Leita í fréttum mbl.is

Dinner....AND a show

Ég er heima með DK. Hann sofnar yfirleitt kl 11 og pínu yfir hádegi. Þá fæ ég mér eitthvað í gogginn. Sest fyrir framan tölvuna með matinn og kveiki á þessu 

Þetta er podcast frá útvarpsþættinum þeirra Ricky Gervais og Steve Merchant

Oftast er það þannig að þeir Ricky og Steve gera stöðugt grín að Karl. Sem mér finnst fyndið

Þarna eru þeir að lesa dagbókina hans 


plan

Planið er að ná í Sebas, kaupa kjötbollur og svo alvöru bollur í eftirrétt.

Planið er að vera pakksaddur þegar ég kaupi þessar bollur. Því annars gæti farið ílla.

Lykilatriði að kaupa ekki nammi þegar maður er svangur. Þá endar maður alltaf með fulla haldapoka af gumsi.

Fengum smá forskot í gær. Sporðrenndum nokkrum kvikindum hjá tengdó.

Eitt svolítið merkilegt. Beta vill fá þær eins plain og hægt er. Netta gerbollu með engu á milli og svo smyr hún pínku sultu á milli.

Weird

Ég vil þær sem mest djúsí með allskonar drasli ofan á.

Hún er eins með snúða. Hún biður alltaf um snúðinn með sem minnsta kreminu og borðar svo yfirleitt allt nema miðjuna! Sem hún gefur mér.

Ekki er ég að kvarta. Þetta hentar okkur einstaklega vel. Pössum vel saman.


Sebas

Sebas er alltaf á fótboltaæfingum á sunnudögum. Svo þegar hann er hjá mér, sem er helmingur tímans, þá spilum við alltaf fram á gangi. Fyrst leik uppá 10, svo 5, svo 2.

Þjálfarinn sagði við okkur í morgun að hann væri orðinn frekar góður og vildi fá hann á æfingu með eldri krökkum.

KJELLINN!!!!

Ég man nefnilega þegar við Sebs vorum að byrja í þessum bolta hérna frammi á gangi að þá réð ég alveg ferðinni og stýrði leiknum. Núna er hann actually að vinna mig þegar ég reyni alveg á mig. Stundum.

Hann fattar að skjóta í hornin og slíkt

Ég er soldið stoltur af honum. Flott framför.


kveðja

Ég heyrði að það væri einhver kjéllingadagur í dag

Til hamingju Manchester United!


eyra

Sá gaur með eyrnalokk um daginn

Fór að velta fyrir mér............HVER GENGUR MEÐ EYRNALOKK!!!!!!!!

Man þegar þetta var heitt....in ðe næntís

núna........not so much

ekki nema þú sért kannski einhver brjálæðislega töff týpa sem getur púllað það

Algjört nó nó að vera bara regular random gaur með lokk. Þá ertu annað hvort gay, þjóðverji eða bæði!


TV

jei, erum skyndilega með allar stöðvarnar.

Fysta sem ég sé er E channel

Fyrsta sem ég sé á E channel er Chloe Kardassían hjá kvennsjúkdómalækni þar sem læknirinn var að þreifa á leginu hennar!

Hún með útbreidda leggina og allt legið sést á skjánum!

Ég skipti yfir á poker stöðina

Samt þokkalega ánægður að vera ekki með allar þessar stöðvar að staðaldri.

Stundum dettur þetta allt í einu inn. Og dettur svo aftur út.

Það er neikvæð fylgni á milli mín og sjónvarps. Þegar rásirnar detta inn, þá dett ég út.


RIP

Þó mikið sé talað um þessa hræsni varðandi dauða Whitney Houston. Af hverju fólk undarlega allt í einu fíli hann í tætlur (Það er alltaf þannig. Everybody loves you when you're dead.)

......að þá breytir það því ekki að manneskja dó.

Finnst þetta homage vera allt í senn, cheesy, flott og magnþrungið.

Chris Cornell að syngja Dolly Parton slagarann I will always love you 


fyrir áhugasama

Allt Allt að tala um plötuna sína.

tónlistarperra stöff 


Allt Allt

Föstudagslagið Remix af Everything Everything laginu Photoshop Handsome Ef ég kynni að dansa þá væri ég að því núna!

Ljómandi

ÓMEN!!!!!!!!!!! Ég elska að uppgötva nýjar skemmtilegar hljómsveitir Grouplove Tékkit át Skemmtileg indí rokk skotin sveit Soldið modest mouse meets everything everything meets arcade fire Fíl it big time Myndi fyrst tékká laginu Colours. Það er...

meme

Ég var í stuði í gær. Eyddi bróðurparti af kvöldinu talandi í meme-sum Vinsælast var ,,close enough" og ,,mother of....." Fyrir þá sem ekki vita hvað meme eru þá eru hér nokkur stykki Sjást betur hér

Sleigh Bells

Er búinn að vera að hlusta á nýju skífuna frá Sleigh Bells sem heitir Reign of terror. Hún er góð Mæli með að byrja á "End of the Line" og "Leader of the Pack" Láta það aðeins malla og færa sig svo yfir í Born to lose og You lost me Láta það aðeins malla...

útskýringar Sebas stæl

Talandi um að útskýra hluti fyrir börnum Nýlega útskýrt: -muninn á rigningu, snjó og hálku -af hverju sumir eru í hjólastól -af hverju það er dónaskapur að horfa of lengi á fólk -að sjálfsmark telur(þurfti að fara á youtube til að sýna honum fram á það)...

Börn....og aðrir minna........

Sebas fór til tannlæknis í dag Frábær stelpa sem hann fer til nema hvað........... Ég fór að pæla. Krakkar eru trítaðir svo rosalega barnalega. Skiljanlega hugsa sumir. En það sem ég meina er að um leið og þú gerir hlut að einhverju dramatísku dæmi að þá...

fórnarkostn

Við eigum Toytota Verso sem er góður bíll Nema hvað........hann er ekkert skemmtilegur! Í snjó og hálku þá er ekkert hægt að neina ullara og hamlara! Alltaf eitthvað kerfi sem tekur yfir og gerir mann öruggan Jei Öruggur Skemmtilegt vs öruggur?...

Back and Forth

Sáum Back and Forth sem er heimilidarmynd um Foo Fighters Hún var frábær Dave er svo skemmtilegur gaur Líka alveg merkilegt með hann. Hann verður myndarlegri með aldrinum. Ekki ósvipað og Björn Jörundur. Þeir sem hafa pínu áhuga á Foo.......þá er þetta...

Dot vs LP

Ómen! Ég tók djamm session með Epiphone Dot Studio gaurnum í gærkvöldi Geðveikur hljómur! Mun betri en minn gítar Held að það séu nú bara þessir pikköppar Gítarinn sjálfur er mun síðri. Þá meina ég smíðin. Frágangur, stilliskrúfur og slíkt. Held ég...

gúrka

Færsluskortur í dag Andagiftin kom seint í heimsókn stundum er það bara þannig Bless

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband