Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010

lag dagsins

Coldplay á skoskum sterum 


Golf

Er að horfa á strákana í kína. Phil, Tiger, Westwood og Kaymer. Það gengur bara vel hjá flestum. Brilliant að byrja þetta kl 8 á morgnana. Þetta HSBC mót lofar góðu.

Svo eru æfingar að fara byrja hjá afrekshópnum aftur. Fundur í kvöld til að spjalla saman og svo hefst þetta á mánudaginn. Búið að vera gott frí og í mínu tilfelli allt of langt útaf þessum blóðtappa.


víðsýnn

Búinn að finna loksins fleiri gítara sem mér finnast fallegir. Fann m.a. nokkra Ibanez gæja einn Jackson og einn G&L.

Það sem ég sem sagt forðast og finnst ljótt er þessi feiti kúlurass eins og er á mörgum Gibson gíturum. Einnig finnst mér ljótt að sjá of oddhvassan búk.

Ibanez  S5470 Prestige

Ibanez S5470 Prestige

 

 

 

IBANEZ GSA60 BKN 2678GSA60BKN

Ibanez GSA60

 

 

 

Ibanez S570

Ibanez S570

 

 

 

Jackson Adrian Smith San Dimas 280-30518-XX

Jackson Adrian Smith San Dimas

 

 

 

G&L S-500 Semi-Hollow

G&L S-500 semi hollow

 

 

 

G&L S-500

G&L S-500 solid 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er reyndar soldill metal fílingur yfir Ibanez. Þessir gítarar kallast superstrat og eru hættulega heavy metal. Þeir hljóma ekki jafn fallega og fender strat og ekki jafn versatile.  Samt nokkuð kúl.

Er líka heitur fyrir þessum G&L gæjum, þeir eru náttla mjög líkir strat enda hannaðir af hönnuði strat, Leo Fender. 

Behringer iAxe-inn minn lúkkar ágætlega samanborið við þessi skrímsli. En það er í hljómnum og endingu sem minn gæji skítur á sig. Enda kostaði hann bara 10þ og keyptur í Toys R Us.

Látum hann nú samt bara duga í bili.

Behringer iAxe

 Behringer iAxe

 


Metallicu draumur

Er orðinn svo manískur á gítara að mig dreymir þá.

Var að tékka á ,,year and a half with Metallica" myndinni til að tékka á öllum þessum gíturum sem þeir notuðu við gerð svörtu skífunnar.

Ég sofnaði óvart yfir henni og byrjaði að dreyma svona líka fallega um þessa gítara.

Ég var staddur inni í æfingaraðstöðunni þeirra og var fluga á vegg. Jason var eitthvað ósáttur við að þeir læstu ekki húsinu. Og viti menn, öllum búnaðinum var stolið. Jason kemur að fullt af unglingum sem eru að bera þetta allt út. Hann reynir eitthvað að stoppa þetta en er þá umkringdur.

Þá skyndilega er ég Jason og ég spyr þá af hverju þeir séu að gera þetta.

Þeir segja þá með fyrirlitningu að þeir haldi með Anthrax og hati Metallicu. Þeir voru allir í rauðum Anthrax bolum.

Ég bara ,,ok" og þeir taka restina af græjunum.

Svo hverfa þeir og restin af bandinu kemur og Jason verður brjálaður yfir að þeir hafi ekki læst á eftir sér.

Í lokin kemur svo steypubíll og helli steypu í kjallarann!

Svo vaknaði ég.

Hver væri nú meiningin á þessu kvikindi?


Mánarölt

Ég hafði ekkert að gera í dag þannig að beinast lá við að læra að moonwalka. Segir sig sjálft.

Er orðinn nokkuð sleipur í því, bada bing! 

Þessi pjakkur nær þessu nokkuð vel. 

Fíla gæjann í lokin sem kallar strákinn gay. 


Stratocaster vifta

Fór inn í Hljóðfærahúsið og þefaði af öllum Ströttunum sem héngu upp á vegg. Þeir eru með umboðið fyrir Fender á Íslandi.

Var svona að fræðast aðeins meira um þessa senu. Góður Strat byrjar í kringum 145þ kjéll og fer svo hækkandi eftir týpu og ári. En svo er hægt að fá Fender Squire sem er nkl eins og Strat nema low end týpa sem kostar bara frá 35þ krónum. En þá er maður kominn með aðeins síðra hardware og síðri elektróník. 

Gæjinn sagði samt að það væru snilldar kaup því leikmaður eins og ég finni lítin mun á þessu. Góður fyrsti gítar. Kaupa kannski Squire á 50-60þ og maður er í góðum málum.

Svo er líka hægt að fá svona starter kit á 50þ. Það er Squire plús 15v magnari og eitthvað annað smádót. Fínn díll.

Vandamálið er samt bara að mig langar í sirka fjóra Stratocastera.

Svartan Strat með króm pickguard, rosewood háls og svörtum machine head. Myrki töffarinn.

Strat Squire Black and Chrome

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvítan Strat með hvítum pickguard, hvítum háls og hvítum machine head. Hvíti prinsinn.

Strat all white

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sunburn Strat með hvítum pickguard, hvítum háls og hvítum machine head. Klassíkerinn.

Strat sunburn hvítur háls
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Svo væri bónus að fá all rosewood Strat sem ég sá í einhverri bók. Hélt að það væri Harrison gítarinn sem hann fékk við upptökur á Let it be en það var víst bara Telecaster. Hmmm.
En svona Rosewood gæji er mun þyngri en venjulegur Strat og hjómar ekkert spes segja menn. Bara meira svona uppá lúkkið. En svona gítar eins og Harrison er með nema bara Strat takk.
Harrison með Telecaster Rosewood
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
50 mín slefsession yfir þessum Ströttum og ég er orðinn algjört fan. Gibson, ESP, Epiphone og allt hitt fíla ég ekki. 
 
Ég rölti svo aðeins um búðina í lokin og rakst á Guðna Finnsson úr Ensími. Hann spurði hvort hann gæti aðstoðað.
,,þú getur byrjað á því að láta nýju plötuna ykkar á vefinn ekki seinna en núna"
 
.......hugsaði ég. En ég sagðist bara vera að perrast aðeins yfir þessum gíturum. 
 
Ég endaði svo á því að kaupa mér trommukjuða eftir allt saman. Gæjinn bara ,,whaa, kemur hér inn og slefar yfir ströttunum í 50 mín og endar á því að kaupa þér trommukjuða". Ég jánkaði því og útskýrði af hverju, sú útskýring er efni í aðra færslu sem kemur kannski síðar.

Breiðstræti brotinna drauma

Þetta er sennilega uppáhalds myndin mín. Hvort eð heldur málverk eða ljósmynd. Það er eitthvað svo sorglegt við hana finnst mér. Jimmy, Bogie, skinkan og svínið.

Þetta er að sjálfsögðu ekki upprunalega verkið. Það heitir Nighthawks og er eftir Edward Hopper. Hann málaði það árið 1942 en það skartaði bara einhverju random fólki. Það var svo Gottfried Helnwein sem spoofaði Nighthawks mun seinna og setti þessar stjörnur inn. 

Boulevard of broken dreams er reff í eina frægustu götu heims, Sunset Boulevard, eða the strip eins og heimsborgarar eins og ég sem höfum gengið þessa götu megum kalla hana. 

Boulevard of Broken Dreams


« Fyrri síða

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband