26.4.2012 | 21:19
Hressir gaurar
Ég elska að tala við skemmtilegt og hresst fólk í vinnunni sinni
Það er einn gaur sem vinnur í N1 í Ártúnsbrekkunni sem heitir Bjarni. Hann er hress.
Hann er þessi ungi sem er soldið bangsalegur.
Alltaf hress og alltaf stutt í grínið
Svo hitti ég gaur í 10-11 í lágmúla í gær. Mjór gaur með skegg. Svona líka hress
Það var mótorhjól fyrir utan búðina
SIR: ,,Ert þú töffarinn sem mætir á hjóli í vinnuna?"
Gaur: ,,hehe nei, ég er svo mikill töffari að ég er með græna kortið í strætó og eyði restinni í bjór"
já sæll. Klárlega búinn að hugsa þetta svar áður
Fljótur með kombakk og eiturhress.
Ég kann að meta svona gaura
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2012 | 00:30
newsflash
Tókum 5 tíma æfingu í kvöld. Við verðum bara þéttari og þéttari. En hell, hve ég er þreyttur.
Farinn face down að sofa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2012 | 00:28
this just in
Fyrstu tónleikar Casio Fatso verða 19.maí á Kónginum upp í Grafarholti
Þetta er laugardagskvöld og við byrjum kl 21:30 og tökum um klukkutíma sett
Eftir tónleikana kemur svo DJ Póski og þeytir skífum frameftir öllu.
Það er gríðarlegt happy hour þarna uppfrá...2 bjórar og 2 skot á þúsund kall!!!
Svo kostar ekkert inn á tónleikana. Bara mæta og sulla í sig prósentum.
Svo er pæling að hafa rútuferð niðrí bæ á einhverri góðri tímasetningu
Þú vilt ekki missa af þessum fyrsta concert Casio Fatso!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2012 | 09:42
hljómar eins og plan
langur dagur frammundan
Vinna frá 10-18
Æfing frá 18-23
akkurat það sem læknirinn pantaði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2012 | 21:52
Sagan af því hvernig ég lifði af fyrsta tímann í Crossfit
Ok, tók grunnnámskeiðið og svo hentaði ekki alveg að halda strax áfram útaf utanlandsferð og slíku. Fór því í fyrsta alvöru Crossfit tímann minn áðan
Fyrsta. Alvöru. Crossfit. Tímann.
Þetta grunnnámskeið var algjört peanuts miðað við þessa WOD (workout of the day) tíma.
Það er tafla uppá vegg þar sem allt stendur sem við munum gera þann daginn
Ég settist niður og leit á töfluna
10 hringir svo 3x(100 sipp + 10 ormar + 10 hnébeygjur + 10 bakféttur + 10 burps)
Fyrst var ég all...

Svo var ég all.....

10 HRINGIR!!!!!!!
ÞAÐ ERU FOKKIN 5KM!!!!!!!!!!!
Í UPPHITUN!
Svo var ég bara ,,FOKKIT"

TODAY......IS A GOOD DAY.....TO DIE!
Svo rak ég augun í ,,10 hringir Í SAL"
Í..........SAL
Þá var ég all....

10 hringir inn í salnum var ekkert stórmál. Kannski sirka eins og 500mtr. Sweet nectar of all that is sacred! Hólpinn.
En hitt sem kom á eftir var helvíti erfitt.
Tótal 300sipp+30 ormar +30 hnébeygjur +30 bakféttur +30 burps
Rétt slefaði í gegnum það.
FOKK hve ég var búinn á því.
En þá kom alvöru æfing dagsins
800mtr hlaup
10x(5x deadlift + 10 hand release pushups)
800mtr hlaup
Á tíma
Ég var all.......
LEROYYYYY JENKIIIINS! og óð eins og vitlaus maður í æfinguna.
EN........
Ég var bara ekki að geta þetta líkamlega. Þolið var til staðar en lappirnar á mér gjörsamlega bökkluðust undan mér og ég bara gat ekki labbað meira.
Kláraði 800mtr plús 5 sinnum þetta stöff og 400mtr
Ég stóð við dauðans dyr
EN..............
það voru 5 mín eftir af tímanum
FOKK
Það þýðir bara............BÓNUS
Við f.e.n.g.u.m. að gera aukaæfingu. Eftir allt þetta stöff.
Taka 80kg á stöng og halda í 1 mín. Hoppa svo strax upp og hanga í 1 mín. 30 sek hvíld og endurtaka svo aftur.
Ég man núna af hverju ég er alltaf svona glaður eftir þessa Crossfit tíma
Ég er bara svo fokkin ánægður með að komast lifandi út og sjá fjölskylduna mína aftur!
Svo fæ ég að gera þetta allt aftur á fimmtudaginn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2012 | 21:35
Greys
Ef ég ætti spítala þá myndi ég reka alla sem væru remótlí líkir öllu þessu fokkin fólki í Greys.
Beta horfir á þessa þætti og maður sér pínu úr þessu crappi ósjálfrátt
Þetta meikar ekki sens!
Ef læknar og hjúkrunarfólk er svona rosalega hlaðið vandamálum þá er það einfaldlega ekki vinnufært.
Myndi maður treysta svona fólki til að skera aðrar manneskjur upp og slíkt?
Over my dead body
Þessi þáttur er dauður fyrir mér!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2012 | 23:49
C to the F
Var á æfingu áðan með Casio Fatso og men ó men hve þetta mjakast áfram
Við verðum orðin giggfær eftir sirka 5 æfingar eða svo
Djöfull er ég spenntur!
Tökum sennilega eitt leyni undercover gigg fyrst til að byrja með. Er það ekki alltaf sniðugt.......fyrsta gigg og svona....fer ekki alltaf eitthvað úrskeiðis á fyrstu giggunum.
Svo ætlum við að taka Reykjavík
Næst Ísland
Loks heiminn
Byrja smátt og expanda svo. Hljómar mjög rökrétt og lógískt.
Góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2012 | 10:03
lost in translation
Harmonikka=Accordian
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2012 | 21:42
end
Stór dagur að enda kominn
Minn maður sofnaði ,,face down" eftir um mínútu upp í rúmi
Gjörsamlega búinn á því
Fannst þetta með betri dögum síðustu ára
Sebastian allavega ótrúlega sáttur
Ég bið ekki um meira
Takk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2012 | 19:00
mæliaf
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2012 | 01:38
Er rangt að þykja sitt eigið lag best?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2012 | 20:42
Bauhaus
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2012 | 20:38
ert þú næntís barn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2012 | 22:37
Q?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2012 | 20:49
Plakatið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2012 | 20:45
Hologram
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2012 | 20:35
ammæli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2012 | 21:11
Fyrirliðinn SIR
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar