Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011

da man

sharp

Playlisti Sebastians

Queen - We will rock you
AcDc - Highway to hell
Guns - Welcome to the jungle
Naked and famous - Young Blood
SIR - Kvöldlagið
Danska júróvisionlagið
Gorillaz - Clint Eastwood
Gorillaz - 19-2000

Þess má geta að ég kynnti hann bara fyrir naked and famous og Gorillaz og náttla SIR.

Hin lögin heyrði hann í teiknimyndum eins og Megamind og slíkt.


Tough Crowd

Sebastian kallaði á mig áðan.

SEB: ,,Pabbi, viltu segja mér brandara?"
SIR: ,,ok, af hverju var Óli rekinn af kafbátnum?"

................

SIR: ,,af því að hann vildi alltaf sofa með opinn glugga!"

[hljóð í engisprettum og tumble hrísla fýkur yfir veginn]

SEB: ,,hvað er kafbátur?"

.
.
.
.
.
.
.


that´s right

A man was hospitalized with 6 plastic horses up his ass. The doctors described his condition as stable.

Ný könnun

Fengum okkur pulsur í dag. Upphófst umræða um hvort sé betra að hita bara pulsuna í pottinum eða láta hana springa.

Ég er springa týpan en Beta vill bara hita.

Kjósið um það í nýrri könnun.

Tók klósettkönnunina niður því fólk var eitthvað spéhrætt við að svara.


stærð

Ég borgaði 75þ í ársgjöld gkg þetta árið. Hef ekki spilað einn hring í sumar. Bara tekið um 5 hringi í mýrinni.

5x3500=17.500

Vantar nokkuð marga hringi uppá til að þetta borgi sig upp.

Tek 4 hringi í meistaramótinu sem er 4*5500=22.000

Á svo von á því að taka kannski um 5 hringi í mýrinni í viðbót. 17.500.

Þetta gera samtals um 57.000kr

Þetta svona uþb rétt borgar sig upp. Því ég hefði að sjálfsögðu verið skráður í einhvern ódýran klúbb til að geta tekið þátt í mótum. Hefði kostað sirka 20þ-35þ.

Hjúkkitt.

Aldrei staðið eins tæpt. Hef bara engan tíma til að spila 18 lengur.

Svo hef ég ekkert geta æft. Mæti bara í mót og skít uppá bak. Oh well. Kominn tími á að taka eitt þannig sumar eftir 4-5 öfga golfsumur.


Pabbi

Pabbi á afmæli í dag

Hann lengi lifi!

3 x húrra!


Bon Iver

Djöfulll er ég að fíla Perth með Bon Iver. Mæli með því.

http://soundowl.com/track/w09/bon-iver-perth

Á eftir að melta hin lögin nánar.


Karlalæti

Karlalæti, Hrútasviti, Hanasvelgja og Tippatog.......

Allt þetta er samnefnari yfir ákveðna hegðun.

Þegar nokkrir karlmenn hittast þá skapast stundum svona stemming. Menn að reyna að vera rosalega harðir og geta nánast ekki tjáð sig nema með stælum og wannabe fyndni.

Það virðist vera kappkefli að missa ekki kúlið. Taka sjálfan sig rosalega alvarlega og ekki gefa neitt færi á sér.

Ég er voða lítið þannig.

Ég er sennilega sú persóna sem tekur sig hvað minnst alvarlega. Alltaf reiðubúinn að vera fyndinn á kostnað sjálfs míns.

Það finnst svona körlum veikleikamerki.

Það er yfirleitt frekar neikvætt væb í svona hópi. Oftast einhver að gera lítið úr einhverju, hvort sem það er manneskja eða atburður.

Öfga skoðanir eru vinsælar. Eitthvað er ýmist algjörlega fáránlegt eða einhver ótrúlega heimskur.

Ótrúlega vinsælt að kalla einhvern ,,kjélling" ef sá hinn sami gefur pínu færi á sér.

Þetta er áhugaverður hópur. Gaman að fylgjast með svona hegðun og geta séð þetta utanfrá. Þetta er svo hlægilega sorlegt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband