Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Könnun

Það er komin ný könnun hér á hægri hönd.

Forgjafarkönnunin var orðin þreytt og ekkert uppúr henni að hafa lengur.

Eins og svo oft áður snýst þessi könnun um að kynnast innri manni lesenda þessa blogs.


enano

Var sitjandi á bekk í kringlunni að bíða eftir Sebastian í leiktæki þegar dvergur vatt sér upp að mér og spurði mig spurninga.

Þetta var gæjinn á stöð tvö. Þessi litli fréttamaður þarna. Þetta var spurning dagsins og kem ég því sennilega í fréttunum í kvöld.

Spurt var hvort ég hefði eitthvað pælt í því að flytja í burtu sökum kreppunar á Íslandi.

Ég hélt nú ekki. Enda nýfluttur aftur á klakann. Þá spurði hann af hverju. Ég svaraði útaf því að það sé betra að fá vinnu hér og lífsgæðin eru betri (sem þau tvímannalaust eru, segir maður með reynslu, aðrir....veriði úti).

Annars er þetta allt í móðu. Ég varð svo stressaður að ég blakkaði bara út. Ekki sá besti að tala rólega og yfirvegað þegar það er pikkaði í öxlina á mér og ég lít við og sé 7 milljón pixla myndavél í 3 cm fjarlægð frá vinstra gagnauganu á mér og brosandi dverg að spurja mig kreppu spurningu.

Það verður fróðlegt að sjá þetta.


Bær

Feðgarnir fóru á stúfana í morgun. Fluttum um 30% af stöffinu okkar til ma&pa. Núna er eftir eitthvað um 20% sem er vel.

Ætlum að sofa hérna kannski eina eða tvær nætur í viðbót.

Fórum inní kringlu því ég ætlaði í Hans Pedersen til að koma nokkrum myndum á digital form. Nei, nei, búðin þar er hætt og einhver stinkin fataverslun komin í staðin. Greit. Pungnum var slétt sama og sá sér gott til glóðarinnar og hlekkjaði sig við eitt tækið á ganginum. Var þar í sirka 20 mín á meðan ég sat á bekk.

Fórum þá næsta stað sem ég hélt að Hans væri staðsettur. Þarna við hliðiná þar sem næturvaktin var tekin upp. Nei, nei, búðin líka hætt þar. Shíss. Ertu að frikka mig.

Þurfti að hringja í 118 til að fá bloddí staðsetningu á Hans Pedersen í Rvík (takk sverrir fyrir aðstoðina).

Fann hana loksins og dömpaði myndunum þangað. 41 mynd frá Sverri sem þess virði er að borga 10þ fyrir að fá á digital. Nennti nefnilega ekki að skanna þetta sjálfur.

Ætluðum svo að fá okkur eitthvað í gogginn, eða gog-ÍNN eins og Sebastian segir það, ekki ósvipað og framburðurinn á pet-HÚR, mat-HÚR og MHÚ-sikka.

þetta var kl 12:30 allt stappað allsstaðar þannig að við gripum bara bjögga á dónaldinum og þutum heim með Ensími í botni.


LP Útskýring

Kemur þetta einhverjum á óvart?

Ég meina, veit fólk virkilega ekki af hverju LP hefur núna tapað 2 af 3 leikjum sínum í ensku?

Þetta er svo augljóst. Og veldur mér engum áhyggjum.

Núna loksins er LP kominn með alvöru bakverði sem sækja upp og senda fyrir og slíkt. Nú, það bíður þá bara upp á að vörnin leki aðeins í kjölfarið.

Mjög eðlilegt.

LP hefur í gegnum tíðina státað af einni bestu vörn englands. Virki.

Á kostnað þess að vera mjög sókndjarft og magikal framm á við.

Núna fyrst eru þeir að testa þennan nýja bakvarðar driven sóknaleik og rekast á nokkra hnökra.

Eðlilegt.

Ég segi bara, guð minn almáttugur. Andstæðingar LP. Haldið ykkur fast. Þegar þeir læra almennilega á þetta þá eru þið royally FUBAR.


leita að íbúð

Við erum enn að leita að íbúð fyrir okkur hjónin, Sebastian og Mjása.

Við erum að tala um 60-100fm2 og verðhugmynd uppá 120þ max. Helst þriggja herbergja en tveggja dugar líka ef íbúðin er vel skipulögð.

Ideal staðsetning er 107,nes,101,104 eða eitthvað annað hagstætt í rvík eða í kóp og Garðabæ.

EF EINHVER VEIT UM EITTHVAÐ. PLÍS LÁTIÐI MIG VITA


Makúlæ Kölkin

Þá erum við feðgarnir orðnir einir heima!

María farin til Ítalíu í viku með Minervu vinkonu sinni.

Við vorum ekkert að tvínóna við þetta og skelltum okkur strax á KFC eftir að hafa skutlað þeim útá völl.

Skoðuðum svo tvær íbúðir og buðum í aðra þeirra. Bíðum eftir svari sem kemur í kvöld.

Svo er bara að sleppa af og hafa það kósí. Horfa á fyrsta leik íslensks landsliðs í fótbolta á stórmóti kl 17. Svo er LP að keppa á eftir. Good times.

Kíkjum svo í mat til ma&pa í garotabea (eins og spánverjinn skrifar það).


holukeppni

Síðasta stórmót sumarsins er svo um næstu helgi. Íslandsmótið í holukeppni útá Kiðjabergi.

Á laugardeginum er fyrst leikið í 64 manna úrslitum svo 32 manna.
Á sunnudeginum er svo fyrst 16 manna úrslit svo 8 manna.
Mánudagurinn fer svo í undanúrslitaleikina og svo bæði úrslita og um 3.sætið.

María er að fara til Ítalíu á morgun og verður í viku þannig að þetta verður soldið erfitt fyrir mig. Get ekkert æft útaf Sebastian.


2.dagur 5.stigamóts GSÍ

Spilaði þokkalega í dag. Það var brjálaður vindur og kúlurnar titruðu og skulfu á grínunum, en hreyfðust samt aldrei úr kyrrstöðu. Þannig var mótinu ekki frestað.

Spilaði á +11 en +12 í gær. Í gær var það mjög lélegt en í dag var þetta bara fínt skor.

Var á 82 sem sagt og í ljósi þess að aðeins 5, bæði í kk og kvk flokki póstuðu skor undir 80 þá var þetta bara fínt skor.

Skolli var eiginlega bara par í dag.

Það var ógó skemmtilegt að spila í dag. Spilaði með Guðjóni Inga og Hjalta og skemmtum við okkur konunglega. Einn af betri hringjum sumarsins.

Til marks um styrkleika vindsins þá sló ég t.d. einu sinni 190mtr með 8 járni í meðvindi. Svo einu sinni um 110mtr með pönsuðum fjarka í mótara.

Endaði í 26.sæti af 57 spilurum sem er aðeins betra en miðjumoð. Hringurinn í gær reif mig náttúrulega soldið niður.

Bara ósáttur með að Alfreð hafi ekki unnið. Hann er samt orðinn efstur á stigalistanum og þ.a.l bestur á Íslandi sem er frábært hjá honum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband