Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Gamall

Maður veit að maður er orðinn gamall þegar maður byrjar skyndilega að fíla Bruce Springsteen. Maður.

Ákvað í eintómu kæruleysi að tékka á nýja disknum hans þar sem ég hef aldrei tékkað á honum yfir höfuð. Þetta er náttúrulega bara aulatónlist en röddin í honum er það sem heldur manni við tækið. Músíkkin sem slík er bara nobody´s riffarar sem auðvelt er að rigga upp á korteri. Ekkert clever indí gáfumanna rokk þarna.

Það er hins vegar þessi rödd og það sem býr að baki. Menn vita alveg fyrir hvað hann stendur, working class hero og bandaríski draumurinn uppmálaður. Rámur angurvær gráa fiðrings töffari.

Ég skrifaði diskinn og hef hann í bílnum undir dulnefni svo engin komist að þessu. Ef þið rekist á disk merktan Brúskí Karamba þá er það ekki hann.

Eða Ebrú Ebrí tí (Bruce Springsteen á spænsku)

Spánverjinn er nefnilega snilingur í að bera fram enskuna. Dæmi:

lo rolinne dó (Rolling Stones)

lo emassi púmkí (Smashing Pumpkins)

lo bíte (The Beatles)


Rómantískasta setning seinni tíma

Úr myndinni As Good As It Gets með Jack Nikkkkkolson sem hinn klikkaði Melvin Udall. Kannski ekki setning....uuuuuu, málsgrein. Whatever.

Melvin Udall: I`ve got a really great compliment for you, and it`s true.
Carol Connelly: I`m so afraid you`re about to say something awful.

Melvin Udall: Don`t be pessimistic, it`s not your style. Okay, here I go: Clearly, a mistake. I`ve got this, what - ailment? My doctor, a shrink that I used to go to all the time, he says that in fifty or sixty percent of the cases, a pill really helps. I *hate* pills, very dangerous thing, pills. Hate. I`m using the word `hate` here, about pills. Hate. My compliment is, that night when you came over and told me that you would never... well, you were there, you know what you said. Well, my compliment to you is, the next morning, I started taking the pills.

Carol Connelly: I don`t quite get how that`s a compliment for me.

Melvin Udall: You make me want to be a better man.

Carol Connelly: ...That`s maybe the best compliment of my life.


Solid

Finnst sem ég hef farið upp um level í golfinu. Þetta er í annað sinn sem ég finn svona risastökk í getu á þessu rúmlega ári hérna á Spáni.

Ég er solid. Ég geri fá mistök og á brilliant högg inn á milli. Vantar bara að pútta betur.

Fer í það eins og skot.


Golfmót

Fór í rigningu í mót á Lauro golf í morgun. Mættur kl 7:45 að hita upp fyrir teig kl 9.

Djöfull var ég solid sem rock á þessum hring.

Á fyrri níu paraði ég allar nema eina þar sem ég fékk dobbúl.
Seinni níu voru par,fugl svo restin par fyrir utan einn skolla. 15 pör, 1 fugl, 1 skolli og 1 dobbúl.

Endaði á +2 með 93% hittar brautir(13 af 14) og 83,3% hitt grín (15 af 18).

Það sem mig vantar soldið núna er að klína þessum púttum í holuna. 35 pútt. Svo mikið því ég er að hitta öll friggin grínin og bara eitt friggin bördí pútt dettur. 4 sem lippuðu út.

Engu að síður þá er þetta algert regulation golf. Braut,grín og tvö pútt.

Gerði bara tvö mistök allan hringin. Dobbúllinn kom eftir að ég átti perfect risa dræv á par 5 braut og einungis 170 metrar eftir. Tók 5 járn og setti hann í bönker þar sem ég klúðraði soldið. Röð af fjórum mistökum sem teljast sem ein.

Seinni mistökin voru þrípútt þegar ég var að pútta fyrir fugli. Erfitt pútt en engu að síður viðbjóðsleg mistök.

Fékk 36 punkta og lenti í þriðja sæti. Fékk bók um Picasso safnið og aðra bók um Finnland. Moþerfokk. Djöfullin hef ég að gera með bækur. SÉRSTAKLEGA UM FINNLAND. kúlur men, gimmie friggin kúlur. Það er alltaf vöntun á þeim.

Lækkaði um 0.3 í dag því þetta var skalað upp sökum lélegs árangurs þessa 101 manns sem mættu í rigningunni. Nokkuð sáttur með það.


Nýjar myndir

Tékkið á nokkrum nýjum myndum í albúmi 11. Ekkert merkilegt svo sum nema þá metro maðurinn í vaffhálsmálspeysunni appelsínugulu.

bubbmundur

Bubbi byggir og Lala og pó eru í tækinu non-stop. Mig er farið að dreyma þetta. Við spæsum þetta annað slagið upp með söngvaborg.

Día

Í dag er fínn dagur. Æfingar síðan kl 9 í morgun og gæðin enn til staðar. Starfsmenn mijas golf þekkja mig ágætlega núna og stoppa allir hjá mér til að spjalla. Hafa mikinn áhuga á golfinu mínu og fylgjast með mér slá þegar þeir taka sér pásur frá slætti og almennri umhirðu.

Ég fíla það.

Hef verið að æfa soldið vippin með PW og 6 járni. Fann að 60° sem ég nota oftast henta ekki alltaf. Þegar maður er kannski 5-8 metra frá stöng og bara kannski 2-3 metrar af gríni þá er fínt að taka 6 járnið með púttgripi og pútta boltanum í staðin fyrir að lobba alltaf boltanum beint inná grín. Minni áhætta.

Búið að vera frábær veðurvika og ég orðinn tanaður í drasl. Svo er mót á morgun og viti menn. Það er spáð rigningu. #%&$#""##$

Ætla að pútta úr mér vitið eftir mat.


Fail

Nokkrar fail myndir. Smellið HÉR


Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband