16.9.2010 | 18:05
Ísland
Spennan magnast í íslensku deildinni þar sem fjögur lið geta staðið uppi sem sigurvegarar.
Ég held með ÍBV af þessum fjórum liðum því Albert markvörður er maður systur minnar.
Óska úrslit eftir daginn í dag væri ÍBV sigur og upp í 39 stig. FH tapa og halda sig í 35 stigum. Jafntefli hjá KR (35 stig) og Breiðablik (38 stig).
hmmmm efni í nýja könnun kannski
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2010 | 21:34
Ný könnun
Burstar þú tennur fyrir eða eftir morgunmat?
hmmmmm?
ég geri það vanalega fyrir. Minnir mig.
Með Amazon bækurnar....það var öllum drullusama þannig að lítil þátttaka var í síðustu könnun. Bækurnar ekki enn komnar 15.sept.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2010 | 15:26
Misviljun
Ég keyrði í gegnum miðbæinn og sá Günther úr Friends, Daníel Ágúst úr NýDönsk og Lalla Jóns með þriggja mínútna millibili!
Tilviljun eða eitthvað stórkostlegt plott?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2010 | 15:24
Tannsi
Fór með Sebas til tannlæknis í fyrsta sinn. Það var stórkostleg upplifun. Djöfull er þetta orðið allt annar heimur síðan ég fór í fyrsta sinn í stólinn hjá Sturlu tannlækni á Blönduósi.
Biðstofan var eftirmynd af Leitin að Nemo. Flott fiskabúr með öllum karakterunum úr myndinni inn í flottu kóralrifi. Sebas apeshittaði af spenningi.
Svo var siggi tannlæknir svo rosalegu svalur á því. Gerði þessa fyrstu ferð hans að algjörri upplifun. Límmiðar hægri og vinstri og allskonar stöff til að gera þetta sem allra skemmtilegast.
Mæli með Tannlæknunum í Glæsibæ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2010 | 10:17
VindaMyndir
fórum út í gærkvöldi út í vindinn til að taka myndir. Settum að sjálfsögðu Sigur Rós af stað er við keyrðum upp rampinn úr bílakjallaranum til að byggja upp rétta stemmingu.
Þetta var mjög dramatískt þar sem ég keyrði í takt við tónlistina undir beljandi vindinum. Ég tímasetti beygjur og slíkt eftir því sem var að gerast í laginu þannig að þetta var áhugaverð ferð.
Náðum nokkrum killer skotum í þessum ljósaskiptum sem voru að eiga sér stað kl 20.
Frægust verður sennilega röð hreyfimynda sem teknar voru undir Öskjuhlíðinni. Við hendum þessu inn á FB innan skamms.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2010 | 12:09
Sóló í lúðrasveit
Ég var í Lúðrasveit Blönduósar í gamla daga. Spilaði á Barítón. Sem er eins og túba nema mun minna. Stóð alltaf aftast við hliðina á túbunni sem Bjarni Magnús spilaði á.
Í hljómsveitinni á þessum tíma voru öngvir aukvissar skal ég segja ykkur. Kjartan Sveins úr Sigur Rós, Einar Jóns úr Í svörtum fötum og svo að sjálfsögðu íþróttarhetjan og skáldið...ég.
Ég man að í prógramminu hjá okkur var slot þar sem ég tók sóló í einu eða tveimur lögum. Var tekinn fremst og allt. Ég man að það var stressandi að standa þarna fremst og vera sóló artistinn heilt lag.
Einu sinni fórum við sem fulltrúar Íslands til Svíþjóðar að keppa á alþjóðlegri lúðrasveitarkeppni. Það var upplifelsi.
Ég varð skotinn í stelpu sem þarna gisti í sama skóla og við. Einu sinni þegar við vorum að koma fram í einni verslunarmiðstöðinni þá neitaði ég að taka sólóið mitt því hún var þarna að horfa á. Skarphéðinn hljómsveitarstjóri leyfði mér að komast upp með það eftir smá fund.
Það er svona að vera stjarna.
Ég tók margt frá þessari reynslu að hafa spila í lúðrasveit. Það helsta náttúrulega að ég get fyrir vikið actually notað frasann ,,this one time, at band camp"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2010 | 11:58
Libido
Ég var einu sinni í hljómsveit. Hún hét Libido. Við æfðum í nokkra daga einhver þrjú til fjögur lög og áttum eitt legendary gigg í félagsmiðstöðinni Skjólið á Blönduósi.
Þeir sem sáu þá tónleika eru betri manneskjur fyrir vikið.
Ég söng eitt lag að mig minnir. Polly með Nirvana.
Spilaði svo á trommur í laginu Rape me með Nirvana.
Rest er í móðu.
Þetta plús lúðrasveit eru mín einu ævintýri í tónlistarbransanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2010 | 12:49
Pjakkur. Nafn með rentu.
Köttur mömmu og pabba sem heitir Pjakkur er enn og aftur slasaður. Núna er hann í gipsi á vinstri löpp.
Þessi gæji eltir uppi vandræðin því hann er nýbúinn að vera í kyrrsetu útaf brákaðri mjaðmagrind eða eitthvað álíka.
Hann er alltaf að koma heim með sár hingað og þangað.
Ég sver það! ef þessi köttur væri manneskja þá væri hann annað hvort Chuck Norris eða Steven Siegal.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2010 | 12:08
að tala við náungan
Ég elska fólk sem er opið og ekki hrætt við að tala við ókunnuga. Ég var staddur við salatbarinn í Hagkaup í morgun og var að bakstra við að setja saman eitthvað ætilegt.
Þá kemur gamall kall (yfir sjötugt) og stumrar yfir barnum og virðist ekkert vita hvað allt þetta crap sé.
Hann spyr mig hvað í helvítinu þetta sé og bendir á Vorrúllurnar.
Ég segi honum að þetta séu Vorrúllur.
Hann verður sposkur og segir að þær séu nú annað hvort allt of seinar eða allt of snemma því nú sé komið haust!
Maður að mínu skapi.
Við spjölluðum um fleiri hluti á salatbarnum eins og gamlir vinir.
Ég sakna hans núþegar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2010 | 16:01
listin að dansa til að gleyma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2010 | 15:52
listin að tengja
Bloggar | Breytt 10.9.2010 kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2010 | 12:30
Sagan af brúðkaupinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2010 | 15:17
Réttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2010 | 15:05
Ótrúlega mikill lúser
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2010 | 15:04
yup
Bloggar | Breytt 9.9.2010 kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2010 | 07:42
Réttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2010 | 20:14
Besta golfhögg allra tíma!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2010 | 16:16
Sagan af múffunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar