Leita í fréttum mbl.is

Skaftið

Sebas er dottinn í efnishyggjuna. Ég keypti handa honum Drekaleiftur í Toys R Us um daginn og núna stoppar hann ekki og vill að ég kaupi endalaust allskonar stöff handa honum.

Hann er farinn að færa sig upp á skaftið.

Ekki nóg með efnishyggjuna heldur þá reynir hann að ráða í hvaða röð jólasveinarnir koma til byggða.

Hann reynir ávallt að lobbía fyrir því að Gluggagæjir komi sem fyrst.

Hann verður rebel eins og pabbi sinn


mynd af klippingu

Fyrir þá sem voru að velta fyrir sér hvernig klippingin lítur út.

Sirka eins og John Goodman í The Big Lebowski. Nema bara ófríðari.  

Herrmannaklipping 


Klipping

Fór í klippingu í dag. Ákvað að gefa Grjóna á Rauðhettu smá frí eftir nánast 10 ár. Fór í Sjoppuna í Bankastrætinu. Hún var fín. Soldið hip og kúl fílingur.

Borgaði 4500 fyrir klippinguna.

Lít út eins og herrmaður meets pönkari meets nývaknaður málhaltur Færeyingur.

Semí sáttur bara. Nokkurn vegin lúkkið sem ég var að leitast eftir.


Framtíðin í tónlist

http://www2.gibson.com/Products/Electric-Guitars/Firebird/Gibson-USA/Firebird-X.aspx

Framtíðin er mætt.

Gibson Firebird X.

Þarna er verið að færa hardware yfir í software. Allavega skref í áttina. Það er verið að láta effecta og auka stöff sem gítarleikarar þurfa að hræra í á sviðina inn í gítarinn.

Framtíðin kostar reyndar 5500 usd en eins og með allt nýtt(ekki samt þeir fyrstu með þessa hugmynd í framkvæmd) þá er þetta bara fyrsta skrefið.

Svo eftir x ár þá koma aðrir gítarar, ódýrari, betri og þróaðri.

Hef alltaf verið að pæla í því af hverju fólk væri ennþá að vesenast með allt þetta hardware þegar það getur verið með software. Eins og ég hér heima. Bara einn með gítar og tölvu með öllum hugsanlegum effectum og hljóðum sem hugurinn girnist í staðin fyrir að kaupa einn effecta pedal á kannski 10þ með einum effecta.

Af hverju ekki bara hafa eitt forrit með milljón hljóðum!

Ég ræddi þetta við annan eiganda Stúdíó Sýrland og hann endurspeglaði það sem ég vissi. Þessir kallar vilja snobba fyrir gamla tímanum, halda í allt eins og þeirra hetjur gerðu þetta. Bara eðlilegt svo sem. Það virkar alveg og er töff.

En það er líka þannig að því meira software í stað hardware, því auðveldara að skapa tónlist, ódýrara og því minni þörf fyrir svona sérhæfða fagmenn eins og hann. Hann var eitthvað að segja að tónlistarmenn heyrðu og finndu muninn, bollocks. Bittu fyrir augun á þeim og testaðu þá. Væri áhugavert að sjá hvort þeir heyrðu mun þá.

Allavega........góði jólasveinn, nenniru að gefa mér þetta í skóinn?


Alltaf hrifinn af þessu lagi


yol

Jólaskapið hjá mér kviknar sjálfkrafa um leið og fertugustu og annari ilmvatnsauglýsingunni þar sem töluð er enska með frönskum hreim lýkur.

Það er bara þannig.

En í alvöru talað, er ekki komið nóg af þannig auglýsingum! Mér finnst þetta eitthvað svo 2 years ago.

Núna sum sé er allt að komast á blússandi siglingu fyrir jólin og auglýsingum og stöffi rignir yfir mann.

Ég er hálfnaður með jólasmákökurnar hennar Betu og nánast búinn að kaupa allar gjafir. Nánast.

Við náum í jólatréið þann ellefta einhversstaðar út í rassgati inn í skóg. Mjög gaman. Ég vona bara að það fari bráðum að snjóa.


Könnun

Það gleður mitt litla hjarta að einhver nenni að hlusta á lögin og kjósa.

Endilega kjósið hér til hægri ef þið nennið.

Takk


Þroskaheftur Færeyingur

Ég er með málgalla. Eftir að ég kom heim frá Spáni þá beygi ég ekki nöfn. Eða allavega stundum, eða oft, eða ég veit ekki alveg, því ég tek ekki eftir þessu.

Beta tekur hins vegar eftir þessu og skammast sín niðrí tær. Hún segir að ég hljómi eins og þroskaheftur færeyingur.

Vorum á KFC og ég sagði við Sebas

,,Sebs, farðu með Íris, hún hjálpar þér"

Svo segi ég t.d. ,,farðu til Elísabet".

Veit ekki, hitt hljómar eitthvað svo asnalega núna. Hún heitir Elísabet og ég segi bara alltaf Elísabet.

,,Halló, ég heiti Sigursteins og ég er þroskaheftur Færeyingur já"


Svaðilfarir Sigga og Sebbsters

Ég og Sebas fórum í sunnudagsrúnt slash leiðangur. Rúntuðum út á flugvöll og skoðuðum flugvélarnar. Ég fór með hann í Skerjafjörðinn og sáum við vélarnar þaðan. Ég ætlaði að vera extra góður og fór hinu megin líka. Nauthólsvíkurmegin.

Þegar þangað var komið, benti ég honum á vélarnar.

,,Pabbi, þú ert bara alltaf að sýna, og sýna, og sýna"
,,já, vildiru ekki skoða flugvélarnar?" spurði ég hlessa
,,jú pabbi, en það er búið núna"

OKAY sheez! maður bara að reyna að vera góður hérna.

Fórum þvínæst út í Hafnarfjörð og skoðuðum höfnina. Þar fræddist hann um fiskana, hvernig þeir eru í sjónum, eru veiddir, hreinsaðir og fluttir í búðina þar sem við svo kaupum þá og étum. Sagði ég honum.

,,En pabbi, ég vil bara borða hrygg" (við vorum með hrygg í matinn í gær)

Fórum svo í Toys R Us þar sem við keyptum Drekaleiftur. Sem er, fyrir þá sem ekki eiga börn, Lightning McQueen bíllinn en með þrumum í hliðunum.

Að lokum fórum við á KFC í Mosó þar sem yfirlýsingar um að hann væri hættur að vera hræddur við rennibrautina reyndust ekki á rökum reistar. Ég fór meira að segja með honum í brautina, en einn niður, vildi hann ekki.

Ég beið eftir honum niðri og kallaði á hann.
,,Nei, pabbi" sagði hann sallarólegur ,,það er hákarl þarna niðri og ég ætla bara að leika með drekaleiftur hérna uppi"

,,ok kallinn minn"


Brandara Ari strikes again

Ég og Sebas fórum í Smáralind og sáum óvart jólasýningu. Heyrðum góðan brandara. Einu sinni var Nonni að baka piparkökur og hann týndi úrinu sínu. Hann leitaði í piparkökudeginu, ekkert þar. Þá leitaði hann í brauðdeginu, ekki þar. Það skipti engu máli...

Málvísinda genius

Sebas talar 4 tungumál. Hann talar náttla spænsku og íslensku sem innfæddur og apar enskuna upp úr teiknimyndum og kann afmælissönginn. Hann sagði svo allt í einu jeg spiser frikedeller á dönsku við matarborðið áðan! Spænska,íslenska,enska og danska....

Besta síða ever?

Þessi síða kemur sterklega til greina sem besta síða internetsins. http://kimjongillookingatthings.tumblr.com/

Thom York Íslands

Hrafn í Ensími er svo mikið Thom York Íslands. Sá þá á ÍNN í þættinum Rokk og tja tja tja. Þessi þáttur er btw eitthvað svo vandræðalegur. Fólk er svo mikið að reyna vera eitthvað sem það heldur að eigi að vera í svona þætti. Af hverju er það ekki bara...

Besta sena ever?

(Margmiðlunarefni)

Nýtt lag frá SIR

Nýtt lag frá hljómsveitinni SIR Setti það efst í djúkarann hérna til hægri. Það heitir Liðast. Sá mig knúinn til að henda einu af nýju lögunum hérna inn. Enn og aftur vantar söng, en það gerir svo sem ekkert til, þetta er hvort eð er soldið út í...

Agent not so Fresco

Fíla ekki nýju Agent Fresco skífuna. Ágæt á köflum og hef í raun bara yfir tveim hlutum að kvarta. Söngurinn er pirrandi og þeir eru alltaf að reyna að vera svo off beat, sem er pirrandi. Málið er bara að þetta tvennt tröllríður skífunni og er allt í...

SIR selur lag á gogoyoko

Það var einhver svo sniðugur að gefa mér afmælisgjöf í gær með því að kaupa lag á www.gogoyoko.com/artist/SIR Einhver keypti ,,Blús fyrir Betu". Þetta er harður blús í blúsriffum þó stundum sé þó erfitt að greina blúsinn þarna, eins og tengdó kvartar...

IT gæjar

Þetta er nákvæmlega eins og ég ímynda mér IT gæja, klæðnaður og allt.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband