Leita í fréttum mbl.is

rass

Jú þetta er sæmó fyndið, en það sem gerir þetta sketch er rassagæjinn á lokasekúndunum. Svipurinn. 


Steini Bí

Uppáhalds íslenski leikarinn minn er hjá Loga í beinni.

Þorsteinn Bachman

Sjáið hann í Ríkinu, Roklandi(eini flotti karakterinn), Maður eins og ég.

Við erum að tala um hæla þar sem aðrir eru með tær! Engin tengiskrift við það.


Líkamsrækt: Leyniuppskrift golfarans

Ekkert jóga kjaftæði, svona gera alvöru golfarar þetta. 


Rokk: Þá og nú

Fyrsta rokklagið: Tekið upp 5 júlí 1954 af Sam Phillips. Þetta var ekki fyrsta upptaka Elvis en engu að síður fyrsta lagið sem kom í útvarpi með honum. Lagið sem startaði rokkinu(af alvöru). Þeir voru ekkert sérstaklega að reyna það, heldur hljómaði þetta bara ekki eins og neitt annað sem var til. Ný sena. 

og hér er svo það nýjasta. White Lies með lagið bigger than us. Þetta lag á eftir að verða vinsælt. Svona lag sem vinnur á. Ólíkt Elvis þá eru þessir hins vegar að reyna það.

Hvernig ætli þetta verði eftir 57 ár í viðbót? 


loltiger

And then she said, she said...  That's not my tail.  LOL

linguistic genius

Sebas á nokkra Mowgli kalla þar á meðal einn snák. Við vorum eitthvað að leika okkur saman þegar ég sé þennan snák og það er búið að kroppa úr honum augun!

Ég tek hann rannsakandi upp og sný mér svo að Sebas og horfi á hann undrandi.

Hann horfir saklausum augum á mig og segir:

,,Þetta var ótrúlega óvart"

Málið var látið kjurrt liggja sökum snilldar afsökunar.


An Idiot Abroad

An Idiot Abroad er þáttaröð á Sky 1 í Bretlandi. Mæli sérstaklega með þessu stöffi.

Ricky Gervais og Stephen Merchant sendu Carl Pilkington í heimsreisu til að skoða hin sjö undur veraldar.

Stephen undir þeim formerkjum að Carl yrði víðsýnni og reynslumeiri.
Ricky undir þeim formerkjum að stríða Carl.

Þeir sem þekkja Carl vita nefnilega að hann er einstaklega undarlegur. Honum finnst ekkert spes að ferðast og skilur ekki margt sem gerist í heiminum. Eða er allavega með sína eigin skýringar á því.

Þetta eru 8 þættir og eru hver öðrum fyndnari.

An Idiot Abroad....go torrent it


Ný könnun

Ný könnun folks!

Er fólk ánægt með árangur íslenska landsliðsins á HM?


Plastglös

Ég veit ekki hvað það er en mér finnst betra að drekka úr plastglösum!

Þessi venjulegu glös eru bara basic. En þegar ég vil virkilega fá djúsí fílíng, eins og þegar ég drekk ananassafa, þá skenki ég í plastglas eins og Sebas á.

Þá er ég ekki að meina þessi hvítu plastglös eins og á tannlæknastofu, heldur eins og barnaglös.

Þetta er eitthvað með áferðina að gera.


GræjuPerrinn

Hæ, ég heiti Sigursteinn og er græjuperri. Hæ Sigurður!

Ég hef hættulega gaman af því að grúska í græjum. Hef verið að dunda mér við að kaupa gítargræjur undanfarið.

Keypti fyrst Digitech RP90 multi effektinn á 7500kr. Hann kostar nýr sirka 17þ. Nokkuð góð kaup. Grúskaði í honum þangað til að ég sá að það vantaði eitthvað.

Mig vantaði nefnilega Loop station. Keypti Boss RC-20xl stationið á 20þ. Kostar nýtt 52þ!!!! Það sér ekki á því þannig að þetta voru sirka kaup aldarinnar.

Eftir að hafa fiktað og leikið mér með það tæki áttaði ég mig á því að ég þarf ekkert svona loop tæki. Enda er ég ekki á leiðinni í trúbbann á næstunni. Ef ég vil leika mér í loopum þá nota ég bara cubase.

Seldi því tækið bara aftur. Á friggin 25þ kjell. Auðveldasti 5þ kjéll sem ég hef þénað. Var ekkert sérstaklega að reyna það. Sagði bara fólki að koma með tilboð. 25þ er samt helvíti gott verð fyrir einhvern sem ætlar sér eitthvað að nota tækið af alvöru.

Allavega, RP90 tækið var fínt en svo vildi til að einhver svaraði auglýsingu minni um leit að multi effektum seint. Hann bauð mér Zoom G2.1u tækið á 10þ. Kostar nýtt um 20þ. Svo ég keypti það bara líka.

Það hefur usb tengingu umfram RP90. Þá get ég plöggað gítar í tækið, tækinu í tölvu, opnað cubase og notað þessa effekta við að taka upp. Svo er tækið mun hraustara byggt. Mjög sturdy.

En aðal munurinn finnst mér vera í effekta uppbyggingu. Núna get ég búið til hljóð með allt að 9 effektum í einu. Tekið hvern effekt fyrir sig og stillt hann eftir þörfum og bætt við smátt og smátt til að gera flotta effektakeðju. Þetta er allt mun betur skipulagt heldur en RP90 því sá gerir þetta meira fyrir mann og þ.a.l. færri möguleikar til að gera eitthvað sér SIR legt.

Svo er líka hljóðið betra í zoom heldur en í digitech. Distortionið er fallegra, ekki eins digital. Svo eru clean tónarnir betri líka.

Allavega....hver vill kaupa RP90 af mér :)

En í alvöru talað þá er það tæki helvíti fínt líka. Á von á því að tækið seljist mjög hratt. Spurning hvort það myndist gróði af því líka. Þá þarf maður nú bara nánast að fara gefa þetta upp. Stofna bissness.


annað nokkuð gott

(Margmiðlunarefni)

besta allt!

Besta golfhögg, besti fögnuður, besta högg slegið í vatni, besti bleika golfkúla ever, besta myndataka! Veit ekki. Allavega hilarious

TW online

Mæli með: tigerwoodsonline.ea.com Flottur leikur Getur spilað einn ásamt því að spila með öðrum. Ég er golfsir ef einhver vill spila memm

Gullbarkinn

Er kvefaður og með hálsbólgu. Núna er sem sagt rétti tíminn til að taka upp sönglínu við þessi lög sem ég á. Gullbarkinn mættur. Djúpraddaður og sexí.

Efnafræða Ali

Það voru læti hérna í gær. Ég lenti í því að fá batteríssýru á hendina. Enn smá rauður eftir það ævintýri. Skolaði bara með vatni og setti svo aloe vera. Svo varð ég allur út í klístruðu harpix stöffi. Reyndi að þrífa það af með naglalakkaeyði. Gekk...

Ný lög

Setti tvö ný lög í djúkarann hér á hægri hönd. Þau heita Ink Injected og Linear. Þetta eru lög sem eru rúmlega mánaðargömul. Var alltaf að bíða með að setja stöff inn því ég ætlaði að syngja eitthvað inn á þau. Nenni því ekki lengur og því set ég þessi...

Versló gæji

Er kominn með bullandi hálsbólgu og nefrennsli. Sofnaði ekki fyrr en kl 4:30 sökum vesenis og pirrings. Æðislegt. Allavega. Í gærkvöldi var fjör. Ég var statisti í Pressa 2 og lék gæja í eftirpartíi. Plottið var sem sagt að Krummi, leikinn af Gísla Erni...

aftur statisti

Er að fara að leika statista í þætti á stöð 2 sem heitir Pressan 2 eða eitthvað álíka. Leik ríkan djammfélga einhvers ríks auðjöfurs sem leikin er af Gísla Erni Garðarssyni Hollywoods stjörnu. Þetta verður tekið upp í einhverri villu. Viðstaddir verða...

Lógík

...

Útihlaups hvatning

Er soldið búinn að vera hugsa um útihlaup og það sem því fylgir. Mér finnst eitt vanta. Ég væri nefnilega mikið til í að hafa fólk til að hvetja mig áfram. Svona ekki ósvipað og maður sér á stórum skíðamótum. ,,BOBB, BOBB, BOBB!" eða eitthvað álíka....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband