Leita í fréttum mbl.is

Loksins

Þetta er góð frétt. Þetta finnst mér lágmarks kröfur af fólki sem býr í landi sem ekki er þeirra uppeldisland. Læra tungumálið er algjör beisikk krafa og allt annað er bara ókurteisi við íbúa landsins. Ég hef búið á Spáni núna í smá tíma og að sjálfsögðu tala ég spænsku við innfædda.

Ég á t.d. sænskan vin hér og þar sem hann kann ekki íslensku og ég ekki sænsku þá tölum við spænsku saman í stað enskunnar. Margir furða sig á þessu en okkur finnst þetta svo sjálfsagt. Enskan kemur okkar lífi hérna eiginlega ekkert við og engin ástæða til að tala það tungumál.

Á íslandi er töluð íslenska. Á Spáni er töluð spænska.

ps. svo er þetta ekkert feimnismál. Það eru margir sem halda að þetta sé einhvers konar rasismi en þannig fólk ætti að lesa fleiri bækur um hugtök og almenna vitneskju.


mbl.is Íslenskupróf skilyrði fyrir ríkisborgararétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Að sjálfsögðu á að skylda útlendinga til að tala lágmarks íslensku,en þú veist hvernig þetta er með Englendinga á Spáni þeir  læra varla málið,enda fara þeir á enska pöbba,enska veitingarstaði og horfa á enskt sjónvarp og ensk blöð.

María Anna P Kristjánsdóttir, 18.12.2008 kl. 05:59

2 Smámynd: Sigursteinn Ingvar Rúnarsson

Einmitt. Mér finnst það slæmt. Þess vegna tók ég þetta sérstaklega fram með spænskuna sem ég og vinur minn tölum.

Aldrei gott að þjóðerni einangrist í öðru landi og haldi sig útaf fyrir sig. Það skapar bara sundrung milli íbúa landsins og svo þessa nýbúa. Englendingarnir hér á Spáni eru soldið þannig, alveg eins og margir frá Asíu sem eru staddir á Íslandi.

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 18.12.2008 kl. 06:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband