Leita í fréttum mbl.is

krípí gaur þarna fyrir aftan

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=315046

...and it´s a bittersweet simphony that´s la haaf.

Þá er það á hreinu að Liverpool vinnur ekki ensku úrvalsdeildina þetta árið. Þeir eru samt á virkilega góðu stað í þróuninni og munu rústa þessu á næsta ári. Það er á hreinu.

Þessi ósigur er svolítið bittersweet fyrir mig. Jú, LP tapaði titlinum EN Arshavin setti fernu og ég er með hann í fantasy HELL YEAHHHHH

Skammtíma vellíðan en hey, ég hef nú alltaf verið manneskja til að kunna betur við hamingju dagsins í dag heldur en morgundagsins, sbr sykursnúðaát og slíkan ófögnuð.


It's Five O'Clock Somewhere

Er að endurlesa sjálfsævisögu Slash, fyrrum gítarleikara GNR. Taumlaus skemmtun og ég þreytist ekki að lesa um svaðilfarir þessara töffara.

Ég las líka á sínum tíma sjálfsævisögu Axl Rose og athyglisvert er að bera þessar bækur saman. Axl reynir að dissa Slash en Slash virðist vera mjög sanngjarn og talar mikið um hve Axl er mikill snillingur en talar líka um allt sem miður fór hjá Axl.

Eins og allir vita andar köldu á milli þessa tveggja snillinga, aðallega þó frá Axlarbirninum því Slasher gæti ekki verið meira sama.

Slash var (og kannski er) dópisti og fylliraftur sem er með "couldn´t care less" attitude en var ávallt mikill fagmaður og kom aldrei of seint á tónleika og var alltaf til staðar við upptökur á tónlist. Alltaf til staðar en oftast wasted og rokkari í húð og hár.

Axl var lítið í sukkinu miðað við Slash,Duff og Steven/Matt og einangraðist því soldið frá þeim. Hans galli var að vera hyper emotional og taka öllu smávægilegu of alvarlega. Hann var ekkert of wasted en þess í stað mætti ávallt of seint (allt að þrem tímum of seint á tónleika) og oft mætti bara yfir höfuð ekki á staðinn. Stjörnustælar.

Axl er klárlega betri lagahöfundur eins og sést ef borin er saman nýja Guns platan og Velvet Revolver og sóló ferill Slash. En Axl er samt maðurinn sem eyðilagði GNR því hann vildi meira píanó og syntha þegar hinir vildu bara Rokk og ról. Axl byrjaði líka að taka frekju ákvarðanir og skipa öðrum fyrir verkum.

Ég veit ekki hvor fær mitt atkvæði. Báðir hafa cons, Slash er dópisti og Axl er ególómaniac. Báðir hafa pros, Slash er fagmaður og vinnur vinnuna sína þrátt fyrir að vera wasted og Axl er betri lagahöfundur og klárlega hjarta GnR.

hmmmmmm.....soldið farið að minna á plötukynningar Sigurjóns Kjartansonar.


mini golf

Það er skemmst frá því að segja að María vann mig í mini golfi. Can´t catch a break here........

Hún fór holu í höggi þrisvar á meðan ég fékk 3-5 högg á sömu holum. Hún er náttúrulega viðbjóðslega heppin og ég mun lögsækja staðinn í kjölfarið fyrir að mismuna.....mér.

Skorin eftir 18 holur voru 53-56 henni í vil. Sebas rak lestina með 3546 högg.

Þetta er flottasti mini golf staður sem ég hef séð. Fer ekkert fyrir honum og hef keyrt þarna framhjá milljón sinnum án þess að taka eftir honum. María hins vegar sá hann og dreif okkur öll þangað í tilefni afmælis Sebastians.

Það var steikjandi hiti og ég í peysu. Gat ekki farið úr henni því bolurinn undir var með þrem blettum, súkkuðulaði, sulta og súkkulaði. snyrtó.

ps. þegar ég kom heim þá var hvítur blettur á peysunni. Við höldum að þetta sé fuglaskítur.


þetta fannst mér sniðugt

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=314915

Nýjar myndir

indeed. Á myndabloggi hér til vinstri eru komnar nýjar myndir í albúm 15. Við erum að tala um sirka 30 eðal myndir af m.a. mini golfinu í dag, sundspretti mæðginana í gosbrunninum og ammæli Sebas hjá tengdó.

Slatti af myndum og allar heimsklassa. Þeir sem ekki eru með lykilorð hika ekki við að senda mér beiðni og það kemur að vörmu spori.

Við fórum í mini golf og fengum okkur djús eftir hringinn

 


Úln

Er heima að hvíla. Spilaði seinni hringinn með úlnliðin mjög sáran. Er enn að drepast í honum. Held að þetta sé bara ofnotkun. Vona það. Þá ætti þetta að hjaðna á nokkrum dögum.

Er að reyna að koma Mjása til Íslands án árangurs. Hringdi í Icelandair cargo en þeir geta ekki neitt, heimsferðir vilja ekki flytja dýr og ekki SAS heldur.

Held áfram að reyna.


Sebastian Sigursteinsson Varón

Sonur minn er tveggja ára í dag. Hann lengi lifi, húrra,húrra,húrraaaaaa.

Hann fékk gjafir og slíkt hjá tengdó í dag. Þegar ég spyr hann hve gamall hann sé þá svarar hann "DOS".

Hann hljóp á móti mér og hoppaði í fangið þegar ég skreið inn í kotið. Það var ljúft. Hann var æstur að sýna mér allt nýja draslið sem hann hafði fengið að gjöf. Hæst bar stafrófshjól og bíll.

Hann var í fangi mínu þangað til hann þurfti treglega að hverfa í bólið. Notaði svo öll trixin í bókinni til að kalla á mig til sín. Vatn, piss, náði að opna skúffu og fylla rúmið að nærfötum Maríu. Allskonar trix í erminni.


Golf

Lélegt skor endurspeglar það sem ég hef áður sagt. Ég spila ekki nógu mikið golf. Ég hef allavega enga aðra skýringu á þessu. Það eina sem ég hef breytt er að ég æfi meira og spila minna og skorið hefur farið hrakandi.

Mér finnst ég vera mun betri spilari. Ég er solid af teig, solid járn og ágætur í kringum grínin. En samt erum við að tala um 1-4 högg á hring sem kosta mig högg.

Í dag var ég t.d. á +4 eftir 11 og nokkuð sáttur við ágæta spilamennsku á erfiðum grínum. Tók svo eitt upphafshögg sem fór aðeins of mikið til vinstri og bakvið drasl, þurfti að vippa til baka inná braut. Þetta var erfiðasta braut vallarins, löng par 4 í mótvindi og ég átti ekki möguleika að ná gríni þaðan. Tók því bara nettan blending í lay-up. Lenti um 3 metra frá holu í innáhöggi og tvípúttaði. Steindauður dobbúl útaf einu upphafshöggi.

Næsta var 200m par 3 sem spilaðist aðeins á móti vindi. Mistök nr 2 þar sem ég tók aðeins of mikið á með tré þristi og endaði pin high hægra megin inní trjám. Þurfti að þræða nálina með 8 járni pönsi og var bara heppinn að vera inná gríni, en um 20 metra niðrímóti pútt. Steindautt þrípútt fyrir dobbúl.

Fljótt að gerast en sem betur fer held ég ávallt jafnaðargeðinu og vippaði í fyrir fugli á næstu.

Lippaði út fyrir fugli á næstu þrem og var að spila frábært golf. Endaði svo hringinn á trippúl. Par 3 uppímóti þar sem ég tók járn þrist í bönker (vantaði hálfan meter uppá að fara yfir sandinn og eiga hið fullkomna högg). Sköllaði kúluna útí skóg. Þræddi tréin en náði ekki inná grín. vipp og tvö pútt fyrir trippúl.

Það er fín lína á milli velgengni og failure. Þessi þrjú pútt hefðu mátt detta og þessi hálfi meter hefði mátt vera styttri. Þá liti þetta öðruvísi út. Þá hefði þetta verið topp 10 frammistaða í þessu móti.

En.....svona er golfið. Eftir stendur að ég þarf að spila meira og ætla því að bæta þriðja hringnum við á viku. Mánud-fimmtud-og laugardaga.


Huelva

Kominn heim eftir ferðalag til Huelva. Fór á föstudaginn og enduðum á gistiheimili Ignacios eftir 3 tíma plús 1 í tíningi. Fundum ekki þetta god forsaken þorp og ráfuðum allt í kringum Huelva í einn tíma. Tókum svo æfingarhring og vorum sammála um að...

Bellavista

Jæja, er farinn til Huelva til að taka þátt í tveggja daga móti á Bellavista Golf. Tek æfingarhring í dag um kl 14 og svo byrjar mótið á laugardaginn. update kemur á sunnudagskvöld. Bið ykkur vel að lifa

Ástþór Magnússon

Smellið hér til að hlusta á viðtalið við Ástþór á rúv Er Ástþór hunsaður snillingur eða bara rugludallur? Eru ekki flestir maestros mannskynssögunnar soldið kúkú? Og eru svo betur metnir eftir þeirra lífdaga og þegar nægur tími er liðinn til að sjá...

Flex

Myndiru frekar kaupa rúm ef þú sæir konu fæða barn í rúminu? Hélt ekki. Hér á Spáni er auglýsing frá Flex sem sýnir konu fæða barn heima hjá sér í þessu yndislega rúmi. Það sést nánast allt, sullið og allt. Eru þeir eitthvað heimskir. Halda þeir...

Mjási

Hvernig förum við að því að flytja Mjása aftur til Íslands? Heimsferðir vilja ekki flytja dýr og við eigum bókað flug með þeim í sumar. Hjálp Er einhver sem flýgur með Iceland Express eða eitthvað beint flug til spánar sem getur tekið hann tilbaka? Hjelp...

ÐÆÞ

Mér dettur ekkert fyndið í hug. Ekkert gáfulegt og ekkert fróðlegt. Þannig að ég gríp bara til örþrifaráða og leita í eitthvað sígilt og eitthvað sem á alltaf við á góðri stundu. Hvað er brúnt, hreyfist og vekur lukku hvert sem það...

Leyndarmálið upplýst

Þá er það á hreinu. Svona er þetta gert. Smellið á neðangreindan hlekk til að komast að leyndarmálinu á bakvið tæknina sem stýrir músinni. http://2006.1-click.jp/

Litle did Rupert know....

see more Lolcats and funny pictures

form

Það er alveg á kristaltæru að síðan ég gékk úr La Cala klúbbnum og þ.a.l. spila ekki jafn mikið, hefur formið hrakað mjög. Þá meina ég leikformið. Þegar ég var félagi og spilaði sirka 5-6 sinnum í viku þá var ég að leika í kringum parið. Núna spila ég...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband