Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010
11.3.2010 | 09:57
Bókajól
Ég keypti mér bók í gær. Það var nú ekki seinna vænna. Hún fer bara aftast í biðröðina því núna er ég með fjórar aðrar sem bíða eftir að vera lesnar. Góssentíð fyrir mig.
Ég bara varð að kaupa hana því ég hafði tekið eftir henni áður og langað í. Svo var hún svo ódýr miðað við viðfangsefnið, stærð og mikilvægi bókarinnar.
Þetta er ævisaga, sjöunda ævisagan sem ég les í röð held ég. Þessi fer yfir ævi Jenna Jameson.
Hún heitir ,,How to make love like a pornstar"
Þú klikkar ekki með svona titli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2010 | 17:49
Ull
Fór í ræktina. Hljóp 5k á 36:30. Ekki það að ég hafi verið að flýta mér. Tek nefnilega þann pól í hæðina að hlaupa frekar hægar og í lengri tíma heldur en hraðar og í skemmri tíma. Ábending frá Alfreð.
Ég var nú samt í um 40 mín á brettinu þar sem ég rölti smá spöl eftir þessa 5k. Ég var nefnilega fastur í þætti á Discovery Channel um Ull. Hvernig hún er framleidd frá A til Ö.
Áður hafði ég horft á þátt á þessari ágætu stöð um olíuborpall fyrir utan Noreg.
Hressandi.
Það var annað hvort það eða þá E Hollywood true story af Brittney Spears! Ekki að fara gerast á minni vakt.
Tók svo brjóst, bak, kvið og hendur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2010 | 14:28
SP að leita að bassa/hljómborðsleikara
Billy Corgan úr Smashing Pumpkins heldur áheyrnarprufur til að finna nýjan bassaleikara og hljómborðsleikara á næstunni. hmmm kemur ekki á óvart. Þetta er eins og með Seve Ballesteros, maður les allskonar tilvitnanir í hann þar sem hann segir alla aðra vera vandamálið. En í raun er hann, að sjálfsögðu, bara vandamálið.
Frekjuhundur sem getur ekki unnið með neinum en þarf á því að halda því annars verður tónlistin hans allt of drama-inspired easy forget músík.
Rakst á netta málsgrein sem segir allt sem segja þarf um mína hugmynd um hvernig þetta hefði geta þróast ef vel hefði verið haldið utan um Smashing pumpkins. Ef Corgan hefði ekki verið svona mikið fífl.
"In my opinion, the spiritual and musical successor to the "classic" Pumpkins is found in The Silversun Pickups. In my mind, they are what the Pumpkins would sound like today in an alternate universe where Jonathan Melvoin never died and Billy Corgan didn't try to become Trent Reznor."
Í öðrum fréttum er það helst að ég er farinn í ræktina. Bless.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2010 | 11:22
Ævisögur
Búinn að lesa Keith Richards ævisöguna, hún var frábær. Svo ég summi þetta upp, Keith er hetja og besti rokk gítarsnillingur sem tónlistarsagan hefur gefið af sér. Mick Jagger er homma fífl sem gerir allt fyrir peninga og vill ávallt bara ota sínum tota fram. Hinir í hljómsveitinni skipta engu máli.
Ef ég á að nefna einn mínus við þessa bók þá er hann sá að höfundur er allt of barnalegur í skrifum sínum. Eins og ofangreind málsgreinir sýnir þá var hann nánast blindaður af Keith. En maður les bara á milli línanna.
Núna er ég byrjaður á ,,All that matters" sem er saga Metallica. Hún byrjar vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2010 | 11:17
Hreyfing
Ég er byrjaður í rækt sem heitir Hreyfing. Hef farið núna tvo daga í röð. Núna er ég stirður og með strengi. Sem er vel.
Það kom mér á óvart hve miklu auðveldara er að hlaupa á bretti en úti. Á mánudaginn skvetti ég 5km á 35 mín fram úr erminni og hefði getað hlaupið miklu lengur. Í gær tók ég bara 4km á 30 mín.
Ég ætla að leggja áherslu á hlaupin. Taka kannski um 60 mín í það á endanum með því að vinna mig aðeins upp í því. Jafnvel 40 mín fyrst svo æfingar svo 20 mín í lokin.
Svo langaði mig bara að hafa þetta einfalt. Taka magaæfingar, ehem sorrí Henning, KVIÐæfingar, magaæfingar eru víst eitthvað sem maður gerir þegar maður borðar eða sippar bjór í sig. Kviðæfingar, bakæfingar, hendur og brjóst. Fjögur stykki af æfingum og láta það nægja.
Er á viku prufu passa. Ætla svo að kaupa tveggja mánaða kort á tvisvar 6900, sem mér finnst frekar góður díll.
og já, ég ætla að fara alla virka daga. Og enga neikvæðni svo. Ég man þegar ég sagði fólki að ég væri að hlaupa úti og ætlaði bara að gera það. Þá mætti ég ekkert nema neikvæðni.
Jú vissulega voru miklar líkur á að maður héldi það ekki út, alveg eins og maður á kannski ekki eftir að halda út að fara 5 sinnum í viku núna, EN for god sakes, það hjálpar pottþétt ekki að heyra letjandi háðsglósur um að það sé óraunhæft og slíkt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2010 | 11:00
eitt gamalt og gott
Highlights: 1:17 til 1:36
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2010 | 11:04
Uppruni putta- og fokkjúmerkisins
Skemmtilegt er einmitt frá því að segja að þessi puttabending Gerrards á rætur sínar að rekja til þess tíma er englendingar og frakkar voru í eilífu stríði.
Þegar frakkar náðu að taka einhverja englendinga til fanga þá skáru þeir jafnan þessa tvo putta af þeim. Það var vegna þess að englendingarnir notuðu einmitt þessa putta við að skjóta úr bogum sínum á frakkana.
Þegar englendingarnir fréttu af þessum ljóta sið frakkana þá flössuðu þeir sem voru ekki handteknir puttunum framan í frakkana í næstu orrustu til merkis um að þeir væru enn með sína putta og að frakkarnir mættu eiga von á að fá eitt stykki ör á milli augnanna ef þeir pössuðu sig ekki.
önnur saga segir frá uppruna ,,fuck you" merkisins. Þegar englendingar náðu í eitt stykki frakka sem fanga þá skáru þeir miðjufingurinn af honum sem notaður var í að draga bandið í boganum aftur. Því ólíkt englendingunum notuðu frakkar bara einn putta.
Ef að fanginn slapp einhverra hluta vegna þá sýndi hann englendingunum puttan og hrópaði ,,plume-tu" í næstu orrustu. En eins og gefur að skilja þá heyrðist nú ekki mikið á milli víglína og þetta skildist sem ,,fuck you". Það, ásamt því að sjá miðjuputtann uppréttan skapaði svo þessa hefð við móðganir út um gjörvallan heim.
Framkoma Gerrards skoðuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.3.2010 | 08:08
Feðgarnir að horfa á Liverpool leik.
Feðgarnir að horfa á Liverpool leik. Já, þeir eru svona leiðinlegir á að horfa [skrifar sigursteinn og vonar eftir að engin taki eftir að hann smudge-aði bumbuna og his right manboob í burtu]
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.3.2010 | 07:57
Neikvæðni
What's going on in the kitchen segi ég nú bara. Af hverju er fólk svona neikvætt?
Ég ákvað að tékka á fréttunum og fór á vísi.is
Fyrsta frétt: ,,Kemst stundum ekki fram úr rúminu" (fötluð kona fær ekki þjónustu)
Önnur frétt: ,,Mamma fyrirgefðu mér allt" (ungur strákur fremur sjálfsmorð)
Þriðja frétt: ,,Hvetur múslimska hermenn til morða" (skýrir sig sjálft)
Fjórða frétt: ,,Japanskar konur ekki sáttar við útlitið"
Fimmta frétt: ,,Hinsta kveðja dóttur til móður snertir hug og hjörtu netverja"
Svo þarna í mest lesið
Ungfrú Reykjavík dömpaði dópinu
Afskrifað hjá auðmönnum en ekkja situr sár eftir
Tæknin að stríða Stöð 2: Logi náði að halda kúlinu
Þriggja mánaða barn fannst grafið í skafl
Dóttir Bubba setur upp söngleik
Láttu ekki ljúga að þér
Fyrrum landsliðs- markvörður í tíu mánaða fangelsi
ÞRIGGJA MÁNAÐA BARN FANNST GRAFIÐ Í SKAFL!!! WTF!!!
Ég er hættur að lesa fréttir hér eftir. Fer bara í klámið í staðin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2010 | 07:23
Sorrí, finnst þetta ennþá fyndið. Major Repost í gangi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar