Leita í fréttum mbl.is

fyrri hringur á 2.stigamóti GSÍ

1.Par 4.Flottur ás vinstra megin í semí röffi. Man ekki hvaða járn en innáhöggið var pínu stutt en á gríni. Tvípútt. Par.

2.Par 3.Góður vindur á móti. 123m og ég tók 7 beint á pinnan sem var uppi hægri megin. Rétt náði gríni en 3mtr pútt beygði í fyrir fugli. Fugl.

3.Par 4.Var búinn að ákveða hérna að vera ekkert að kötta hægra megin og miða beint á grín. Það er leiðinlegt röffið þarna og bönker. Þess vegna fór ég vel vinstra megin inná fjórðu braut. Mig minnir að sirka 120mtr eftir og 7 járn, ekki viss. Man ekki. Fór allavega vinstra megin bakvið grín og lenti í hól. 60° algjört rescue vipp heppnaðist helvíti vel. Meters pútt klikkaði. Skolli.

4.Par 5.Flottur ás á miðri braut en stuttur. Rétt fyrir framan hólinn. 19° þráðbeinn og skildi eftir 54mtr og 60° pínu langur og 3mtr pútt klikkaði. Par.

5.Par 4.Nennti ekki að vera í rugli og fór beint til vinstri inná sjöttu braut. Helvíti fínt. Innáhöggið fínt en skildi eftir 1 mtr í grín. Vippaði nokkra cm frá og gefins par. Par.

6.Par 4.Flottur ás uppí semí hægra megin. 109mtr eftir og 54° 2 mtr frá. Krækti fuglapútt. Par.

7.Par 3.Fáránlega stutt fimma nokkra mtr stutt. Vippaði meter yfir holu. Pútt í. Par.

8.Par 4.Ás, vinstra megin, bakvið klett, oní holu. Djörkaði honum upp og dúndraði í klettinn sem var í 2 mtr fjarlægð. Kúlan kom tilbaka á ógnarhraða og höggið varð sem sagt -5mtr langt. Aftur í fönkí legu en náði að vippa inná grín og tvípútta. Skolli.

9.Par 4. Fínn ás. Fönkí 6 járn hægra megin pin high. Vipp nokkra cm frá. Par.

+1 og sáttur.

10.Par 4.Stuttur ás vinstra megin. Lélegt innáhögg. Tvípútt. Par.

11.Par 4.Flottur ás á miðri braut. Flott innáhögg í fade uppá efri pall. Rétt missti fugl.Par.

12.Par 3.149mtr með 8 pin high vinstra megin á gríni. Par.

13.Par 4.19° upplögn við brekku. 4 járn upp í brekku við grínið. 60° of langur. Tvípútt. Skolli (sem nánast er par á þessa braut í þessum vindi)

14.Par 3.Flottur pw vinstra megin í fade sem endaði einn og hálfan frá holu. Fugl.

15.Par 4. Flottur ás í dragi til vinstri. Endaði um 40mtr frá pinna niðri vinstra megin á braut. Bankaði kúluna upp á annan pallinn með áttu meter frá pinna. Ekkert svæði til að vinna með þannig að ég valdi að rúlla honum upp með áttu í staðin fyrir 60° á flugi. Heppnaðist. Auðvelt pútt. Fugl.

16.Par 5. Mikill hægri til vinstri vindur og ég tók flottan ás í dragi og notaði vindinn. Átti 210 í pinna en ákvað að taka tvö 100mtr högg í staðin. Hið fyrra, vangefin nía. Hið seinna erfið pw úr þykku grasi. Skildi eftir undarlega bogið pútt í 7mtr fjarlægð. Tvípútt. Par. Strákurinn.

17.Par 3.7járn beint á pinna í fönkí vindi. Vipp og einpútt. Par.

18.Par 5.Frumlegur ás með púll fade á miðja braut. Upplögn með þykku 5 járni. Ákvað svo að taka 9 járn með 80% krafti. Mistök. Alltof stuttur og átti 5 mtr í grín. var beint fyrir neðan pinna sem var á miðju gríni vinstra megin. Þetta grín er náttla rosalegt. það var stór hóll þarna og ég ákvað að pútta upp í staðin fyrir að vippa. Var of stuttur og fór alla leið neðst á grínið aftur tilbaka. Púttaði beint upp, sirka 10mtr, næstum því í holu. Skildi eftir meters pútt niðrí móti. Það var erfitt pútt og ég missti það og skildi eftir meter fyrir neðan. varð pirraður og skoðaði ekki línuna og missti það í fljótfærni. Fimmta púttið örugglega í. Tribble.

+3

Fór svo 10-17 í gale force vindi og bucketfull rigningu til einskins.

Case closed


fyrri hringur

Spilaði gott golf í dag. LOKSINS.

Í raun allt inni og ekkert úti.

Þetta var mjög auðvelt.

+3 sem er akkurat forgjöfin en ég lækka samt. Var á pari fyrir lokaholuna þar sem ég í raun fimm púttaði. Eitt púttið var reyndar semí vipp. Tribble. Ekkert annað markvert.

Er í 20 sæti og bara nokkuð sáttur.

Svo fórum við reyndar 8 holur í viðbót í gale force plús brjáluð rigning. Tókum 10-17. Svo var þetta blásið af. Par,par,par,skolli,fugl,skolli,skolli,skolli. Þessir síðustu skollar voru bara útaf veðrinu sem var orðið klikkað.

Fer út kl 9:40 á morgun


Veikur

Það er komið á hreint að þessi bólga er reykeitrun útaf bílferð dauðans(sjá neðar).

En að öllu gamni slepptu þá er ég pínu slappur og kominn á fúkkalyf.

Borgaði 2500 fyrir viðtal við lækni og svo aftur 2500 fyrir lyfið.

Mín spurning er þessi: Af hverju er þetta lyf ekki selt bara beint í apótekum án lyfseðils?

Er þetta ekki alveg jafn hættulegt og parkódín og hvað allar þessar töflur heita? Alveg jafn hættulegt að óverdósa af þessu og einhverju öðru.

Af hverju er pensilin lyfskylt?

Skyldi það vera svo læknarnir fái sinn skerf! Er bara verið að mjólka fólk að ástæðuleysu!

Pottþétt.

P.S. svo er þetta pottþétt bara sykur í þessu hylkjum. Hef enga trú á þessari læknastétt. Kalt mat.


swollen

Ég vaknaði bólgin á hægri kinn. Æðislegt. Gaman að vinna í búð bólginn.

Allir sem vilja koma og sjá freak of nature komi í Golfskálann í dag.

Spurning hvað í fjandanum þetta sé. Stíflaðar kinnholur? Einhver læðst inn og kýlt mig í svefni?


Bílferð dauðans

Ég lenti í hræðilegri lífsreynslu í dag. Ég var að gera félaga greiða sem krafðist þess að fara með honum í bíl í smá túr.

Við vorum komnir 1-2 kílómetra og allt í góðu. Góður andi í bílnum og allir í stuði. Svo gerist eitthvað sem ég hef ekki orðið persónluega vitni að síðan fyrir aldamót.

Minn maður dregur upp sígarettu og mundast við að kveikja í henni!

INN Í BÍLNUM!

MEÐ MÉR.

INN Í BÍLNUM!

Ég hélt að þetta væri ólöglegt.

Ég byrjaði að losa beltið til að stökkva út á ferð en hann bara hló.

Bílferð dauðans!

Fyrsta sem Beta sagði þegar ég kom heim....,,hvaða viðbjóðslega reykingarlykt er þetta!"

Ég tel mig eiga lámark 5 Lion Bör inni hjá félaga mínum eftir þessa lífsreynslu.


Klipping

Fór í klippingu. Vægast sagt ósáttur.

Hér koma nokkur random komment sem ég fékk samdægurs:

,,Er þetta John Daly klippingin!"
,,lenturu í stríði og tapaðir?"
,,Tinni bara mættur"

Verst var þó þegar Beta sagði ,,þú ert voða sætur"

ouch!

Ég sagði við stelpuna að raka hliðar og skilja eftir á toppi til að ég gæti leikið mér með dúið.

Eftir stendur.......Hermaður meets John Daly meets Jón stóri meets Tinni.

Hræðilegt.


málið í dag

"Cool for your pockets, rocks for your rocketride"

Poor

David Caruso, Jeff Goldblum, Alfred Molina, Laurence Fishburn, Gary Sinise, Hugh Laurie.....

Hvað eiga þessir ömurlegu leikarar sameiginlegt?


golfdrasl

Fórum í golf í morgun. Knútur og ég enduðum í jafntefli. Ég spilaði mjög ílla og tók í raun bara þrjú fín högg.

Er í lægð.

Allt úti. Ekkert inni.

Ekki gott veganesti fyrir helgina.

Ætlum aftur á morgun. Vonandi næ ég eitthvað að klóra í bakkann.

btw spáin segir hiti um helgina en gale force vindur út í eyjum. Alltaf gaman að spila í eyjum, sérstaklega í roki.


prakkari

(Margmiðlunarefni)

Æfa

Búinn að skrá mig í annað stigamót GSÍ sem fram fer í Vestmannaeyjum. Tveir hringir á laugardegi og einn á sunnudegi. Ekki seinna vænna en að byrja að æfa pínu. Hraunkot í kvöld. Ómjá

roleplay

Það voru hin ýmsu hlutverk sem við brugðum okkur í í gær. Ég byrjaði og spurði Sebas hver hann vildi vera ,,enginn" Ok Eggert minn, ég ætla allavega að vera Lukku Láki og Beta heitir Engilfríð. Honum fannst það fyndið. Svo svissaðist það fljótt og ég...

Rjómaslagur

Snjáldruðum í okkur kringlum og rúnstykkjum í hádegismat. Svo kaka í eftirrétt. Með rjóma. Ég klessti rjóma framan í Sebas og hann bara WHAT!!! Svo setti ég pínu meira og hann var stunned. Hneikslaður. Þetta var svo súrrealískt fyrir honum. Svo fjarri...

The Italian Stallion

Erum að horfa á Rocky. Kemur mér verulega á óvart hve vel Sly leikur. Náttúrulega eru bardaga senurnar ótrúlega ílla leiknar en allt annað er virðingavert. Hann náttúrulega samdi handritið sjálfur. Svo leikstýrði hann líka Rocky II og fleiri myndum. Fáir...

Kung Fu Panda 2

Fórum á Kung Fu Panda 2 með Sebas. Hún var góð. Sennilega flottasta teiknimynd sem ég hef séð. Þá meina ég ekki skemmtilegasta heldur flottasta. Ótrúlega flottir litir, þrívídd og teiknun. Skemmtanagildið samt mikið. Eini gallinn er að við fórum á...

Lög

Undur og stórmerki. Avant garde Cutting edge ÉG.... er að fíla Eminem ft Rihanna lagið Love the way you lie. Og nokkur önnur svona R&B lög. Enda eru þau í non stop rotation í Golfskálanum. Ég var að pæla í af hverju ég fíla svona crap allt í einu. Komst...

Hangover Deux

Hangover var fín. Ágæt skemmtun. Í raun ekkert meira um það að segja. Mæli alveg með henni en ekki búast við Hangover 1.

Elvis

Kláraði Elvis í gær. Búinn að lesa þessar tvær bækur forever. Hef nefnilega 90% af tímanum bara lesið þær á klóstinu. Niðurstaðan er þessi: Elvis var flottur. Töff skemmtikraftur. En hann datt svo í þetta Michael Jackson þema. Einangraðist frá heiminum...

Frí

Mæli með golfvellinum á Geysi. Frábær skemmtun. Spilaði lala. Högg dagsins á annari braut. 185mtr högg með 4 járni yfir ánna og enda 3m vinstra megin við pinna pin high. Missti reyndar arnarpúttið en tap-in fugl. Það var ágætur vindur í dag og pínu...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband