Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Spíri spór

Borðar maður kartöflur sem eru farnar að spíra segi ég nú bara! And on a side note.....hvers konar fugged up orð er ,,spíra".

The Dirt

Er að lesa Mötley Crue bókina the dirt. Djöfull er hún skemmtileg. Hún er ein af þessum getekkisettniðurbókinaeðaégdey.

Það koma fáar þannig yfir árið. Lenti síðast á svo skemmtilegri bók þegar ég las nýju bókina hans Dan Brown. Svo náttla Stig Larsson.

Man ekki hvað var getekkisettniðurbókinaeðaégdey bókin fyrir það. Kannski ævisaga Slash eða Axl Rose eða Kiedes.

Whatever, the dirt er mjög skemmtileg og svo bíður Keith Richards á kantinum. Ætla að spara hana og lesa bara the dirt eina og sér.


life goes by, on the Talahina sky

Ótrúlegt en satt er ég ekki enn orðinn 100%. Ekkert veikur en samt enn running on 88%.

Ég fór með Sebastian í kringluna í gær. Hann var sjóræningi. Hann er of ungur til að snýkja nammi þannig að við fórum bara okkar vanalega rúnt. Á morgun er svo frí á leikskólanum og við munum dunda okkur því frá 8 um morgunin á föstudeginum til 9 um morgunin á mánudaginn.

Við munum fara á bókamarkaðinn í perlunni, fara í litla íþróttaskólann hans á laugardaginn og svo fara í ævintýraferð í strætó.


Ný könnun

Ég setti inn smá könnun varðandi hvaða kylfur heilla mest. Hvort sem það er vegna reynslu af járnunum eða bara hvort þær heilla við fyrstu sýn.

'tis all good

Ég verð bara að segja að ég fékk bóner yfir þessum Adams Pro Black járnum.


Hugsanlegir kandidatar

Núna er ég á fullu að leita að góðum kylfum til að taka við keflinu af Ping S59 sem eru orðnar gamlar og mjög notaðar.

Hugsanlegir kandidatar:

Mizuno Mp 68 = Falleg blade járn. Meira veit ég ekki.
http://golf.mizunoeurope.com/irons/mp-68/

Ping: Annað hvort i15 eða S57. Líkar við og þekki Ping.
http://www.ping.com/clubs/ironsdetail.aspx?id=438

Taylor Made: Mjög vinsæl járn. Spurning um að tékka á því.
http://www.taylormadegolf.eu/irons/tour-preferred-irons.html

Srixon Z-TX: þekki þau ekki en spurning um að gefa séns.
http://www.srixon.co.uk/products.aspx?product_id=85

Adams Pro Black: Hættulega flottar kylfur sem vert er að prófa.
http://www.adamsgolf.com/products/irons/problack.php

Held ég sé að verða ástfanginn af þessar mynd
http://www.todaysgolfer.co.uk/upload/42870/images/Idea_Pro_Black%20set.jpg

Adams klárlega þær sem ég er spenntastur fyrir í augnablikinu.


Titleist 690 mb

Ég prófaði Titleist 690 mb í gær. Smá vonbrigði með þær kylfur. Þetta eru reyndar kylfur frá árinu 2002 og því mikil framför orðin síðan þá. Samt, þetta eru klassískar titleist kylfur og ættu að gefa góða mynd af hvernig 695 mb myndu spilast, sem eru frá 2007.

Mér fannst ég vera sveifla járnpriki með steinklumpi á endanum. Fáránlega þungar kylfur og mjög spes að fara í þær frá ping kylfunum. Þegar ég fór svo aftur í ping þá fannst mér ég vera með plastkylfur í höndunum.

Gjörsamlega truflar allt tempó í sveiflunni sem ég hef verið að æfa hingað til.

Þetta var soldið skrýtið því mér fannst mun erfiðara að ná góðu höggi með pw og sexu heldur en með 3 járninu. Þristurinn ætti að vera í raun ein erfiðasta kylfan í pokanum en einhverra hluta vegna þá myrti ég kúluna alltaf beint af augum. Það gaf mér gífurlega vellíðan en hinar tvær toguðu mig aftur á jörðina því miður.

Ég var alltaf að púlla hinar kylfurnar. Ætli þunginn í kylfunni hafi gert að verkum að líkaminn hafi þurft að toga meira í hana til að ná henni niður og verið því opinn við impact! Að líkaminn færi of fljótt í gegnum tempóið og væri á undan kylfunni! Þannig að kúlan væri alltaf að fara beint til vinstri?

Hver veit(Derrick). En allavega þá var þetta ekki byrjunin á ástarævintýrinu sem ég hélt að það yrði.

Núna er ég á báðum áttum með hvort ég vilji Titleist. Þær eru nefnilega þekktar fyrir að vera mjög þungar og stirðbusalegar sagði Úlli mér. Mér finnst ég mun opnari fyrir að prófa aðrar tegundir. Væri kannski til í að sveifla Mizuno, Srixon, TM og nýju Ping. Svona þar sem ég er kominn á jörðina með að vilja eingöngu blade lúkkið. Ég meina....ég vil fallega blade lúkkið, en bara ekki svo mikið að ég fórni sveiflunni, góðum árangri og eigin vellíðan.


Siggarnir eru víða

Hérna er svo Bubbi Morthens þeirra þjóðverja.......Siggi Mertens!!!

Ekki slæmt....siggi Mertens að kenna fólki að spila Bryan Adams 


Siggi Rose

Þegar ég var lítill hélt ég voða mikið uppá Axl Rose í Guns n Roses. Ég átti plakat og allt. Ég gekk þó ekki jafn langt og félagi minn hann Siggi Rose frá Þýskalandi. Hann tók þetta alla leið.

 


bækur

Annars er ég búinn með ...and another thing, sem er sjötta bókin í Hitchhikers trilogíunni. Hún fær nú bara um 3 measlý stjörnur af 5. Must ríd fyrir Douglas fan en alls ekki lesa hana ef þú hefur ekki lesið hinar bækurnar.

Nú get ég spenntur einbeitt mér að keith richards og motley crue bókunum.

Samt eitt sem ég þarf að nefna, ég er á engan hátt aðdáandi keith né mötley crue. In fact þá gæti ég ekki nefnt eitt lag með mötley.

Ofangreindir eru bara svo þekktir fyrir fáránlega sukkað líferni að ég get ekki beðið með að lesa um allar sögurnar. The booze, the women and the rock and friggin roll.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband