Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Glasvegas

Mæli með hljómsveitinni Glasvegas og samnefndri plötu.

Piltar frá Glasgow og hreimurinn eftir því. Einkar hressandi.

mæli sérstaklega með lagi 3 að ég held. it´s my own cheating heart that makes me cry.

En fyrir mainstream fólkið þá er náttúrulega lag 2 held ég, Geraldine vinsælast......


Nýjar myndir

setti inn nokkrar nýjar myndir í albúm 8

golf, mótó og leló


kuldi

Hér erum vid Í málaga í fimbulkulda. Í madrid var t.d. mínus 2 grádur í morgun. Sit hér inní í íbúdi tengdó í útijakka med vettlinga, trefil, húfu og sólgleraugu.

MESSI sem forseta!!!!!!!!!!!


hraði

Nú þegar netið er komið loks í fúll swing hjá mér þá hrannast myndirnar inn sem ég niðurhala.

á tveim dögum er ég kominn með:
king of queens 5.seríu
southpark 12.seríu
the day the earth stood still
dagvaktin þættir 7-10
family guy 7.sería
Madagascar 2
Quantum of solace
Religulous (fín mocumentary um hve asnaleg trú er)

Er bara búinn að kíkjá trúarmyndina. Hún fær 4 af 5.

Svo tók ég Il Divo fyrir maríu og nokkra diska í viðbót fyrir mig.

Erum á leið á útsölur í Málaga. Það ku vera rosalegt. Mig vantar golfbuxur og einar rokkbuxur í viðbót.


Góð byrjun

Djöfull er ég góður. Lofa einni færslu á dag og klikka svo tveimur dögum síðar.

Fórum til tengdó í dag og héldum uppá pakkajól og afmæli Antonio juniors.

Sebas fékk móturhjól, golfsett, hraðskreiða bíla og ýmislegt fleira.

Ég fékk sokka og nærbuxur. hmmmmm ekki alveg sanngjarnt.......jú, ég fékk líka lyklakippu.

Núna eru heilar þrjár vikur síðan ég sveiflaði golfkylfu. Ég byrja aftur á fimmtudaginn og ætla að æfa vel áður en ég fer í mót. Gæti trúað því að allur stöðuleiki væri fokinn út um gluggann. Verð duglegur á reinginu og í stutta spilinu. Stefni á mót eftir kannski 10 daga.


NÝJAR MYNDIR

Loksins loksins er netið að haga sér almennilega.

Nýjar myndir á myndabloggi hér til vinstri á síðunni.

Þeir sem ekki eru með lykilorðið, bara sendið keppanum beiðni og málið dautt. Allir velkomnir.

 

MILLJÓN myndir, ég endurtek milljón

úr öllum áttum, ég bara henti inní möppuna héðan og þaðan, aðallega þaðan.

klassíkerarar eins og bleiki glassúr kleinuhringurinn, hirðfíflið og róló


yfir til þín sigurður

Helsta frétt dagsins er að Mjási er orðinn spikfeitur.

eða var það akfeitur.


Agua II

Vatnið er komið á fullt og ég á leiðinni í sturtu. María fékk sér vatnsglas í fagnaðarlátunum og Mjása var skenkt uppá nýlagað vatn. Greyið hafði verið að lepja upp vatnið sem tengdó kom með til okkar í fötu. Við hins vegar notuðumst við aðkeypt vatn úr mercadona. No more. Vatn fyrir alla.

Agua

Jú, jú, við erum án vatns í íbúðinni.

Fuskin þriðji aðilinn sem leigir út íbúðina fyrir eigandann er glæpon. Öllu heldur þessar tvær gærur sem sjá um þetta. Ég sá strax á þeim að þær voru eitthvað dúbíus og sagði Maríu það.

Kemur á daginn að þær hafa ekki borgað eigandanum leiguna sem fyrri leigendur borguðu þeim. Svo borguðu þær ekki rafmagnið eins og frægt er orðið og núna,,,,,,,,vatnið.

Við borgum eigandanum leiguna beint þannig að það sem við gerum er að borga alla þessa fuskin skuld svo við fáum vatnið og drögum það bara frá leigunni. Málið dautt.

Það er búið að vera svo mikið vesen í þessum mánuði að í staðin fyrir 650 euros þá borgum við bara um 88 evrur. Eigandinn á örugglega eftir að reka upp stór augu þegar hann sér það. Don´t give a fusk, hann verður bara að eiga það við þriðja aðilann. Ekki okkar vandamál. Við erum í raun að gera þessum aðilum greiða með því að borga skuldir annara og ganga í verkahring þessa vanhæfa þriðja aðila.

Við drögum frá eftirtalin atriði: 240e þvottavél, (20.6 leiga á dag x 7 dagar á vatns = 144e), 178e samtals um 88e


Meistarinn talar

Hefst þá færslugleði meistarans á ný eftir jólafrí. Lámark ein á dag.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband