Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
2.5.2009 | 20:34
Tré stunga
Graham er ráðgáta. Eins og ég hef áður sagt þá er erfitt að skilja hvað hann er að segja oft á tíðum.
Oft hef ég heyrt hann tala um tréstungu. Sem ég veit ekki hvað er. Tree stab.
Fattaði það í dag.
Þetta er three stab, þrístunga. Orðið notar hann yfir þrípútt.
Þrí stínga grínið.
TreeStabbed it.
Skemmtilegur hreimur.
Það er mjög heitt hjá þeim ensku að panta sér chips eftir hringi. Þetta eru franskar kartöflur, þessar þykku. Graham biður alltaf um "tcsí-apps".
Legend.
ps. hann er die hard Sheffield Utd maður og er á nálum yfir morgundeginum því þá ræðst hvort þeir fari beint upp eða þurfa að fara í umspil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2009 | 20:27
ORÐLAUS
Ég fór niðrá bar til að horfa á leikinn RM-Barca og men ó men hvílíkt og slíkt.
Frábær stemming og uþb helmingur á bandi hvors liðs. Það var allt vitlaust þarna. Real gæjarnir fóru þegar 20 mín voru eftir.
Menn voru að tala um að þetta væri sögulegt. SÖGULEGT. Hvar varst þú þegar Barca slátraði Real á bernais sósunni.
Við hliðina á mér stóð eld gamall kall sem keðjureykti. Hann var með falskar tennur og wiskí í bolla. Hann var á útopnu. Röflaði yfir öllu, svo mikið að ég hef ekki hugmynd um með hvoru liðinu hann hélt. Jú, örugglega Real því hann fór beint í spilakassann sem var við hliðina á okkur eftir fimmta markið.
Það var einhver pönkari sem öskraði í sífellu "negri" á Henry þegar hann var í mynd. Hálfviti. Skömmu eftir að hann fór útaf birtust tveir "negrar" á barnum og hann snarþagnaði. Þeir voru massaðir.
Í hnotskurn, Þetta Barca lið fer í sögubækurnar sem BESTA LIÐ SÖGUNAR. Það er ekkert lið sem hefur verið betra en þetta lið á einu tímabili. Ever.
Ef einhver kemur með uppástungu um annað þá bendi ég á að lið fyrir sirka 10 árum síðan og eldri voru ekki svona rosalega limbur og jafn vel spilandi tæknilega. Ekki jafn miklir íþróttamenn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2009 | 18:19
listatónn
olræt, hver er fyndinn? Hver gékk berserskgang og kaus tónlistarblaður og almenn meðmæli?
Ég helt í fullri alvöru að golf umfjöllunin myndi fá landslide kosningu. Hélt að þetta yrði bara rússnesk kosning nánast.
Þannig að ég ætla ekkert að vera að tala um golfmótið í dag.
Hvern er ég að blekkja, mér finnst lang skemmtilegast að tala um golf.
31 punktur og ég var rændur. Bókstaflega.
Var á ágætu róli þegar að kom að frægri fuglaholu. Ég smassaði ásinn og átti von á að kúlan væri 10-20 metra frá gríni á þessari par 4 braut. Heyrðu, kúlan horfin! Fokkin hollið á undan hefur tekið kúluna örugglega (því þeir voru á gríninu, ætli ég hafi ekki bara náð gríninu með ásnum). Leituðum í 5 mín og ég þurfti að labba til baka og tók annað brilliant högg með ásnum.
Hollið mitt var þá að pútta á gríninu og urðu ekkert vör við boltann. WHAT!!!
WHAT THE FOKKITI WHAT
Ætlaði að ná þá fugli með seinni boltanum og ná í einn punkt. Nei, nei, fann ekki seinni boltann heldur.
Tvö brilliant högg og tveir boltar týndir. Ósanngjarnindi dauðans. Sennilega fóru þrír punktar þar.
Svo á annari braut þá var ég með meterspútt fyrir pari og Graham (sem var í veðmáli við mig) steig fjórum sinnum í línuna og kúlan krækti í eitt farið og ég fékk skolla. Annar punktur rændur af mér. Hann gerði þetta sennilega ekki viljandi. Þau voru að mæla aðra kúlu vegna næst holu verðlaunum og hann traðkaði bara án þess að taka eftir því, enda 64 ára kallinn.
Annars var ég bara að spila ágætlega. Hefðu átt að vera 35 punktar.
Við Graham skildum jafnir eftir ævintýralegar lokaholur. Settum báðir í sand á næst síðustu. Ég setti úr sandi nokkra cm frá holu og öruggt par. Hann púttaði 4 metra pútti ofan í til að halda eins punkts forystu fyrir lokaholuna. Hann var sáttur með það. Ekki ég.
Settum báðir í skóg á næstu og þetta orðið að vipp keppni úr skógi. Hvorugur náðum gríni úr erfiðum stöðum. Næsta vipp skölllaði hann yfir grínið en ég setti nokkra cm frá holu og tappaði í með 60 gráðunum fyrir skolla. Graham átti því 10 metra pútt til að vinna með 32 punktum gegn mínum 31. Hann yfirskaut holuna þónokkuð og klikkaði svo á púttinu til baka og ég hélt um stund að ég hefði unnið.
En nei, þar sem þetta var punktakeppni gat hann bara tapað 2 punktum max og ég fékk skolli og tapaði einum núþegar. Þannig að niðurstaðan, jafntefli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2009 | 16:18
ING
Á morgun er mót á Lauro sem heitir XI TORNEO KONINGINNEDAG og er styrkt af ING og er hollenskt út í gegn. Maður er ekki maður með mönnum nema að mæti í appelsínugulu og á ég eina slíka peysu.
Flott verðlaun segja menn, hótelgistingar og slíkt, sem ég að sjálfsögðu mun reyna að selja ef ég vinn eitthvað. Hef ekkert með slíkt að gera. Vill bara beinstífa peninga eða kúlur. Ekkert annað. Líka bikara, fíla þá.
Aðalmunurinn sem ég tek eftir á mér núna í dag og undanfarna mánuði er að ég var aðeins reiðari yfir mistökum. Eins og ég hafi verið bara á ligeglad don´t give a shit túr síðustu þrjá mánuði. Of afslappaður. Núna var ég að reyna að vera aggresívur og fearless. Það tókst. En við það varð ég ósáttari við mistökin. Okay, prófa þetta á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2009 | 16:11
Ég vann
Auðvitað. Ég spilaði gott golf í dag þar sem ég vippaði tvisvar í holu fyrir fugli. Muniði að ég æfði sérstaklega vippin með 54°, ó je baby. Það greinilega borgar sig.
Ásinn flawless, vippin flawless, járnin góð og púttin ágæt. Hefði mátt setja 3-4 pútt í frá 3 metrum en samt bara ágætt.
Vann 4 af Graham en samt mjög óheppinn að vinna ekki 10.
par,par,par,par,par,skolli,skolli,fugl,skolli = +2
par,par,par,skolli,skolli,fugl,par,par,dobbúl = +3
Samtals +5 með dobbúl á síðustu þar sem ég var svikinn af vindinum. Þetta er braut þar sem hægra megin er skógur og vinstra megin er vatn sem svo köttar líka brautina í tvennt. Mitt gameplan er ávallt að miða á vatnið og fade-a 3 tré til hægri inná brautina.
Í þetta sinn sá ég flaggið á tíundu brautinni benda til þess að vindurinn var nokkurn vegin beint á móti. Ok, fine. Ég framkvæmi höggið fullkomlega en fade-ið kemur ekki nógu mikið inn. what! Kemur í ljós þegar ég labba svo brautina að vindurinn er actually frá hægri til vinstri og vann því á móti fade-inu.
Fór því í vatn og þurfti svo að droppa á stað sem var í niðurhalla. Þriðja högg því í bönker og ekki sand save. Dobbúl og Graham náði pari til að fyrirbyggja því að tapa 10.
Er mjög sáttur við þennan hring. Spilaði líkt og vindurinn (sem var þónokkur).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar