Leita í fréttum mbl.is

At the drive in

Er að fara í gegnum At the drive in efnið. Þetta er svo mikil tímalaus klassík. 

Hápunktur á mín 2:40 í neðangreindu lagi 

Þetta kikkar inn á mín 1:15 


það þarf að skoða þetta

Fórum með bílinn í skoðun. Rauk í gegn. Það tók manninn sirka 7-9 mín að fara yfir bílinn. Skoðaði allt í krók og kima. Mældi hitt og þetta.

Þetta kostaði um 8000 krónur!

Hvað er málið með það!

Þetta er svo ótrúlega einföld þjónusta. bara skoða bílinn. Krefst ekki mikils kostnaðar af þeirra hálfu.

Af hverju þarf að rukka svona rosalega mikið fyrir skoðun?

Um 1000kr per mínútu.

Það þarf eitthvað að endurskoða þetta! (bada bing)


Dótabúð og pabbinn

Fórum með dósir í endurvinnslu. Sebas fékk peninginn. Hann var yfir sig ánægður.

,,ég á pening til að halda veislu!"

sem mér fannst mjög fyndið komment. Og áhugavert.......því þetta verður þá frekar tight budget veisla því 1200kr duga kannski rétt fyrir snakk poka og nokkrum kókómjólkum.

Við ákváðum frekar að fara í Toys R Us og kaupa okkur bíl.

Hann sá strax bíl við sitt hæfi. Hann heitir Fresco og er vondi kallinn í Cars 2

Ég hafði planað að verja þarna góðum tíma inn í Toys... því mér finnst nefnilega frekar skemmtilegt að skoða dót.

Nei, nei, minn maður vildi bara drífa sig út til að leika sér með bílinn.

Beta hafði skutlað okkur og planið var að vera þarna í sirka 20-30mín.

Ég var því alltaf að sýna honum fleiri bíla en hann svaraði yfirleitt á þá leið að allt væri ,,ekki töff" og ,,ljótt". Í þeim tilgangi að ég myndi hætta þessari vitleysu og drífa mig út.

Ætli það sé ekki frekar sjaldgæft að barnið í dótabúðinni sé að reka á eftir pabbanum. Ég bauðst meira að segja til þess að kaupa annað dót fyrir hann. Svona þeytivindsþyrlu-ma-thing-a-ma-jiggí. Mig langaði sjálfum frekar mikið í þetta.

Sebas neitaði mér.

,,nei takk pabbi, förum bara"


linguistical

Sebastian er orðinn altalandi bæði á ísl og spænsku.

Eftir að hann kom heim úr fríi frá Spáni þá breyttist þetta. Ekkert lengur feiminn við að tala spænskuna.

Heppilegt að Beta kann líka spænsku.

Hann er meira að segja farinn að tala upp úr svefni á spænsku.

Fyrst sagði hann

,,það er svo gaman að vera í töffarabuxunum"

Svo seinna sagði hann

,,vamos al coche"

Væri gaman að vera fluga á vegg í draumunum hans


Ekkert mál

Fórum á Prikið í löns. Beta, ég og Sebas.

Ég fékk mér ,,Jón Páll"

Ég sagði Sebas söguna af Jóni Páli og honum fannst það merkilegt.

Hann vildi youtjúba hann um leið og við komum heim.

Sáum brot úr myndinni um Jón Pál og fleiri aflraunar vídeó.

Hann varð heillaður af sterkasta manni í heimi

Ég sagði honum að Kasmeyerinn væri vondi kallinn(sem hann var).

Svo sagði ég honum að Jón Páll hefði dáið. Honum fannst það ekkert síður merkilegt. Vildi sjá það á youtube.

Þá var nóg komið og ég skellti Cars 2 á fóninn.


hor

Ekkert vandræðalegra en að tala við einhvern og sá er með áberandi hor eða matarleif.

Lenti í því í morgun. Talaði við lækni sem var greinilega nýbúin að snýta sér.

Þekkti ekki manneskjuna nógu vel til að benda henni á horið.

Var samt í vafa.

Fokk!

Man ekkert hvað hún var að segja varðandi málefnið. Eins gott að það var ekki eitthvað lífshættulegt.

Einstaklega óþægilegt.


David Bowie skór

Hápunktur dagsins......Sebastian kominn í alveg eins skó og ég.

David Bowie skór. Rauðir. nr 27.

Eintóm hamingja hjá feðgunum


Nýr ás

Á von á nýjum ás í hús

Tour Burner
9.5
Matrix HD6 stiff

Ætti vonandi að spinna minna en R9

Gaman að fá nýtt dót!


sumir eru ekki meðetta

Ætli einn ofnotaðasti frasi íslenskrar tónlistarsögunnar sé ekki

,,eru ekki allir í stuði!"

Horfðum á N4 í gærkvöldi. Þar var útsending frá ,,Ein með öllum" frá Akureyri.

Rúnar tónlistarmaður kom m.a. fram og tók nokkur lög.

Hver er tilgangurinn með því?

Tók nokkur tökulög.....eins og t.d. Mrs Robinson og fleiri.

Af hverju ekki bara að leyfa upprunalegum flytjendum að sjá um þau lög og taka eitthvað frumsamið?

Ef ég vildi hlusta á Mrs Robinson þá myndi ég bara hlusta á Simon & Garfunkel!

Rúnar tónlistarmaður.......Hvar er skemmtanagildið í því?

Betri var þó Ingó Veðurguð. Hann söng þó frumsamin og skemmtileg lög. Hafði eitthvað til málanna að leggja.

....og hann sagði ekki ,,eru ekki allir í stuði!" sjöhundrumogfimmtíu sinnum.


dats ræt!

paper

þetta er soldið ég

...

Brekkusöngur hvað?

Brekkusöngur. Árni Johnsen. Gleði. Fjör. Hápunktur versló. Ég hef aldrei upplifað þetta. Við Beta villtumst inn á rás 2 í gærkvöldi og viti menn! Það var verið að útvarpa frá eyjum! Við sperrtum eyrun og létum þetta rúlla. Fyrst heyrðum við í Bubba....

too spoon?

...

Skyldueign!

Dræver sem virkar best ef maður öskrar í högginu! Verð....að fá mér svona.

Ný könnun

Síðasta könnun fór þannig að slatti borðar hafragraut, jafn margir seríós og bara nokkrir coco puffs. Nokkuð heilsusamlegt bara Þessi nýja könnun spyr hvernig maður drekkur vökva. Pælingar sem eiga við færsluna hér að

Listin að drekka

Listin að drekka! Ég sýp drykkin oftast upp í munninn með lokað fyrir hálsinn svo ekki renni niður. Þannig finn ég bragðið og nýt drykksins. Kyngi svo niður. Ástæðan fyrir þessum pælingum er að ég tók eftir því að Beta sýpur drykkinn og kyngir um leið....

Japanir eru sniðugir

(Margmiðlunarefni)

Even Steven

Lét mig hafa það að fara út í morgun að spila í rigningunni. Hitaði ekki upp og bógaði mig því áfram fyrstu holurnar. Svo hitnaði maður og skellti í lás. skolli,par,skolli,skolli,par,par,par,par,par = +3 par,fugl,par,par,fugl,par,par,fugl,par = -3 Rétt...

Maður framtíðarinnar

Mér finnst ég stundum vera uppi á vitlausum tíma. Mér finnst eins og hugur og búkur eigi heima í framtíðinni. Allavega á þeim tíma sem ýmsir hlutir eru taldir sjálfsagðir. Til dæmis finnst mér viðbjóðslega leiðinlegt að ekki sé búið að finna upp ferðalög...

Golf á morgun?

Laus tími með mér á morgun kl 9:40 Nennir einhver að koma með mér í Leirdalinn?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband