Leita í fréttum mbl.is

Synchronized Toothbrusing (R)

Ég er frekar góður í Synchronized Toothbrushing (R). Ég er að reyna kenna Betu og skóla hana til en fram að þessu finnst mér vanta allan takt í þetta hjá stelpunni.

Synchronized Toothbrushing (R) er listin að hreyfa sig í takt við annan sem er að tannbursta sig á sama tíma og þú. Þá stendur fólk saman í speglinum, oft annar fyrir aftan hinn, og leikur sér að allskonar hreyfingum í takt. Ýmist til hliðar, upp, niður og í raun bara allt sem manni dettur í hug. Í takt.

Varúð! Aldrei reyna þetta á morgnanna. Það eru byrjendamistök. Þá er fólk sjaldnast hresst og ekki jafn líklegt til að framkvæma þetta vel.

Fínt er að bíða eftir að það kvöldi vel og allur galsi sem oft vill koma sé til staðar. Því meiri galsi í fólki, því betri verður frammistaðan. True story.

Það sem Betu vantar aðallega núna er kreatíf. Hún apar bara eftir á þessum tímapunkti. Hún þarf bara meiri æfingu og sjálfstraust til að fara í sínar eigin hreyfingar.

Þetta kemur allt saman með kalda vatninu.


Chicken on a raft

Skemmtilegasta síða internetsins?

http://www.chickenonaraft.com

Hversu lengi endist ÞÚ þarna inni!


BÆKURNAR KOMNAR!!!!

BÆKURNAR ERU KOMNAR!!!!

Þær komu sem sagt 20.september en ekki 13. okt eins og þeir sögðu. Ég friggin vissi það. Djöfull er ég ánægður.

Við erum að tala um bókakaup aldarinnar. 7 bækur á 16þ kjéll. Og ekkert venjulegar bækur.

Bítla Anthology bókin er massívt stór og vegleg. Svona bók sem myndi kosta lámark 6500kr hérna heima en lítur út fyrir að kosta 13þ. Svo eru tvö bindi af Elvis Presley sem eru vægast sagt þykkir doðrantar og mjög veglegir. Þvílíkt ánægður með þær.

Svo er annar massívur doðrantur um klassíska tónlist. Kom mér á óvart hve þykk og flott hún er. Fer alveg í gegnum alla söguna um klassíska tónlist. Frábært yfirgrip.

Svo eru þrjár í viðbót sem eru meira svona contemporary dæmi. Ævisaga fyrrverandi trommara Guns n Roses, Steven Adler. 28 OD´s, milljón rehabs og 3 hjartaáföll segja allt sem segja þarf. Joy.

Svo ævisaga Marilyn Manson. Skyldulesning. Mjög forvitnilegt. Ekki það að ég sé aðdáandi, heldur er ég bara forvitinn um að vita af hverju hann sé svona fokkt opp.

Svo ein í lokin eftir Chelsea Handler og hennar one night stands í gegnum árin. uuuu skyldueign allra karlmanna!

Ég er þegar hálfnaður með eina bókina. Hvaða bók?

Nú auðvitað Chelsea bókinni. Kynlíf selur!


Ricky Gervais og biblían

Mér finnst þessi gæji einn sá fyndnasti í bransanum. Hann er bestur þegar hann er bara hann sjálfur og það skín best í gegn í þessum stand up sýningum sem hann hefur gert. Fame, Politics og Animals. Mæli með að fólk tékki á þeim. 


Unspoken

Eitt af betri lögunum af Hurely, nýja Weezer disknum. Ekki missa af síðustu mínútunni. 


Weezer með nýjan disk

Er að skimma yfir nýja Weezer diskinn og mér líkar bara ágætlega.Hann heitir Hurley og er afturhvarf til eldri og betri weezer tíma.

Barnalegir og einfaldir textar meets einföld gítar riff sem einhvern vegin virka bara helvíti vel.

Þetta er engin tengiskrift, bara einfaldleikinn í fyrirrúmi og gleði.Mæli með þessum disk


dagur

Skellti mér á Kónginn hérna í Grafarholtinu og horfði á Man-Liv leikinn. Ágætur leikur en ruslaralýður á svona krám alltaf hreint. Öskrandi á skjáinn eins og fábjánar og með misvitur komment til að reyna að vekja upp kátínu hjá öðrum. Dapurt lið.

Fórum svo út í góða veðrið. Kíktum í Laugardalinn og löbbuðum þar um. Fórum svo á Kjarvalsstaði og horfðum spekingsleg á öll listaverkin.

Eftir þessa hámenningu þá urðum við að róa okkur aðeins niður og tókum púlsinn á lámenningunni á Ruby Tuesday.

Pasta Chicken Alfredos. Ekki slæmt.

Í kvöld......IRON MAN!

Popp og læti.


Sunnudagur

Sunnudagar eru fallegir dagar. Er að fylgjast með Birgi Leif á Opna Austuríska núna og horfi svo á Man-Liv á eftir.

Birgir byrjaði daginn herfilega og er +4 eftir átta holur og samtals því á -1.

En núna eru góðu holurnar eftir þannig að kannski lagast þetta.

Varðandi leikinn þá eru 0,0% væntingar þannig að allt annað en tap er bara bónus. Verandi Liverpool maður þá er maður bara kominn á þetta stig. Því miður. Vonbrigði ofan á vonbrigði.

Spurning hvar maður ætti að horfa á þennan leik?


Siggi og Beta í Öskjuhlíðinni

Við fórum í Öskjuhlíðina um daginn og tókum nokkrar myndir. Í lokin var okkur soldið kalt og Beta vildi hreyfa sig aðeins. Hún lét mig því taka myndir er hún labbaði á göngustígnum. Mér fannst það instantlí fyndið og vildi líka prófa eins og vídeóið...

THIS is sparta?

(Margmiðlunarefni)

eins og sungið frá mínu hjarta

(Margmiðlunarefni)

Team Seb

Ég og Sebas tókum kringlurölt í gær. Vorum alveg í tvo tíma eða svo. Kíktum aðeins betur á Ameríska daga í Hagkaup þar sem við keyptum coconut m&m nammi, Cheeze Doodles snakk, Mnt Dew og einhvern ógéðslega óhollan morgunmat sem heitir Coockie Crisp....

mmhmmm

see more Lolcats and funny pictures

fita=heppni?

Spurning um að fita sig upp í súmóglímu þyngd til að auka líkurnar!

friggin drasl!

Hata þegar Amazon sendir pakkana mína á vitlausa staði. BÆKUR! HVAR ERU ÞIÐ!

veikgeðja

CURSE YOU AMERÍSKIR DAGAR Í HAGKAUP!!!!!!! CURSE THE HEAVENS fyrir að skapa hluti svona girnilega og ómótstæðilega. Ég labbaði inn til að kaupa mjólk, ost og banana. Labbaði út með aðeins meira en það. Vörutalning: Hi-C Smashin´ Wild Berry Hi-C Orange...

bíó

Horfðum á Shawshank redemption í gærkvöldi. Ehem........ÉG horfði á Shawshank redemption í gærkvöldi. Beta sefur bara yfir þessum háklassa myndum sem ég býð henni uppá! Þetta er náttla skandall. Shawshank finnst mér vera með þeim betri. Hafði ekki séð...

LOL

Hafið þið séð þennan trailer fyrir nýju íslensku myndina, Sumarlandið? Er verið að grínast í manni! Þetta á að vera einhver létt grínmynd. Sorglegt, er eina orðið sem mér dettur í hug. Þetta er svo ófyndið að ég er bara hlessa. Spaugstofan er fyndnari en...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband