Leita í fréttum mbl.is

Hringurinn +6

Varúð! Aðeins golfáhugafólk lesi áfram. Aðrir munu drepast úr leiðindum. 

 

1.hola: Par 5: Upphafshögg með ás púllað aðeins til vinstri sem var í lagi því það er seiftí svæðið. Var samt bakvið tré og þurfti að leggja upp með W. Þriðja högg aftur með W en slæ hann fat og enda í sandi. Fjórða flott glompuhögg og skildi eftir 2 metra pútt sem ég klikkaði á. Skor skolli.

2.hola:Par4: Upphafshögg púllað til vinstri og lendi í sandi 85 metra frá gríni. Slæ snilldar högg 2 metra frá pinna. Klikka á fuglapútti. Skor Par.

3.hola:Par4: Blendingur á miðri braut. 9 járn í mótvindi 110 metrar en yfirslæ flöt um 1 meter. Þriðja höggið er 10 metra pútt sem ég skil eftir meter stutt útaf pinninn var á brekkubrún. Klikka á meterspúttinu fyrir pari og fer framhjá holunni og renn niður brekkuna. Klikka á púttinu upp brekkuna. Skor dobbúl.

4.hola.Par3: 145 metra högg í mótvindi og ég tek 90% 7 járn og enda pin high en 6 metra vinstra megin við pinna í miklum niðurhalla. Rétt anda á kúluna og hún rennur framhjá og skil eftir um meters pútt tilbaka sem ég klikka á. Skor skolli. Og púttin eru að drepa mig.

5.hola:Par4: Kötta brautina yfir gil og enda 65 metra frá pinna. Mikill upphalli og ég ákveð að taka 50% 54 gráður í staðinn fyrir 100% 60 gráður svo ég spinni ekki of mikið til baka. Yfirslæ pinnan en pútta 3 metra pútti í fyrir fugli. Skor fugl.

6.hola:par5: Gott upphafshögg á miðri braut. Legg næst upp með 6 járni því grínið er í extreme upphalla í 200 metra fjarlægð og það er rok og rigning. Þriðja högg slegið með 9 í 100 metra fjarlægð og skil eftir 2 metra pútt sem ég klikka á. Skor par.

7.hola:par4: Gott upphafshögg á miðri braut. 135 metrar með 9 járni aðeins til hægri. Vippa inn með 60° og skil eftir allt of langt pútt. Erfitt 2 metra pútt í fyrir pari. Skor par.

8.hola:par3: 120 metrar í upphalla og mótvindi. Tek 8 járn en ýti boltanum aðeins til hægri og enda stuttur í miklu röffi. Ágætt 60° vipp en skil eftir 1 metra erfitt pútt og set það svo í við mikinn fögnuð. Skor par.

9.hola:Par5: Gott dræv á miðri braut. 156metrar í pinna niður í móti og meðvindur. Tek 9 járn og yfirslæ grínið um 1 meter. Pútta 6 metra arnarpútti 20cm of stuttur. Skor fugl.

Þarna var ég kominn í ágætann rythma og nokkuð sáttur að hafa púllað til baka tvö högg og vera bara +2 eftir fyrri 9.

10.hola:Par4: Gott dræv á miðri braut. Brautin er í miklum upphalla og ég tek 9 í 110 metra fjarlægð og er of stuttur og renn 15 metra til baka (sé það núna að 8 hefði verið flott). Á því mjög erfitt michelson lobb eftir, grínið 2 metrum fyrir ofan mig og pinninn meter frá brúninni og allt niðurhallandi frá mér. Snilldar högg og ég tappa í fyrir góðu pari. Skor Par.

11.hola:par3: 210 metra högg niður í móti þar sem ég feida 19° blending í enda gríns og á 7 metra pútt eftir. Ýti púttinu til hægri en er pin high og tappa inn fyrir góðu par á þessari erfiðu par 3 holu. Skor par.

12.hola:par4: Gott dræv á miðri braut. Tek næst 8 járn í 130 metra fjarlægð í smá mótvindi. Er of stuttur og renn til baka. Á aftur eftir svipað mjög erfitt Michelson lobb eftir þar sem ég tek gott högg en of stuttur í þetta sinn (reyna að vera of cute) og enn ekki á gríni. Vippa þvínæst fyrir pari í holuna en lendir beint í stönginni og hoppar út.Óheppinn. Skor Skolli.

13.hola:par4: Gott dræv á miðri braut. Púlla W til vinstri en er heppinn og rétt hangi á brún. Vippa næst of stutt og skil eftir 2 metra erfitt pútt sem ég klikka á. Skor skolli.

14.hola:Par3: Viffa undir boltann með W og enda 20 metrum of stuttur og til vinstri, en samt á gríni. Pútta ömurlegu pútti þar sem ég ýti því vel til hægri og er 3 metrum of stuttur. Þetta eru mjög nastí þrír metra með extreme hægri til vinstri halla upp í móti. Ég miða sirka einn og hálfan metra til hægri og boltinn snýst í holuna fyrir frábæru pari (cue. fagnaðaröskur). Skor Par.

15.hola:par5 hcp1: Ætla spila seif og tek 3 tré og hæla boltann 100 metra áfram og til vinstri. Mófó dauðans. Eins og ég hafði verið að dræva vel þá var þetta þvílíkt léleg ákvörðun. Tek 6 járn og ætla að reyna koma boltanum aftur í leik. Fáránlega erfitt högg sem ég þurfti að draga (sveigja) vel til vinstri en geri of mikið að því og enda næstum út í rugli. Gabriel fann boltann og ég pönsa boltanum með W beint til hliðar inná braut. Fjórða höggið var því í 165 metra fjarlægð og ég tek 6 járn og ýti kúlunni til hægri og lendi í sandi. Ágætt glompuhögg en ekki nóg og ég klikka á púttinu. Skor dobbúl. Fljótt að gerast.

16.hola:par3: Signiture hola yfir vatn og í extreme niðurhalla. 115 metrar á móti vindi með W og enda 20cm utan gríns og 5 metrum langur. Á mjög erfitt niðurhallandi pútt fyrir fugli en rétt missi og gott par staðreynd. Skor par.

17.hola:par4: Gott dræv á miðri braut. 9 járn pin high en púllað 7 metrum til vinstri. púttið var í upphalla og ég var aðeins of stuttur. Skor par.

18.hola:par5: Dræv á miðri braut. 3 tré púllað til vinstri og næstum OB, en pin high. Ég lobba þriðja höggið með 60° og tekst ágætlega úr þessari stöðu og röffi sem ég var í. 4 metra pútt rétt klikkar. Skor par.

Á morgun á að vera gott veður og vonandi næ ég að bæta skorið aðeins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband