Leita í fréttum mbl.is

Hvítir....svartir....asískir

Eru til einhverjar asískar rokkstjörnur?

Come to think about it.......eru einhverjar asískar tónlistarstjörnur til í einhverjum geira nútímatónlistar?

Þá meina ég á heimsmælikvarða

nei bara svona að pæla

Það eru meira að segja grunsamlega fáir svartir rokkarar

Mér detta bara Lenny Kravitz og söngvarinn í Bloc Party í hug. Svo voru Living Colour í gamla daga og náttúrulega Hendrix. Hootie and the blowfish eru ekki rokkarar. Skulum hafa það alveg á hreinu.

Merkilegt


er komið vor?

Ég og Beta erum sammála um að það sé vorlykt í loftinu

Þó það sé snjór úti að þá get ég svarið að það er komið vor!

Allavega einhverskonar pre vor-forréttur

óskhyggja?


Jón Baldvin

Mér finnst sorglegt hvernig fjölskylda Jóns Baldvins er að reyna að downplaya allt sem gerðist.

,,Fjölskyldumál" er eitthvað sem þau segja gjarnan

uuuu þetta hætti að vera fjölskyldumál þegar hann var í opinberum erindagjörðum (mínir skattar) út í Eistlandi með vændiskonum og sendandi 18 ára stelpum bréf.

Svo eru þau eitthvað að reyna að sópa þessu undir teppið með því að segja ,,já já, þetta var bara pínu dómgreindarleysi". UuuuuuuuuJÁ! heldur betur.

Nýjasta útspil fjölskyldunnar er að kenna Ingibjörgu Sólrúnu um aðfarir gegn Jóni Baldvini!

Í fyrsta lagi.....WHAT!

Í annan stað........kennan henni um? Þið meinið, að segja frá þessum staðreyndum? Ef það væri svo, þá myndi ég nú bara líta á það sem vel gert Ingibjörg. Skiptir engu máli hver bendir á brot eða segir frá. Það tekur ekki athyglina frá þeim brotlega.

Í þriðja lagi þá efast ég um að hún sé á bakvið eitt né neitt. Er þetta ekki bara greyið stelpan að reyna að fá niðurstöðu í eitthvað sem er viðbjóðslegur blettur í hennar lífi?

Step up your game Balvin klan


.......allt spurning um tímasetningu

....og talandi um fyrirsjáanleika

Ef þú vilt ná mér hressum þá eru eftirfarandi tímar bestir:

-Hálftíma fyrir matartíma(ekki enn svangur, ör, hress og reiti af mér brandara)
-Rétt eftir matartíma(ekki jafn hress og ör, en samt glaður)
-Rétt fyrir svefninn (galsi like you´d never believe)
-Þegar ég tek tvist (best að hringja bara)

Tímar til að forðast að tala við mig

-Nývaknaður (Mode:Kill everything that speaks or looks at me)
-Þegar ég rekst á svengdarvegginn (vannærður og þurfandi)
-Eftir hálftíma í verslunarmiðstöð (það slokknar á mér, meika ekki svona umhverfi í langan tíma)
-Þegar ég er að lesa bók (don't. Just. Don't)


Simply Red

Ég er mjög fyrirsjáanlegur

Ég er t.d. alltaf eiturhress og í ljómandi stuði þegar það er sirka hálftími í að ég verði svangur

Ég vil meina að þetta sé skylt formúlubílum. Fyrst eru þeir fullir af bensíni og hægir, svo þegar þeir eru alveg að verða bensínlausir þá fara þeir hraðast og eru bestir.

Ég er þannig. Þegar ég er alveg að verða bensínlaus þá reiti ég af mér brandara og er hoppandi stuðbolti.

Svo allt í einu hleyp ég á vegg. KABOOM!

Þá verð ég svangur og vannærður


Kúkur

Það jafnast ekkert á við að koma við annars manns kúk

Það gerðist í dag

jei

Ég kenni Betu um að hafa ekki fest bleyjuna nógu vel á barnið


Þetta er búið. Farðu heim Axl

Þetta er svo sorglegt. Bandið er þétt í þetta skipti en röddin í Axl er bara því miður búin. Hann ætti frekar bara að einbeita sér að stúdíó upptökum. Getur fiffað þetta þar. En ekki live. Því miður.

Er þetta ekki bara ástæðan fyrir að hann fór í felur í 15 ár og vildi ekkert gera?

Þykjast vera eitthvað rosa fúll, en getur svo bara ekki lengur sungið.

Case Closed 


söngur

Ég verð að segja að það er nú ekki mikil sannfæring í þessum söngvum sem krakkarnir syngja til að fá nammi

Vinsælt er að syngja mugison stingum af og svo blár ópal

Allt mónótónískt og rammfalskt

Ég spurði hvort ég gæti fengið stingum af í R&B útsetningu

stelpurnar horfðu á mig eins og ég væri uppvakningur. Slík var hræðslan

Sem betur fer þá var ég nú eiginlega allan tíma inni í mælingum. Ef ég hefði verið frammi þá hefði ég vinsamlega beðið krakkana um að steinhalda kjafti og gefa þeim pínu nammi til að spara báðum aðilum tíma.

Enginn tilgangur með þessum lögum. Það er ekki eins og krakkarnir hafi gaman af þessu. Skíthrædd og nánast muldra lögin svo maður varla heyrir textann.

Take the nemmi and go!


Ninja

Ég skutlaði lítilli ninju á leikskólann í dag Við vorum eitthvað seinir og hlupum því að hurðinni. Hún var læst. Allir krakkarnir komnir í húsið við hliðiná. Í þessu kom lítill Svampur Sveinsson Þar sem allir voru að flýta sér þá sagði ég þeim bara að...

gaur

Gaurinn glaðvaknaði kl 1 í nótt Var ekkert að nenna að sofa lengur Þannig að ég fór fram með hann og leyfði honum að sprikla Reyndi að svæfa hann aftur kl 2 það tókst með herkjum Það hefði ekki verið neitt mál nema hvað að í kjölfarið byrjaði mig að...

Mælingar

Skrepp aðeins úr orlofi í dag til að mæla fólk í Golfskálanum. Er með bókaða tíma frá 10 og eitthvað frameftir degi Gaman af því

CX er málið í dag

Dropbox er out.....CX er inn Ef þú ert eitthvað að deila myndum, músík eða stöffi með öðrum á netinu þá er CX málið í dag. Maður fær strax 10GB af plássi (10.3 GB ef þú notar linkinn minn hérna að neðan). Sé ekki í fljótu bragði af hverju fólk ætti EKKI...

Tyler og ungu böndin

Er með kassa fullan af gömlum gítarblöðum inn á klósetti. Gríp í blöðin við tækifæri. Tók mér Metal Hammer frá 1991 í hendur og rakst á eitt helvíti gott komment frá Steven Tyler úr Aerosmith ,,The difference between Aerosmith and young bands is that...

Draumar

Mig dreymdi drauma í nótt. Báðir vondir. Einn samt verri. Fyrst dreymdi mig að mér var rænt af hryðjuverkamönnum í Kringlunni. Ransom og læti. Ég slapp samt eftir að hafa verið sniðugur og snar í snúningum. Stoltur af sjálfum mér. Svo dreymdi mig að ég...

farangur

að eiga krakka er algjört operation Ég man þá tíma er maður gat parkerað bílnum, stigið út, og labbað tómhentur upp í íbúð. Núna er maður alltaf klifjaður af allskonar dóti. Skiptitösku, bílstól, sofandi Sebastian, oftast bónuspokum og svo einhverju...

Samræður

Þegar ég næ í Sebastian eftir að hafa ekki séð hann í nokkra daga þá eru fagnaðarfundir. Hann samkjaftar ekki. Það er svo mikið sem hann vill segja mér. Ég kemst vanalega ekki að nema bara til að segja ,,mhm", ,,Já" eða ,,ok". Til að gefa dæmi þá er...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband