ég bara rölti framhjá öllum húsunum og stöðunum sem ég stundaði.

Golfvöllurinn, rólóvöllurinn og slíkt

Þetta er t.d. púttgrínið mitt gamla:

http://maps.google.com/maps?f=q&source=s_q&hl=en&geocode=&q=Calle+del+Pajarete,+Alhaur%C3%ADn+de+la+Torre,+M%C3%A1laga,+Spain&aq=0&oq=calle+pajare,+malaga,+Spain&sll=36.660639,-4.549198&sspn=0.020208,0.039611&vpsrc=6&t=h&ie=UTF8&hq=&hnear=Calle+del+Pajarete,+29130+Alhaur%C3%ADn+de+la+Torre,+M%C3%A1laga,+Andaluc%C3%ADa,+Spain&ll=36.541062,-4.722801&spn=0.00253,0.004951&z=18&cbll=36.541156,-4.722733&panoid=qq2F9_En6ik_BrWlDRXtOA&cbp=12,118.85,,0,0&ei=0MF-T6K9M4SV8gOP6fjCBA&pw=2

Þessi mynd er tekin í nóvember 2008 segja þeir. Þá er ég nýbúinn að vinna klúbbmeistaratitilinn og er sennilega þarna mjög nálægt. Sennilega á leynivipp staðnum mínum. Sirka 100m lengra áfram og niður brekku. Sést ekki þarna.

Fjör


Siggi Tan

Þá fer maður að undirbúa utanlandsferð

Er á leiðinni í golf

Fer til Torrevieja á Spáni næsta þriðjudag. Hef ekki sveflað kylfu síðan í ágúst eða eitthvað álíka.

Djöfull verð ég rasskelltur af Póska og frú

Jæja, skiptir ekki öllu máli. Mun drekkja sorgum mínum í baileys glösum tvist og bast á kvöldin.

El Plantillo heitir völlurinn. Næ 4 dögum. Tveim hringjum á dag. Djöfull skal ég vera á bíl allan tíman. Nenni ekki að labba.


RIP

Jim Marshall dó í morgun

Einn áhrifamesti einstaklingur tónlistarsögunnar er dáinn 88 ára að aldri

Ég var sennilega að spila í gegnum Marshall stæðuna mína er hann dó. Byrjuðum snemma í morgun á Casio Fatso æfingu og vorum til kl 15 eða svo

Það hlaut eitthvað að vera. Stæðan hljómaði líka extra vel


Eru manjú menn hræddir eða öfundsjúkir?

ég á nokkra vini sem halda með Manjú í ensku deildinni.

Það er alveg magnað með þá, þeir hætta ekki að tala um Liverpool

Held meira að segja að manjú gaurar tali eiginlega meira um Liverpool en Liverpool áhangendur sjálfir!

Sem er óskiljanlegt því það er ekki eins og LP sé eitthvað að ógna manjú í deildinni. Undanfarin friggin 20 ár eða svo.

Og svo ég taki það nú fram, þá sem sagt tala þeir skít um LP. Sem, eins og allir sálfræðingar myndu geta vottað fyrir, að er náttúrulega stærsta vísbending til annað hvort mikillar öfundsýki eða hræðslu.

just sayin....


Everyting must go

Er í því að selja hluti sem ekki er lengur þörf á

Seldi dauðan Blackberry síma, læstan fyrir vodafone á 4þ
Seldi Nokia síma á 10þ
Seldi 6 ára ryðgað og útlifað grill á 5þ
Seldi magnara sem ég er hættur að nota á 29þ
Seldi box með einni keilu á 14þ

Enn óselt....Ipad 1, annar nokia sími og þráðlaus heyrnatól

Margt smátt gerir.......eitt stórt?


niðurstöður

já og btw....það vilja allir annað hvort Ólaf Ragnar eða gamlan sokk sem forseta.

Ég væri til í eitthvað allt annað


Ný könnun

Er eðlilegt að skera allan matinn sinn niður í bita áður en maður byrjar að borða? Ég geri það ekki. Hef ekki þolinmæði. En mér finnst þetta áhugaverð pæling. Soldið barnalegt kannski hmmmmm

DK

All hell is about to break loose! DK er að munda sig við að byrja að skríða. Hann setur rassinn upp í loft Það er oft merki um að menn eru að hugsa sér til hreyfinga Annars er hann orðinn skemmtilega interactívur. Byrjaður að spjalla á fullu og kalla á...

0

Fyrsti dagur í vinnu í 2 mánuði. Sweet nectar of all that is sacred Búinn að vera að telja niður Það á ekkert sérstaklega við mig að hanga heima, þó það sé nú alveg indælt að vera með stráknum sínum. Þá er meira fjör í vinnunni. Mælingar ofan á mælingar...

speki dagsins

Sá góða speki í dag ,,Ef ég myndi borða sjálfan mig, myndi ég verða tvöfalt stærri eða hverfa?" Mindblowing stuff

Casa Fatso

Busy Casio Fatso dagur í dag Verðum í því að sjæna æfingarhúsnæðið, sem gengur undir nafninu, Casa Fatso. Hengja upp teppi til að dempa hljóðið og svo gluggatjöld. Svo er æfing frá kl 19 til sirka 23/24 Good times

1 apríl

Í dag er gabbi gabbdagurinn. Ég náði Betu í sirka 5 mín með snilldar gabbi. Hún varð pínu reið og svo mjög fegin þegar hún fattaði það. Gabbið verður ekki gert opinbert. Annars ætla ég að vera alveg laus við frekari göbb í dag Þess má geta að...

Ljóð dagsins

Jæja, þá er komið að uppáhalds ljóðinu mínu Það er hægt að fara með það einungis einu sinni á ári Á þessum degi. Ljóðið er eftir Andra Snæ og er svona: 1.apríl Marsbúinn

aumur

Miðvikudags crossfittið skildi mig eftir hálf lamaðan Ég er ennþá eins og T-Rex risaeðla Handleggirnir á mér eru gjörsamlega useless! Get ekki ennþá rétt alveg úr þeim. Það eru svo miklir strengir í þeim að ég gæti opnað

Útskrifaður í Crossfit

Ég lauk grunnnámskeiði í Crossfit í gær Djöfull voru þetta erfiðir tímar þessir tveir síðustu Á miðvikudaginn þegar um 20 mín voru eftir af tímanum þá tókum við Wod-ið(workout of the day). 400m hlaup 21 ketilbjalla(henda þungu lóði frá ca klofi og...

Flott útskýring á því af hverju Barca eru bestir í heimi

Gary Neville MNF analysis of el clasico 10/12/2011 by elemenoelemeno1 Linkur ef myndbandið sést ekki http://dai.ly/tEfpot

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband