Leita í fréttum mbl.is

Ný könnun

Ég segi nú bara....hverjum er ekki nákvæmlega slétt sama um hvort Gillzenegger hafi eitthvað með friggin símaskránna að gera!

notar einhver þessa skrá lengur? fyrir utan að rífa hana í tvennt til að sýna sig fyrir stelpum auðvitað.

Ég ætla að rigga upp könnun um hvort þú sért með eða á móti Gillz í þessu stóra símaskráarmáli.


Dagbók Karls Pilkingtons

Í The Ricky Gervais show byrjuðu þeir á að lesa dagbók Karls. Ricky fannst það vera eitt það fyndnasta ever. Jafnvel betri en Önnu Franks. 


up to date

Ég held að ég hafi bara aldrei verið jafn mikið up to date eins og núna. Var að fara í gegnum alla harða diska sem til eru á heimilinu. Gera backup af myndum og henda gömlu stöffi og slíkt.

Ánægður með það. Jæja, þá getur dagurinn byrjað. GO!


Tune up

Djöfull er ég að fíla Tune Up forritið mitt sem ég keypti í gær.

www.tuneupmedia.com

Tónlistarsafnið mitt var í fokki eftir smá vesen með iPoddinn þannig að þetta forrit kom sem himnasending.

Maður dregur bara lögin sem eru í ruglinu yfir í glugga á vegum Tune up og forritið finnur bara friggin öll þessi lög og endurskírir þau og setur allar réttar upplýsingar inn ásamt cover art. Magic!!!

Hún finnur meira að segja Geirfuglana, Bubba, Gleðisveit Ingólfs og Dáðadrengi. Hún fann samt ekki Herbert Guðmunds en kom engu að síður með tillögu um Dre Mac rappara, sem ég neitaði móðgaður.

Svo eru líka aðrir fídusar í þessu forriti s.s. að finna tónleika með grúppum í safninum þínu í hvaða borg sem er í heiminum, tölfræði stöff og fleira.

Mæli með þessu.


Futbol de locos

Sebas og ég stundum það soldið að fara í fótbolta á ganginum heima. Hann er Sergio Ramos og ég ýmist Torres eða Pepe Reina. Við erum að tala um að hann setur á sig svitaband eins og Ramos og tekur þetta alla leið(gamla svitabandið mitt sem ég notaði í golfinu).

Hann er algjört fan.

Við erum sem sagt þessir karakterar þegar við erum Espana.

Get svarið það. Það er ekki ég sem starta þessu. Hann er fótbolta óður. Gerir trix með boltann og allt. Svo ég tala nú ekki um fögnin þegar hann skorar. Hann öskrar GOOOOOOOOOL!! alveg eins og spænsku þulirnir.

Veit ekki hvaðan hann hefur þetta. Hann byrjaði að vera Ramos fan eftir að þeir hittust á Nordica Hotel þegar spænska liðið var hérna. Mynd var tekin og allt.

Þannig að hann er alltaf hann. Svo spurði hann mig hver ég væri og ég sagði bara Torres. Fæ því ekkert breytt úr þessu. Fæ líka að vera Reina ef ég er í markinu.

Svo fór hann allt í einu að vilja vera Ítalía líka (hef aldrei talað um Ítalíu við hann). Eitthvað sem hann hefur séð einhverstaðar. Hann spurði mig hver hann gæti þá verið og ég sagði Totti, hann sagði nei, ég sagði þá Inzhagi og hann sagði ok og spurði mig hver ég væri þá. Ég sagðist vera bara Cannavaro.


Bíó rýni

Horfðum á District 9 í gærkvöldi. uuuuu Hvað er að frétta af þeirri mynd!

Ekki beint okkar tebolli. Hélt að þetta yrði eitthvað sniðið fyrir Sennheiserinn, svaka hasar og læti. Nei, nei, þá er þetta bara gorí shit.

Vel gerð, jú. Mildly skemmtileg, jú. Gorí viðbjóður, uuuu JÁ.

Mæli ég með henni, nei.


Ný könnun

Hvað nær gamli Hodgson að endast lengi hjá Liverpool?

Ég spái nokkra daga. Og vona slíkt hið sama.

Skipta honum út og einhverjum sniðugum inn.

Þetta minnir mig á hvatningaröskrin í gamla daga

,,Útaf með dómarann, inná með konunans"
,,Sýnið hvað þið getið, boltann í netið"
,,Halda haus!"
,,dómaradrulla!"

Andstæðingar Hvatar á Blönduósi áttu ávallt erfitt uppdráttur í þessari ljónagryfju sem skapaðist við þessi öskur 7 ára gutta.

Mmhmm


Filma.is

Er ánægður með www.filma.is

Þar getur maður strímað kvikmyndir og þætti gegn pínu gjaldi. Þær allra nýjustu eru á 800 en myndir eins og Kick-Ass og fleiri eru á sirka 500kr.

Fullt af íslenskum myndum.

Svo er hægt að leigja þætti eins og ríkið, ástríður, réttur, 10 bestu, klovn og fleira.

Þættir kosta um 200kr plús mínus.

Ef maður leigir hefur maður aðgang að myndinni/þættinum í 24klst og mátt horfa eins oft og þú vilt. Svo er líka hægt að eignast sumt þarna. Og nokkuð frítt efni líka.

Veit ekki um ykkur en mér finnst þetta fín viðbót við voddið.


Sebbi Tyson

Maður myndi ekki vilja mæta þessum í skuggasundi

besta lag allra tíma?

Tankurinn sjeraði þessu lagi á dropboxinu. Var búinn að gleyma þessu. Sennilega besta lag allra tíma.

Joey´s bag

Það er frí á leikskólanum hjá Sebs og við erum búnir að dúlla okkur eitthvað í dag. Fórum í BT og keyptum tösku fyrir laptoppið. Veit ekki hvort Beta verður ánægð því þessi taska heitir ,,aha fashionbag" og slóganið þeirra er ,,fashion your life". Soldið...

Kylfingur vikunar á kylfingur.is

Sigurður Elvar er kylfingur vikunar á kylfingur.is Flottur gæji Hér eru nokkrir kaflar úr viðtalinu (birt með von um góðfúslegt leyfi) Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum? Flest sem ég geri á golfvellinum er neyðarlegt. En...

Sebas fyrir rúmlega ári síðan

Ég myndi ekki missa af 2:20 þegar Sebas byrjar að taka stórar sveiflur. Mikið efni í þessum kylfingi.

Hugmynd

Hey! Ég er með guðmund, hvernig væri ef allir myndu setja upp Dropbox(www.dropbox.com). Þá getum við deild tónlist/ kvikmyndum/ myndum/ ogbaraölluöðrustöffi á milli okkar á eins þægilegan máta og hægt er. Maður joinar dropbox, setur forritið upp, gerir...

Kómík

Er að horfa á fyrstu seríuna í The Ricky Gervais Show. Mér finnst þetta mjög fyndið. Búinn með 5 þætti. Miðað við hve mikið ég fíla Gervais þá er skrýtið að ég hafi aldrei séð þátt af Extras. Ætla að fara í það mál. Annars er lítið annað að frétta en að...

tAlva

Ég keypti mér tölvu. Ójá, loksins kominn með almennilega tölvu. Packard bell eintak. Keypti hana á 114þ en með smá afslætti því maður þekkir rétta fólkið. Er að customæsa hana til andskotans og fylla hana af allskonar drasli sem ég þarf örugglega aldrei...

Whiskers! vertu góður við frænda þinn!

see more Lolcats and funny pictures

mmhmm

see more Happy Chair Is Happy

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband