Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012

Tilkynning!!!!!!!!

Ég er kominn út úr skápnum!!!!

Ég er Gey
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Ég er sem sagt kominn í ársfrí í GKG sökum lítillar spilamennsku og genginn í Golfklúbbinn Geysi, sem hefur skammstöfunina GEY

Sé nefnilega fram á að spila ekkert brjálæðislega mikið og týmdi ekki að borga brjálæðislegt ársgjald eins og í fyrra.

Þannig að já......ég er ekki lengur GKG, ég er GEY


tilkynning

Það gæti eitthvað stórfenglegt verið í uppsiglingu

en

Kannski ekki

Nánar um það síðar í dag


Diskur

Keypti mér hýsingu fyrir harðan disk

Gaurinn sem afgreiddi mig var undarlega ákafur í að fá að hjálpa mér við að setja diskinn í hýsinguna.

Þetta eru bara tvö plögg sem þarf að tengja og skrúfa svo hýsinguna saman

Gaurinn var dágóðan tíma að þessu á bakvið

Pottþétt að skoða allt stöffið á harða diskinum!

Býst við að sjá ljósmyndir af mér á netinu á vafasömum síðum innan skamms


Flying ?

Sebas var að leika sér með Flying V gítarinn sinn í gærkvöldi

Henti sér í pósur og spilaði sem fjandinn

Svona litlir strákar gera sér oft ekki grein fyrir umhverfi sínu og hann var að reka gítarinn í húsgögn tvist og bast. Eins og gengur og gerist.

Svo kom að því að hann rak hausinn á gítarnum í augað á sér.

ok, ekkert mál, bara pínu vont EN í kjölfarið er gítarinn ekki kallaður neitt annað en.................wait for it.................Flying I

jú nó....I....as in ,,eye".......hilarity ensues!


Vinsælast á youtube!

Hvað er málið með mest ,,séðu" myndböndin á youtube?

já já listin byrjar nokkuð fyrirsjáanlega

1 Justin bieber með baby lagið (tæplega 700 milljónir)

2 J Lo með eitthvað crap vídjó

3 Lady gaga

4 HM lagið

Svo kemur hið geysivinsæla ,,Charlie bit my finger" með rúmlega 400 mills

6 Eminem

7 Bieber

8 Miley Cyrus

og svo bara out of nowhere.............

Sæll, rúmlega mínútnu myndband með einhverjum gaur að nudda læri

ok...moving right along....

Þetta verður ekki asnalegra......að ég hélt Þá kemur tíunda sætið

what is this I don´t EVEN

25 sekúndur af insaneness!

Svo eru nokkur tónlistarmyndbönd og barnamyndbönd m.a. gummy bear lagið með 170 milljónir áhorfa. Sebastian á sirka 165 milljónir af því.

Svo eru alltaf einhver fucked up myndbönd inn á milli eins og það sem er í 17.sæti

og það sem vermir tuttugasta sætið

Ég hef þessar thumbnail myndir af myndböndunum sterklega grunaðar.

Menn sjá þetta og halda að þetta sé eitthvað klám eða eitthvað

Sóðakallar! 


Yo Yo ís

Fórum á American Style og svo á Yo Yo í eftirrétt.

Flottur staður þessi yo yo

Einstaklega skemmtileg stemming.

Lítil stelpa með fjölskyldunni sinni hrópaði yfir allan salinn ,,ERU EKKI ALLIR Í STUÐI!!!"

ég umlaði á móti.......,,JÚ!"

Fólk hló

Þetta var svo undirstrikað með Paul McCartney medley tónlist í bakgrunninum

Það skapaði undarlega en gríðarlega gott væb

Paul og ís...........góð blanda


Trommur

Er að forrita trommur yfir lögin mín

Stundum tekst það helvíti vel upp

oft ekki

Ákvað að setja gríðarlega mundane trommur yfir eitt lagið í tilraunarskyni og það var hlægilegt

Það verður alltaf að vera eitthvað edge hjá kjéppanum

Spurning um að bítboxa............uuuuuu...nei

Væri kannski fínt að hafa lifandi trommara jafnvel......neeeee...of mikið vesen

Held mig við EZdrummer í upptökum


Rass

Áttaði mig á því að ég er búinn að vera að skeina annan rass en minn núna hátt í 5 ár

Það styttist núna í að Sebas geri þetta bara sjálfur, enda á leið í skóla á næsta ári

Þá tekur bara næsti rass við

5 ár í viðbót með DK

Sæll

10 ár að skeina aðra rassa!

Er þetta heilbrigt?


Dedicated

"Rob has chosen not sign a full Staff contract in 2011 to give him total choice of exactly what he puts in the bag."

"Rob prefers to work on his swing in the most part by himself , occasionally visiting Matt Belsham."

http://www.robertrock.co.uk/profile

Robert Rock er með´etta


Golf í beinni

Þá erum við feðgarnir á leiðinni út í Golfskála til að horfa á Tiger og ROBERT ROCK einvígið.

Verðum mættir kl 10

Þeir sem vilja geta komið í heimsókn


Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband