Leita í fréttum mbl.is

Skilvirkni

Okkur finnst báðum vín og bjór vont. Drekkum hvorugt kaffi, hlustuðum á Suede í gamla daga og trúum ekki á trúarbrögð.

Ég fíla Malt og Beta appelsín.

Erum bæði nett manísk þar sem hún getur setið og prjónað í nokkra klukkutíma og ég dundað í tónlist eða lesið dögum saman.

En það sem tók nú steininn úr var neðangreint. 

Beta fílar skorpuna en ég miðjuna. 

DSC00030

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  


ET fundinn

Hvað er að frétta?

Ég var með hausverk og tók tvær panódíl og lagði mig. Hvað gerist? Nasa finnur líf á öðrum hnöttum á meðan! Hvað svaf ég eiginlega lengi!

Er að pæla að leggja mig bara aftur. Væri til í að heyra eitthvað um eilíft líf eða útrýmingu skipulagðra trúarbragða þegar ég vakna.

OK!


....listin að sleikja járn í frosti

Þetta er tungan sem Sebas skildi eftir á járninu. Lítur út fyrir að vera lítið magn kannski, ekki svo. Það blæddi allavega nógu andskoti mikið. 

DSC00022


.

Ég á afmæli í dag
Til hamingju ég

FORCA BARCA

!!!!!!!!!!!!FORCA BARCA!!!!!!!!!!!!

Það er ekkert sem enginn getur sagt!

Það er ekkert hægt að segja við svona frammistöðu. Alveg sama þótt Real sé að spila sinn besta leik, þeir munu alltaf tapa fyrir Barca í svona ham.

Það er bara þannig


Með betri lögum samtímans

Guðjón Ingi félagi minn kom mér á snoðir þessa meistaraverks. Kann ég honum þakkir. 


drama

ég vildi að ég hefði kvikmyndatónlist sem elti mig alltaf í lífinu. Þúsundfalt skemmtilegra örugglega að gera stöff þannig. 


HVAÐ ER AÐ FRÉTTA!!!

Við fórum niðrí bæ, keyptum okkur pulsu og röltum kolaportið. Fórum svo til tengdó og svo heim. Ok. Það var ekkert meira en þetta. Bara bílferð niður eftir og svo aftur upp eftir.

Á þessari leið var háð hörð barátta í númeraplötukeppninni. Þetta byrjaði allt á því að eftir nokkrar mín sá ég UL bíl og stakk upp á Hebreskum dag. Beta samþykkti það, ótrúlegt en satt, og staðan því 1-0 fyrir mér.

Þegar við lögðum hjá kolaportinu var staðan komin í 3-2 fyrir mér. Sem er nú bara dagsskammtur af UL-NU númerum skal ég segja ykkur.

Svo á heimleiðinni var staðan orðin skyndilega 3-5 fyrir Betu eftir ótrúlega heppni þar sem við sáum tvo NU bíla lagða hlið við hlið hjá Ingólfstorginu.

Dem.

Við áttum bara eftir að gera einn hlut í viðbót og lögðum hjá Húsasmiðjunni þar sem Beta ætlaði rétt að skjótast inn. Hún sagði mér bara að bíða út í bíl.

Taktísk mistök.

Ég sat í bílnum á meðan og skoðaði númeraplötur sem óður væri. Haldiði ekki að strákurinn hafi séð tvo netta UL bíla rúnta inn á planið. Ég lagði á mig hvar þeir lögðu og rúntaði svo með grunlausa Betu framhjá þeim þegar hún snéri til baka.

5-5

Svo rúntuðum við inn í Grafarholtið og LO AND BEHOLD við sáum tvo UL bíla í viðbót.

Whoppin 7-5 og keppnin orðin nánast yfirþyrmandi stórkostleg.

Ég er ótrúlega sáttur. Svo til að gera þetta enn sætara þá sáum við líka 3 UN bíla sem ekki töldu út af Hebresku reglunni.

Ég þori bara ekki að pæla í því að við eigum eftir að kíkja á mömmu og Pabba á eftir. Er að hugsa um að keyra bara með bundið fyrir augun.


Sir mælir

Horfði á myndina Greenberg í gær. Hún var merkilega góð. Samt bara svona walk thru mynd. Róleg.

Beta sofnaði náttla strax.

Þetta var Ben Stiller í flottu hlutverki. Ekki svona hress grínmynd heldur öðruvísi. Mæli með henni.

Mæli líka með því að Beta hætti að sofna alltaf yfir myndunum sem ég vel.


Daredevil

Hvaða lunatic ætli hafi verið fyrstur til að stökkva út í fallhlíf!

Hvað var hann að pæla. Þvílík áhætta!


Góð landkynning

c Magnus Andersen

að nema heiminn

Í kjölfar lífsreynslu Sebastians í gær renndi ég yfir í höfðinu þessum hlutum sem maður rak sig á í æsku. Þetta klassíska. Sleikja frost og festa tungu. Tjékk Pissa á rafmagnsgirðingu(viljandi reyndar). Tjékk Pota óvart hníf í brauðrist og slá rafmagni...

Straujárn

Klukkutíma eftir tungu atriðið brenndi hann sig á straujárni! Hann er búinn að læra ýmislegt í dag. Í munninn látum við bara mat og drykki, sleikjum ekki hluti, ekki snerta straujárn, það geta ekki allir verið gordjöss og að allir eru að fá sér. Annars...

Tunga á staur í frosti

Við vorum í stuði í bílnum. Fyrst sungum við Gordjöss með Palla, svo allir eru að fá sér með Blaz roca. Reyndar hélt Sebas að við værum að syngja um að allir væru að fá sér mat. Sem var eiginlega bara fínt. Komum heim og beint út á svalir að hengja upp...

Númeraplötukeppnin

Ég og Beta höldum áfram að kíkja eftir númeraplötum. Hún með UN og ég LU. Það er keppni í gangi. Reglurnar eru að það þurfa báðir aðilar að vera í bílnum og talningin núllast yfir nóttina. Stundum höfum við Hebreska daga þar sem Beta kíkir þá eftir NU og...

My Chemical Romance

Er að fíla þetta lag. Betu finnst þetta vera of mikið menntaskólarokk. Nokkurn vegin sammála henni. Samt eitthvað við lagið. Eitthvað svona epic. Ekki ósvipað epic fílíngnum í black parade. Elska þegar gítarinn kikkar inn...

Ég og biðraðir

Við fórum sem sagt á Harry Potter. Í hléinu fór ég á röltið til að teygja aðeins á bakinu(og horfa á fólk). Beta kallaði í mig og bað mig um að kaupa eitthvað að drekka fyrir sig ef röðin væri ekki of löng. Ekkert mál. Eða hvað. TA TA TA DAMMM! Ég og...

Harry Potter í Gilzeneggerhöllinni

Fórum á Harry Potter. Fórum í Egilshöll sal 1. Mun ekki fara í önnur bíó á Íslandi eftir þetta. Risastórt tjald, risa salur og loksins er fólk búið að læra að hafa salinn brattann þannig að aldrei skapist vesen með að sjá. Frekar brattur salur og það...

slys

Tók eina bílferð áðan og sá 8 löggubíla og tvo árekstra. Fyrri áreksturinn tafði mig um 15 mín en sá seinni um sirka 25 mín. Rosaleg strífla sem myndaðist í þeim síðari. Æðislegt því þetta var í fyrsta sinn sem ég skildi iPoddinn með itrippinu mínu...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 153621

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband