Leita í fréttum mbl.is

Smashing Pumpkins - Oceania: Gagnrýni

1.Quasar. Fullkomið fyrsta lag. Brjáluð byrjun. Dúndrandi trommur og mikið að gerast. Minnir rosalega mikið á Cherub Rock, sem er ekki slæmt. Ekki mikill húkkur og hefði ekki verið jafn sterkt nema bara sem fyrsta lag. Þykkt og flott gítarsánd eins og Billy er einum lagið. Frábær byrjun. 8 af 10

2.Panopticon. Rosalegar trommur og þykkur gítar. Flottur húkkur og laglína. Alvöru lag sem gæti staðið hvar sem er á plötunni. 8.5 af 10

3.The Celestials. Frábært múv hjá Billy að koma með þetta sem þriða lag þar sem það róar keyrsluna aðeins niður. Flott uppbygging. Fínn húkkur. Killer miðjupartur. Gítarsándið dropdead georgous sem endranær. Elska líka þegar gítarinn fylgir röddinni eins og í síðasta partinum. 8.5 af 10

4.Violet Rays. Besta lag plötunnar! Hands down. Kúl intró. faraway spúkí strömm gítar. Í raun killer lag í alla staði. Uppáhaldslagið mitt í dag. Aftur er trommarinn að koma sterkur inn og náttúrulega Billy bara sjálfur með 0.0% veikan punkt. Elska svo þennan miðjupart 2:58 þegar hann heldur tóninum og dettur inn í miðjupartinn sem komplementar laginu svo all rosalega. 11 af 10

5.My love is Winter. Í fyrstu frekar mundane lag. En svo allt í einu stend ég sjálfan mig að því að humma þetta goddem viðlag. Engin geimvísindi hér en samt bara allt í lagi. 7 af 10

6.One diamond, one heart. Fíla þetta Baba O'Riley dæmi. Samt næst mest mundane lag plötunar. Ekkert að gerast gítarlega séð. 4 af 10

7.Pinwheels. Aftur pínu Baba fílíngur. Gítarinn tjúnaður í opin hljóm. Gefur þessu spes fílíng. Nokkurskonar Thank You Led Zeppelin væb. Ótrúlega flott gítarlína sem kikkar svo inn á 1:28 og ógéðslega flott þegar kórusinn kikkar inn á 2:56. Töff lag. 8 af 10

8.Oceania. Titillag plötunar. Þetta lag er í þrem pörtum og er yfir 9 mín. Heilt yfir þá fittar það vel inn í þessari skífu. En ekki eitt og sér. Hver partur hefur sinn sjarma. Þetta er alveg lag sem ég nenni að hlusta á. Skippa ekki yfir það. Hápunktur er sennilega gítarsólóið í lokin. Géðveikt flott sánd og skemmtileg pæling. 6 af 10

9.Pale Horse. Mjög mundane lag. Óspennandi á allan hátt. Gef því 3 fyrir þennan da da da da da dum part sem er töff. En 10 sekúndna bútur er ekki nóg til að halda uppi heilu lagi. 3 af 10

10.The Chimera. Djöfull er þetta flott gítarsánd. Djöfull er þetta flott gítarriff. Lagið ágætt. Hefði geta verið meira spennandi en samt allt í lagi. Sagan segir að Billy hafi verið að dútla sér með gítarinn á meðan það var 10 mín pása og Mike trymbill hafi tekið eftir einhverju riffi. Billy bara ,,í alvöru...ok...skal semja lag útfrá því". Skilaði því svo inn eftir viku. Hefði átt að gefa sér viku í viðbót og gera það aðeins betra að mínu mati. Útaf því að þetta riff og sánd er killer. 6 af 10

11.Glissandra. Frábærar gítarpælingar. Skemmtileg rennibrauta pæling hjá Billy. Þetta upp og niður sánd hjá honum segir hann að sé sitt uppáhalds hljóð á plötunni. Lagið er ágætt. Basic. 7 af 10

12.Inkless. Svo, svo mikið Siamese dream lag. Frábært í alla staði. Géðveikur gítar. Kúl riff. Elska svona pælingar. Octave pælingar og gítar syngur með rödd. Allt minn tebolli. Besta sóló plötunnar á mín 1:26. Svo, svo, svo svalt. Er endalaust með það á rípít. 10 af 10

13.Wildflower. Rólegt dáner lag um dauðan vin hans Billy. Ekkert spes. Leiðinlegur endir. Samt rosalegt sóló á mín 3:15. Delay/reverb feedback himnaríki dauðans. Elska það....lagið?......ekki svo mikið. 3 af 10

Heilt yfir þá elska ég þetta gítarsánd sem hann vefar yfir plötuna. Þykkt og fallegt eins og í gamla daga. Flottir húkkar inn á milli. Killer riff. Fín plata. Heildarskor 90 af 130 eða tæplega 7 í einkun.

Eftir stendur......ánægður með comeback gamla gítarsándsins og ánægður með trommarann. Líka ánægður með að hann dömpar soldið þessari kassagítarspælingu sem hefur einkennt soldið hljóminn í lögunum hans síðast liðin nokkur ár.

Bíð spenntur eftir næstu plötu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ, ætlaði einmitt að fara segja þér að ég er búin að hlusta á plötuna 4 sinnum og alltaf alveg í gegn sem er eiginlega nuff said - you know what i mean! ;)

en annars erum við sammála með besta lag plötunnar, Violet rays, ég bókstaflega féll fyrir því strax... það var varla byrjað þegar ég hætti því sem ég var að gera því ég þurfti bara að hlusta

Lilja (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 08:21

2 Smámynd: Sigursteinn Ingvar Rúnarsson

En hvernig finnst þér annars skífan svona á heildina litið?

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 18.6.2012 kl. 08:37

3 identicon

love it! ég meina, ég get hlustað á hana í heild sinni án þess að þurfa skippa yfir lög... ég fæ alveg svona tilfinninguna að ég verði að kaupa hana, er ekki nóg að fá hana svona rafrænt ;)

Lilja (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 12:45

4 Smámynd: Sigursteinn Ingvar Rúnarsson

kannast við þetta. Beta gaf mér inneign í skífunni á feðradaginn svo ég gæti eignast hann.

Fyrsti diskurinn í srilljón ár sem ég actually vil eiga og hafa hjá mér

Gaurinn í búðinni sagði að diskurinn kæmi sirka 7-10 dögum eftir útgáfu úti. Sem sagt eitthvað um 26-30 júní. Skandall!

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 18.6.2012 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 153160

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband