Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011

Zombie attack

Mér finnst ekki gaman að fara í apótek. Finnst eins og allir þarna inni séu Zombies í missioni að reyna að smita mig.

Allavega mjög miklar líkur á að minnsta kosti einn þarna inni sé veikur.

Reyni að halda sem mest í mér andanum.


Afmælisgjöf

Ég gerði svo fallegan hlut í gær að mér er nánast mál að pissa!

Ég gaf sjálfum mér afmælisgjöf.

Ég forpantaði(pre order?) Silver Rose pedalinn frá Devi Ever.

Devi Ever er stelpa í Portland Oregon sem byrjaði að fikta við að sjóða saman pedala fyrir nokkrum árum. Er bara ein í þessu og annar ekki eftirspurn núna og er að safna fyrir því að láta framleiða þetta fyrir sig á færibandi.

Silver Rose (sjá í færslu að neðan) er nýjasti pedallinn hennar og menn halda ekki vatni. Hann kom út í sirka júní fyrir almenning en upphaflega var hann hannaður að beiðni Billy Corgan úr Smashing Pumpkins.

Í pedalnum eru sem sagt IC Big Muff (siamese hljóðið) og Super Fuzz blandað saman.

Billy hefur verið að nota hann og líkar vel. Önnur bönd eins og Silversun Pickups, UNKLE, White Stripes og The Black Keys hafa verið að nota aðra pedala frá henni.

Ég sendi henni beiðni á Facebook og hún ætlaði að reyna að koma honum til mín fyrir 30 nóvember. Mikil bið eftir þessum pedal enda skrímsli sem allir vilja.

Pakkinn sem ég tók kostaði 375$ en í honum er Silver Rose, t bolur og Hyperion pedallinn. Mun svo selja Hyperion á sirka 10þ uppí kostnaðinn.

Núna byrjar maður bara að telja niður dagana


pulsugerð

Ég hefði ekki fengið hátt skor hjá honum þessum í kvöld 

 

Ég væri örugglega bara settur í að vísa gestum til sætis.

Klúðraði upphitun á pulsum í kvöld. Beta hló bara af mér. 


Kenning

Hafiði tekið eftir því hve oft lygnir á kvöldin. Svo er logn í blámorgunsárið og svo smá saman byrjar vindurinn að hreyfast upp úr kl 8.

Ég er með kenningu.

Hugsið eftirfarandi;

Fólk fer heim til sín eftir vinnu. Flestir fara heim og borða kvöldmat, horfa pínu á sjónvarp og fara svo í bólið.

Svo vaknar fólkið og fer í vinnu sirka kl 7-9

Er tilviljun að vindurinn deyji oft þegar fólk fer inn í hús?

Kenningin er því að við það að fólk fari inn í hús þá hættir það að hreyfa við loftinu og vindurinn róast.

Case closed

[cue CSI lokaatriði ,,YEEEEEEEEEAHH"]

Þannig að ef ekki lygnir á kvöldin þá geturu nokkurn vegin verið viss um að það sé annað hvort pakkað niðrí bæ á Laugarveginum eða þá margir í kvöldgöngu í Elliðaárdalnum.

PS. Þegar ég var lítill hélt ég í alvöru að það væri vindur af því að jörðin væri á hreyfingu


WTF

wtf

Oatmeal

Þessi síða er að gera góða hluti

http://theoatmeal.com/comics/minor_differences2


R9 gone bye bye

Seldi R9 ásinn minn góða í dag.

Þetta var massadagur. Ég og Knútur fórum hamförum í versluninni.

Þá er bara spurning hvort ég fái einhvern tíma til að fara golfhring til að prófa nýja kvikindið.

TP Burner


Silver Rose

Þetta er svo það næsta sem ég mun eignast!

Þetta blæðir hunangi og andar smjöri.

Bæði hægt að framkalla fallegt fuzz, basic overdrive í venjulegt rokk og svo hið sargasta surg sem ég hef nokkurn tíman heyrt.

Optimal pedall fyrir mig.

It will be mine, oh yes, it will be mine 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 153220

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband