Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2012

Pæling dagsins

hafið þið pælt í því að það eru eiginlega eingöngu skoruð stórglæsileg mörk eða algjör klaufa mistakamörk í kvennafótbolta!

Annað hvort efst í hornið og óverjandi eða þá að varnarmenn og/eða markmenn að gera einhver fáránleg klaufamistök

hmmmmmmm


Sumar

Fórum í bústað, svona rétt til að tékka hvort hann væri þarna ennþá

Hentum steinum í ánna og steinarnir gerðu uppreisn og hentu sér á Sebastian

Hann er ílla marinn á ökklanum

Hann sem sagt tók upp of stóran stein, datt aftur fyrir sig og missti steininn ofan á ökklann sem lá akkurat ofan á öðrum stein.

Great.

Hann var bókstaflega á milli steins og sleggju

Hef sjaldan heyrt hann emja jafn mikið. Greyið

Hann er samt ágætur núna.

Haltrar en hann harkar þetta af sér.

Þetta fylgir því að vera strákur og gera stráka hluti

Svo flugum við flugdreka. Tvíbanda kvikindi sem var rosalegur. Géðveikt stuð.

Sumarið svo sannarlega komið


sumarbústaður

Jæja, þá er það sumarbústaður. Án þess að gista. Ætlum að rúnta upp í sumarbústað og henda steinum í ánna og koma svo tilbaka. That's all.

væntingar

2 komnar, 1 eftir

Silversun Pickups skífan var vonbrigði samt eitthvað sem gladdi (5.5 af 10)
Sigurrós skífan var vonbrigði en samt pínku pínku gott (4 af 10)

Þá er bara aðal stöffið eftir

Smashing Pumpkins 19.júní

Hlakka mikið til.......sem er ekki gott. Er að reyna að halda væntingum í lámarki.


Sigurrós - Valtari

Sigurrós var að gefa út nýja skífu sem heitir Valtari

Hún er ekki skemmtileg

Mjög þung smíði

Þó eru 2 lög þarna sem ég fíla

2 lög....14 mínútur :)

Lög 2 og 3

Klassa stöff

Rest er svo bara ambient tónlist sem líður án mikilla risa. Ekki minn smekkur.

En alltaf gaman þegar Sigurrós gefur nýtt efni út

Vona að það komi almennileg skífa frá þeim fljótlega

Veit að þetta stöff er meira svona eitthvað sem hefur safnast saman í gegnum árin hjá þeim. Örugglega bara að henda því frá sér svo þeir geti einbeitt sér að nýju og fersku efni. Vonandi.


Minn harðasti gagnrýnandi

Beta heldur mér alltaf á jörðinni

Ég t.d. samdi lag sem mér finnst vera þvílíkt meistaraverk. Það gengur stærðfræðilega svo fallega upp að það er unun að spila það. Svo er það dramatískt og brilliant!

Finnst það vera einhverstaðar á milli Blackbird og Nothing else matters.

Hreint meistaraverk

Nei,nei....Betu finnst það leiðinlegt!

Sem er nánast óhugsandi.....að mínu mati

,,já,nei, mér finnst það langdregið og óspennandi!"

ok þá

Ekki ósvipað og þegar ég var með gæsahúð að spila eitthvað nýtt um daginn sem mér fannst að myndi ef til vill bjarga mannkyninu. Beta bara ,,er þetta Phil Collins lag?"

Og þegar hún sagði við svipað tilfelli ,,er þetta eitthvað úr Lion King?"

Gott að hafa góðan gagnrýnenda


18

Fór fyrsta 18 holu hringinn í sumar

Spilaði bara þokkalega

Náttúrulega nokkrar sprengjur en fyrir utan þær þá var ég bara að dansa

Það voru í raun 4 sprengjur og rest á +2

Þessar sprengjur eru í raun bara útaf ásnum. Er enn að finna rythmann með honum. Samt bara 3 léleg högg beint til vinstri. Hann er nokkurn veginn kominn í lag núna.

Púttin helvíti góð og járnahöggin.

Sáttur


Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 153119

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband