Leita í fréttum mbl.is

Lengjan

Jæja, ég gerði það eina rétta í stöðunni. Ég lagði undir á leik dagsins. Che-LP.

Það voru svo yfirgnæfandi ósanngjarnar líkur á þessum leik á lengjunni að ég sá mig knúinn til að verja mína menn.

Lagði 1000 kall á LP sigur og fékk stuðulinn 4,35 sem mér finnst vera móðgun.

Eftir á að hyggja þá hefði ég átt að veðja á jafntefli. Sé eftir því þar sem þessir leikir eru alltaf steindautt jafntefli.

Sjáum til.


Handboltarokk

Ég heyrði hugtakið ,,Handboltarokk" á x-inu í dag.

Ég friggin fann þetta orð upp!

Ég notaði þetta hugtak yfir leiðindarrokk sem var að spretta upp á sínum tíma. Mig minnir að þetta hafi verið sirka á menntaskólaárunum í kringum '97-'98 eða svo.

Held að Creed hafi startað þessu hjá mér. Þeir komu þarna með ,,My own prison" plötuna árið '97 og svo voru einhver fleiri bönd eins og Nickelback, Puddle of mudd og 3 doors down.

Þessi tónlist pirraði mig bara og mér fannst þetta svona týpískt drullurokk sem gæjar sem æfðu handbolta hlustuðu á. Svona týpur sem voru óþolandi fitt og með attitjúd.

Þess vegna.....Handboltarokk.

Svo heyri ég þetta núna á X-inu!

Það getur verið að einhver annar hafi komið með þetta á sama tíma, en ég, sure as hell, fann þetta orð upp.


Uppskrift af góðum degi?

Sofa út til kl 9:40
Stilla upp grjóthörðu fantasí liði
Vaða skafla út í Mosfellsbakarí og tríta sig með gúmmelaði
Koma heim og detta inn í Dr. Phil maraþon
Selja multi effektinn með 3þ kjéll í hagnað eftir bara 2 vikur í eigu
Selja magnarann á pari eftir 2 vikur í eigu
Á leiðinni niðrí bæ með Betu að sjúga upp kósí snjóstemmingu

Uppskrift af góðri helgi!


Bæn

Góði Fowler, þú sem ert einhverstaðar(í Ástralíu skv wiki), verði þinn vilji og slíkt.

Ég bið bara um eitt......

láttu nú þetta lið gelast saman þannig að það verði aftur gaman að fylgjast með fótbolta. 

Liverpool11

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lof sé Fowler

Amen 


Ný könnun

Ég spurðist fyrir í leikskólanum varðandi þetta ,,ég elska stelpur" tal hjá Sebas(í færslunni hér fyrir neðan). Mér var sagt að einhver krakki hafi verið að tala um hjónabönd samkynhneigðra og hvernig þetta allt virkaði.

Við erum að tala um tæplega 4 ára krakka!

Þessi umræða smitaðist náttla út og Sebas heyrði þetta og byrjaði að tala um að hann elskaði stelpur en ekki stráka. Sem mér fannst vera soldið vírd.

Ég meina....ég skil ósköp vel að foreldrar útskýri hluti fyrir börnum sínum.

Í þessu tilfelli þá er greinilega einhver þannig aðstaða hjá barninu og það er bara útskýrt. Fínt.

En æji ég veit ekki. Þurfa 3-4 ára krakkar að vera pæla í kynhneigð sinni og annara?

Hvað finnst þér? taktu þátt í nafnlausri könnun hér til hægri.


dagur í lífi Sebas

Það sem er að gerast í lífi Sebas:

Fyrir honum er ég pabbi. Þannig að núna er það nýjasta að segja stöðugt ,,þegar ég verð pabbi, þá...."

t.d. ,,þegar ég verð pabbi, þá má ég keyra bíl" og líka ,,þegar ég verð pabbi, þá verð ég stærri en þú".

Hann notar þetta mikið.

Svo sagði hann allt í einu upp úr þurru ,,pabbi, ég elska stelpur"

Sem er bara helvíti fínt.

Hann virðist líka vera búinn að velja sér starfsgrein. Hann segist vilja vera kappakstursmaður. Hann heldur mikið uppá Sebastian Vettel. Hann segir að þá munu allar stelpurnar vilja vera með honum.

Ég sver það, það er ekki ég sem kenni honum þetta. Mér finnst þetta meira að segja pínu too much þetta með stelpurnar. Algjör óþarfi að byrja svona snemma.

Ég spurði Maríu að þessu en hún segist ekki heldur hafa kennt honum þetta. Hlýtur þá að vera frá leikskólanum hans.

Maður reynir að tóna þetta niður.

Svo notar hann soldið ,,mjög snillingur" þegar einhver gerir eitthvað töff.
,,vó! hann er mjög snillingur"


Nýtt lag!

Setti nýtt lag inn í djúkarann hér til hægri. Það er efsta lagið og heitir Kill Bill.

Basic


mhmmm

Truth does not demand belief. Scientist do not join hands every Sunday, singing, yes, gravity is real! I will have faith! I will be strong! I believe in my heart that what goes up, up, up must come down. Amen!

If they did that, we would think they were pretty insecure about it.


Tveir á móti einum

Spilaði Rommý við Betu í gærkvöldi. Sem var einstaklega ósanngjarnt því í raun var þetta tveir á móti einum þar sem Beta er ófrísk. Ég rústaði þeim samt.

Xtreme bending

Ég er soldið dottinn í nýja íþrótt. Ég skírði hana Xtreme bending. Hún gengur út á að benda á eins öfgafullan máta og hægt er. 

Guðfaðir þessarar nýju íþróttar er evil monkey í Family guy 

Evil-Monkey-family-guy5

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En uppruni hennar er samt sem áður eitt atvik seint síðla kvölds hér í Grafarholtinu. Ég var að leita að einhverjum hlut og ég spurði Betu hvort hún vissi hvar þessi hlutur væri. Hún var greinilega eitthvað orðin leið á að segja mér hvar hlutir væru, eins og gengur og gerist, og benti eitthvað svo rosalega dramatískt í átt að hlutnum að ég sprakk úr hlátri.

Jafn öfgafull bending hefur svo aldrei aftur sést. En með meiri æfingu nálgast ég jafnt og þétt. Því jú, eins og skáldið sagði....æfingin skapar meistarann.

Xtreme bending....it´s gonna be a thing 


úúúúúhhhhh......aaaaahhhhhh

aaaahhhhh það er svo gott að vera nýkominn úr ræktinni. Svo góð tilfinning, ekkert jafnast á við að taka vel á. aaaaahhhhhhhhhhhh.................[skrík í hjólbarða]....uuuuNEI! Það er ömurlegt. Ég fokkin hata ræktina. Það er sennilega það næst...

veðmál

Það er eins gott að ég lagði ekki undir á lengjunni. Chelskí og Manjú að vinna. Þetta hefði verið 5000 kjéll út um gluggann. Þessi 720þ lúkkuðu vel en núna lúkkar þessi 5þ kall í veskinu mínu enn betur.

One Hell of a Life

Er að fíla þetta lag með Kanye. Enda að rippa smá part frá Black Sabbath. ,,have you lost your mind, tell me....." er náttla bara rip frá Ironman. Örugglega samt pínu tribute því fyrsta línan í Ironman er ,,Has he lost his mind" Allavega það sem kveikti...

Vikuárið

Velkomin í febrúar. Mánudagur ársins. Eða svona seinni partur mánudags, jafnvel þriðjudagsmorgun. Myndi segja að mars væri sirka miðvikudagur, maí fimmtudagur, júní og júlí föstudagur og ágúst laugardagur. September er sunnudagsmorgun og október og...

DEADLINE!!!!!

Það er allt að verða vitlaust á transfer markaðnum! Suarez kominn á sirka 25mills Carrol kominn á sirka 35mills Charlie Adams að koma í kvöld. Torres farinn á sirka 50mills Konchesky farinn(lán) Ef allt gengur upp þ.e. Mjög ánægður með alla þessa menn í...

Lógík

Jæja þá er síðasti dagur janúar og febrúar alveg að ganga í garð. Best að byrja safna í skegg fyrir mottumars. Ekki seinna vænna fyrir svona taðskeggling eins og mig. En eins og flestir vita þá er það vitanlega merki um þróun. Menn eru komnir af apanum...

update

update: needless to say þá skíttapaði ég á lengjunni. Bara einn leikur af þrem sem ég náði réttum. En þetta virtist svo auðvelt. FOKK!!! Sé fyrir mér að vinna tæplega 720þ kall í næstu umferð í enska ef allt gengur upp. Við erum að tala um einungis þrjá...

villtur

Ákvað að gerast soldið wild. Gera eitthvað sem ég hef aldrei gert áður. Ég tippaði á lengjunni! Kann ekkert á neina taktík eða hvernig þetta allt virkar. Þetta var samt alveg óviljandi. Var bara á einhverri síðu og sá auglýsingu. Byrjaði að leika mér...

Draumur

Mig dreymdi að ég væri aftur kominn í Grunnskóla Blönduósar og þetta var næst síðasti dagur ársins. Góðu fílíngur í loftinu og allir í stuði. Það var eitt fag sem ég var aldrei búinn að mæta í þar sem Jay Leno kenndi og maður alltaf garanteraður með 10....

vibbi

Djöfulsins vibbaveður úti. Fórum á snattið í dag með Sebas. Komum víða við. Fyrsta stopp var hjá ömmu Betu, Sebas sofnaði reyndar í bílnum á leiðinni þannig að Beta fór upp og ég rúntaði aðeins lengur með strákinn. Parkeraði svo bílnum bara fyrir framan...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband