Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Markmið

Þess má geta að ég setti mér markmið uppá +5 og +5. Samtals +10.

Það er búið að gefa út viðvörun á Gibraltar vegna vinda sem eiga að verða uppá 53 km/h á morgun. Sennilega sleppum við við rigningu en sjáum samt til.

Ég held að +5 á morgun verði mjög gott skor.


1.hringur +5

Það var stressaður iceman á 1.teig kl 10 í morgun á Alcaidesa. Ég reyndi að létta lundina með því að humma smá lagbút en allt kom fyrir ekki. Teighöggið púllaðist til vinstri og fór næstum OB, heppinn. 2.höggið var aðeins minna stress en samt til staðar. Aftur púll til vinstri næstum því OB, heppinn. Endaði holuna á skolla. Stressið var farið á 2.teig en kom aftur í par púttinu sem ég klikkaði á og fór næstu holu einnig á skolla.

2 yfir eftir tvær. Á þriðja teig var ekkert stress lengur í líkamanum og ég púttaði fyrir erni en fékk fugl á þriðju. Endaði fyrri 9 á +3 sem er ekki ásættanlegt.

Á þessum tímapunkti var komið mikið rok og maður farinn að spila samkvæmt því. Á 10 og 11. holu komu klaufa skollar en ég setti niður 15 metra fuglapútt á 13.

15 er með mótvind til hægri. Það kom smá hægri spinn á boltann og hann slæsaðist í vatnstorfæru. Víti og tvöfaldur skolli raunveruleiki.

Ég endaði svo hringinn á að setja 20 metra pútt í fyrir fugli á 18 og ágætlega sáttur við fyrsta mótsdaginn sem gildir til forgjafar.

+5 með 6 hittar brautir(hræðilegt), 9 hitt grín(ætti að vera 2-4 betra) og 30 pútt sem er Ok.

Gabriel endaði á +3 og strákurinn frá Granada sem spilaði með okkur endaði á +15. Hollunum var raðað upp eftir forgjöf þannig að við erum allir svipaðir að getu.

Ég fæ +3 í forgjöf þarna þannig að ég var 1 höggi frá gráa svæðinu. Á Íslandi myndi þetta verða leiðrétt útaf veðurskilyrðum samkvæmt nýju reglunum. Á mótum sem skilyrðin eru slæm eins og mikill vindur t.d. þá er skalað upp um 1-3 högg. Veit ekki hvort það er gert hérna, vona það þá ætti maður að vera safe á forgjöfinni.

ps. lagið sem ég hummaði allan hringinn er eftirfarandi:

Now some men like a fishin', but some men like the fowlin'
Some men like to hear, to hear the cannonball a-roarin'
But me, I like sleepin', `specially in my Molly's chamber
But here I am in prison, here I am with a ball and chain, yeah
Musha rain dum-a-doo dum-a-da, ha, ya
Whack for my daddy-o
Whack for my daddy-o
There's whiskey in the jar-o

Metallica að flytja lagið Whiskey in the Jar eftir Thin Lizzy

Takk fyrir


Hippster og kúlster

Maður er bara orðinn trendsetter. Hipp og kúl er frasinn minn. Ég gerði hann ódauðlegan fyrir tja....ca 2-3 árum. Ekki orð um það meir. W00t  Cool  Devil
mbl.is „Hipp og kúl“ vorlína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær nýjar myndir

that´s right

Links

Fór æfingarhring í dag á Alcaidesa. Spilaði á +3 en var að prófa allskonar hluti. Stundum tók maður auka högg til að tékka hvernig spilast frá mism. stöðum. Það var gaman að undirbúa mótið svona. Ég var með mína nótnabók og var síhripandi niður allskonar punkta. Fyrst tékkaði maður á teighögginu og hvernir maður vill nálgast það. Svo var brautin skoðuð og heppilegustu staðirnir fundnir. Svo teiknaði ég ávallt grínið og landslagið á því.

Ég spilaði fyrst með gömlum hjónakornum frá Hollandi sem töluðu nánast enga ensku. Þau vildu endilega að ég færi á undan þeim en ég náði að koma þeim í skilning um að þeirra hæga spilamennska myndi eiginlega henta mér vel betur. Fyrir aftan okkur var strákur og pabbi hans. Þeir voru einnig að undirbúa mótið um helgina og ég kvaddi gömlu hjónin og spilaði með feðgunum frá 10. holu. Þannig kom betra tempó á þessi tvö holl og þau Hollensku öruglega fegin að vera laus við mig. Þau voru svo nervus því þau spiluðu ekki vel og tóku alltaf andköf þegar ég sló. Svo stóðu þau alltaf bæði beint fyrir aftan höggin mín í ca. 5 metra fjarlægð til að fylgjast með. Þau voru alltaf í sjónlínu og á hreyfingu. Ég sagði ekkert, því þetta var ágætt tækifæri til að æfa einbeitinguna.

Þessi völlur er hannaður af Peter Allis og þarna er alltaf rok. Hann er við hafið og verður fróðlegt að sjá spánverjana berjast við rokið. Vonandi kemur rigning líka þannig að the iceman hafi betri möguleika.

Fer út kl 10 á morgun og viti menn. Ég er í sama holli og Gabriel vinur minn. Sem er miður því ég vildi í raun spila með ókunnugum til að hafa þetta sem minnst líkt æfingarhring. En það er svo sem allt í lagi, ég verð bara einbeittur á minn leik.


Músikk

Vek athygli á þrem nýjum lögum í spilaranum hér til hægri.

Einn rokkari frá Zwan. Þetta er 6 mínútna endir á lagi sem er 14 mín langt í heild og er sennilega besti endir á lagi ever.

Tvö ágætis lög með Mates of State.


2

Fór 18 á Ameríku kl 8.30 í morgun. Var fyrstur og einn þannig að hringurinn tók mig bara 2 tíma og 20 mínútur sem er vel. Ég nýtti tækifærið og spilaði frá hvítum og fór á +4.

Spilaði mjög vel en fékk tvo tvöfalda skolla á par 3 brautum sem eyðilagði skorið. Allt hitt var samt flott og þess má geta að ég hitti allar brautirnar. 100% hittar brautir og 61,11% grín í réttum höggafjölda. Var með 32 pútt sem er ekkert spes en ásættanlegt miðað við fjölda hittra grína.

Ég fór svona snemma út því við ætlum núna að fara til Marbella að ná í jakkafötin mín sem ættu núna að vera tilbúin og renna til Málaga að ná í brúðkaupsgjöfina. Morgundagurinn fer svo í að taka æfingarhring á Alcaidesa golf sem er í klukkutíma fjarlægð og æfa þar allan daginn fyrir mótið um helgina.

Laugard. og sunnud. eru svo mótsdagar þar sem leikið er 2X18 yfir helgina. Þetta er stigamót hérna á Spáni með þátttakendum sem eru með 4-5 í fgj og neðar. Þannig að maður er soldill underdog á þessu móti en verður brilliant reynsla. Þetta verður fyrsta mótið mitt með nýja spænska forgjöf og verður spennandi að sjá hvort ég hækka eða lækka.

Alcaidesa er links völlur við sjóinn rétt hjá Gibraltar. Maður sér klettin þaðan og yfir til Afríku. Það verður pottþétt vindur að hætti alvöru links valla og reyni ég að undirbúa mig fyrir það.

að lokum....bendi fólki að tékká hljómsveitinni Mates of state. Alvöru tónlist fyrir gáfað fólk.


Parador

Spilaði el Parador með Gabriel og Felix forstjóra San Miguel. Spilaði vel en hitti aðeins 3 brautir. Allt annað var í lagi og er ég frekar sáttur við hringinn. Gaman að sjá hve La Cala eru erfiðir vellir miðað við svona venjulegan flatan völl.

Ég og Felix fórum svo á strandarbar þarna við hliðiná og bauð hann uppá bjór (hvað annað) og tapas.

Þegar ég var að koma núna frá púttgríninu var ég stoppaður af la guardia civil (alríkislögreglan). Þessir gæjar er svo scary...Ég var á aðrein sem lá inná aðalveginn og skyndilega keyra þeir í veg fyrir bílinn. Einn gæjinn kemur að bílnum í skotheldu vesti með sólgleraugu og almennt lean mean tough cop machine attitude. Hann spyr hvort ég búi á svæðinu sem ég jánka hræðslulega með sveitt ennið. Löggan skannar bílinn með röntgenaugum í nokkrar sekúndur og segir mér svo að halda áfram ferð minni. Löggubíllinn hörfar og ég dríf mig heim.

Það gott að vita að þessir kallar séu duglegir að vinna sína vinnu. Það veitir manni öryggiskennd. Greinilega eitthvað atvik komið uppá þarna í þessu hverfi og sökudólgs var leitað.


Ruarsson

Að sjálfsögðu gat þetta ekki gengið snuðrulaust fyrir sig.

Ég er sem sagt kominn með forgjöf á spáni en viti menn, viti menn. Ég er ekki lengur sonur Rúnars, heldur sonur Ruars.

Ég er skráður Ruarsson, Sigursteinn hjá spænska golfsambandinu. veiiiii

Ætli þú verðir ekki að breyta nafninu þínu pabbi í Rúar. Það er sennilega auðveldara heldur en að fá þessu breytt úr þessu.


Dagur

Í dag gerðist fátt markvert. Fór á reingið og tók svo 18 á Ameríku á tveim og hálfum tímum. Spilaði svona lala, fann aftur sveifluna en vippin og púttin úti að aka. 35 pútt er slæmt fyrir líkama og sál.

Fór svo 9 í viðbót á Asía.

Skellti mér í klippingu sem kom ágætlega út. María kom með Sebastian að sækja mig og fékk litli þar sína fyrstu alvöru klippingu. Við minntumst aðeins á það að við værum á leið í giftingu og konunni fannst tilvalið að snyrta kútinn aðeins. Gratis auðvitað því þetta voru nú ekki mörg hár.

Á morgun spila ég með herra san miguel og gabriel á El Parador. Spennandi.

ps. er loks kominn með spænska forgjöf. húrra fyrir mér. Fyrsta mótið með nýju fgj. verður á laugardaginn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband