Leita í fréttum mbl.is

leikskólar

Í dag skutlaði María mér uppá völl og fór svo með Sebastian að skoða leikskóla. Það sem einkenndi þá var lítið pláss og fáir starfsmenn. Með minnstu börnin(nokkra mánaða til 12 mánaða) er 1 starfsmaður með 10 börn. Hvernig er það hægt!!!

Með eldri börnin er 1 starfsmaður með 20 börn!!!

Þau segja að lógíkin á bakvið þetta er sú að þegar þau fara í barnaskóla, þá er bara 1 kennari. Þannig þarf að venja þau við. Crap, segi ég nú bara.

Sumir leikskólanna voru ekki einu sinni með garð. Þar sem garður var, þá erum við að tala um garð á stærð við svalirnar okkar ca 30 fermetrar.

Get nú ekki sagt að við séum eitthvað að flýta okkur að skrá Sebastian eftir þessa skoðun.

Svo var einn með webcam, við héldum því að hann væri eitthvað smá modern eins og íslensku leikskólarnir. Eeeeenei. Þeir kveikja bara á henni stundum. Djöfull eru þeir gáfaðir.

anyways....ég spilaði eins og blindur maður í dag. hræðilegt. Gabriel líka. Hann var svo langt frá sveiflunni sinni að hann fór eftir 12 holur. quitter. Hann er ungur enn og hefur ekki sömu þolinmæði og gamli kallinn. Hokinn af reynslu. Halo

Það kemur dagur eftir þennan dag.

Ég er farinn í helgarfrí sem ég tileinka fjölskyldunni minni. hasta luego.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 153154

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband