Leita í fréttum mbl.is

tja,hvað skal segja

Ég fór úr límingunum við að horfa á þennan leik á netinu. Ótrúlega spennandi og skemmtilegur leikur. EN það er eitt sem truflar mig soldið.

Íslendingar voru ekkert að leika neinn gæða handbolta. Það tala allir um að við höfum verið að leika glimrandi vel. Mér fannst við leika mistækan, sæmilegan handbolta. Málið er bara að svíarnir voru svo arfaslakir að við náðum að merja sigurinn.

Ekki finnst mér neitt afrek útaf fyrir sig að vinna þetta svía lið þegar það er í svona ástandi. Ég meina, frábært afrek að komast til Peking en við þurfum að bæta leik okkar til muna ef við eigum að eiga eitthvað erindi á olíumpíuleikana.


mbl.is „Sænskir pappakassar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kári Tryggvason

Þú ert nú bara rugludallur :)

Við vorum að leika alveg fanta góða vörn. Héldum þeim alveg nirði, spilamenskan okkar gerði þá lélega og það er góður bolti. Markmaðurinn þeirra var að verja vel en okkar bara betur. Þú hefur ekkert vit á handbolta ! :)

Kári Tryggvason, 2.6.2008 kl. 10:01

2 Smámynd: Sigursteinn Ingvar Rúnarsson

hehe, kannski var þessi færsla með smá neikvæðnis glimmeri. Mér fannst svíarnir bara svo hrútlélegir að við eigum ekkert að vera að mikla þetta afrek að vinna þá. En jújú, ég hef ekki séð svona íslenska markvörslu síðan Einar þorvarðar var og hét. Það er vel.

Ég meina, snorri þurfti nánast að borga sig inn á völlinn hann var svo fjarverandi, Guðjón Valur átti 3 mínútu kafla, Pettersen var slakur. Óli Stef heimspekingur vill bara stökkva jafn hátt og hestur (skv. handbolti.is).

Heyrðu, þú skalt bara vita það að ég var stórskytta með Hvöt á Blönduósi í denn, þannig að ég veit alveg hvað ég syng....Ehem.

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 2.6.2008 kl. 10:55

3 Smámynd: Kári Tryggvason

Voru ekki frakkar líka lélegir þegar við unnum þá á sínum tíma. Andstæðingurinn er ekki betri en þú leyfir honum að vera :)

Kári Tryggvason, 3.6.2008 kl. 10:06

4 Smámynd: Sigursteinn Ingvar Rúnarsson

Jú, ætli það ekki.

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 3.6.2008 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband