Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2012

golf?

Gott ef maður detti ekki í pínu golf á morgun

Spáð fínu veðri

Held að við þrjú förum bara í göngutúr um kjalarvöllinn

Ekkert annað að gera í stöðunni


Fail

Ég spáði Íslandi tólfta sætinu. Fail.

annars var mín spá

1. Svíþjóð
2. Úkraína
3. Grikkland
4. Danmörk
5. Kýpur

Failus Maximus

Fyrsta sætið var náttúrulega given. Hands down besta lagið. Þurfti ekkert að velta því fyrir mér. En hitt byggði ég á því að Úkraínska lagið hefur verið vinsælt útaf þessari fótboltatengingu. Svo er Gríska lagið með einfaldan kórus sem er endurtekinn mikið. Danska lagið var soldið wildcard, en ég fílaði það. Kýpur var svo líka soldið bánsí og grípandi.

Klárt mál að ég veit ekkert um tónlist

En það var allavega gaman í eurovisjón partíinu :)


golf

feginn að vera ekki í þessu fyrsta stigamóti þetta sumarið

Varla stætt og deginum frestað

Ég bara nenni ekki að spila þarna út í fokkin keflavík. Aldrei gott veður og eiginlega alltaf vesen.

Svo er þetta leiðinlegasti 18 holu völlur landsins


rokk eður ei

Finnst eins og það sé mikið trend hjá fólki að þykjast vera eitthvað voða rokk.

Eins og þegar maður horfði á Eurovision þá sá maður að mjög margir þóttust vera rosa harðir en svo bara eitthvað búm tiss búm tiss rnb bít lag.

Skil ekki af hverju fólk er að klæða sig eins og rokkarar, rembast eins og rjúpa við staurinn við að vera með rokk attitjúd og svo er lagið bara einhver rnb soft klisja

Er virkilega svona kúl að vera rokk?

Nenniði bara að vera rnb soft klisju fólk í staðin ef þið eruð ekkert að syngja rokk? Plís!

Þetta er svo hallærislegt.

Sá þetta oft út á Spáni. Allir klæddir voða rokkaralega, attitjúdið hættulegt og svo kom bara eitthvað light pop eða rnb stöff.

Asnalegt


næst á dagskrá

Næsta skref hjá Casio Fatso er að fara í hljóðver

Ætlum að velja sirka 3 lög og gera alvöru upptökur

Henda því í spilun og verða fræg

Erum að pæla í

I Bleed
Heartbeat
Don't stand up

Erfitt að velja

Er búinn að setja mig í samband við frægasta upptökugaur landsins, besta dreifingaraðilann og merkasta prómóter Norðurlanda. Allt tilbúið. Vantar bara pening :)


dagur

djöfull komu margir merkismenn í búðina í dag. Nefni engin nöfn en þetta var þéttsetin dagur af atburðum.

Annars er komið kvöld og eurovision er í gangi.

Ekkert merkilegt að gerast.

bless


pretty plís

Mig langar til NY........nennir einhver að bjóða mér?

Rúf

Killers live á tónleikum á Rúv.....heilbrigð skemmtun

thanx

Jei, einn og hálfur tími af viðbjóði og eina ljósið í enda gangsins var þegar dregið var hverjir komust áfram

Beta lét á mute og gleymdi svo að láta mig vita að það var komið að því

Þar fór 1 og hálfur tími af lífinu sem ég fæ aldrei aftur

Þvílíkt antí klæmax

Takk Beta


Eurovision

það var cancel á öll plön í dag þegar ég frétti að það væri eurovision í kvöld!

snakk, malt og læti

Swiss var númer 7

Rokkhljómsveit.....viti menn......stelpa á bassanum!

Allir að herma eftir Casio Fatso

Þetta er svo inn í dag.....ólíkt laginu frá Swiss.....það er soldið út


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 153145

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband