Leita í fréttum mbl.is

sumarið er tíminn

Ættarmóti lokið. Komin heim. Frábær tími.

Sebas skemmti sér konunglega. Við feðgarnir fórum einir saman í golf í fyrsta sinn. Hann fékk að stýra golfbílnum og lærði að vera alveg kjur þegar einhver slær. Mjög duglegur. Hann var líka duglegur að hrósa mér fyrir hvert slegið högg. Kurteis.

Svo fórum við öll í fótbolta á miðnætti í gær. Örugglega um 30 manns eða svo. Algjört kaos en við Sebas skemmtum okkur vel. Ég skoraði 2 mörk. Sebas hélt sig nálægt mér og komst nokkrum sinnum í baráttuna.

Hann sofnaði ekki fyrr en 1:30 eða svo. Vaknaði svo á hádegi í dag. Aldrei gerst áður. Það er svona þegar það er sumar, gott veður og maður á ættarmóti. Þá má maður ýmislegt.

Núna er bara smá afslöppun og svo us open í kvöld.


US Open

Hver hefði trúað því að Rory litli væri að rústa US Open. Ekki ég.

Mín spá var:

1. Luke Donald
2. Steve Stricker
3. Matt Kuchar
4. Gary Woodland
5. K.J. Choi

Mín spá sökkar.

En ég hef alltaf haldið með Rory. Vona að hann haldi þetta út.


kjói

Við erum að tala um rjóma hérna á Geysi. Sól og vesen.

Búinn að taka tvo 9 holu hringi með Stebba. Á bara 3 kúlur eftir!

Það verður eitthvað húllumhæ í kvöld. Systkinin, öll 16, eru fræg fyrir fjör og læti. Ættarmót í glampa sól.

Stefni á að taka einn hring í viðbót. Þessar þrjár kúlur týna sér ekki sjálfar!


varðandi könnunina

....en mig langar svo í titleist tré og blendinga..........ekki vera með leiðindi.......

ho ho ho

Gleðilegt sumar! no, wait....what!

Tits

Djöfull er ég spenntur fyrir Titleist(skammstafað tit í kerfinu í golfskálanum) 910 trjánum.

Langar í °15 brautartré og °17 og °21 blendinga.

Myndi stilla þetta á eftirfarandi máta:
°14.25
°17.75
°21

Helvíti góð dreyfing

Svo kemur 4 járn sem er °25 uppí PW sem er °48. Svo °54 og °60.

Önnur hugmynd væri að sleppa einum blending og kaupa bara °19 blending.

°15
°19.75
4 járn °25 uppí pw sem er °48. Svo °52 og °56 og °60

Hvort er mikilvægara að hafa minni dreyfingu í fleygjárnum eða á hinum endanum?

hmmmmm...efni í könnun.


ættargolfmót

Ættarmót á golfvelli! Ekki að hata það.

Erum á leiðinni á Geysi þar sem um 100-150 manns munu halda feast og fara í leiki. Stuð.

Munum leggja í hann í rólegheitum á morgun. Snúa við á sunnudeginum. Smurning hve mörgum golfhringjum ég kem undir beltið. hmmmmmm.

Keyptum nóg af nammi, nóg af pulsum og nóg af kúlum!


Knudsen

Ég og Knútur höfum farið í golf síðustu tvo morgna. Í gær spilaði ég versta golf sem ég hef spilað og tapaði með 4 höggum. Í dag spilaði ég normal golf og vann með 4 höggum.

Þvílíkt hve munar um að vera einbeittur og hafa markmið.

Í gær var ég bara að hálf fíflast í Knúti og allt stutta spil úti.

Núna mætti ég með tígur augu og gerði bara ein mistök. 60mtr högg, bolti fyrir neðan fætur og ég skallaði hann yfir grín og yfir í OB. Dobbúl. Annars var ég á pari.

Annars spilaði Knúturinn líka fanta vel. Setti t.d. öll pútt í, nánast. Hann slær líkt og vindurinn með gömlu Wilson blaðkylfunum sínum.

Það jafnast ekkert á við að fara í morgungolf.


GC2

jei, hlakka svo til að fá launch monitorinn loksins í hús í Golfskálanum. Ætti að lenda inn á golf til okkar sirka á þriðju/miðvikudaginn.

Þá fer fyrst að verða gaman í vinnunni.

Belfry völlurinn fylgir með kerfinu.


Góður Vetur

Ég er ekkert eðlilega spenntur fyrir þessum disk

http://www.amazon.com/Bon-Iver/dp/B004XE0P5E/ref=zg_bs_music_17


tækni

Er hér að horfa út um gluggan á um 20 peyja í fótbolta. Djöfulsins gæði! Þessir litlu guttar eru ekkert smá vel leikandi. Fléttur og fiff hægri og vinstri. Ekki man ég eftir að við sem guttar værum svona rosalega langt komnir í tækni. Ánægjuleg...

tuttugubúll

Fórum í golf á Geysi með mömmu og Sebastian. Beta,mamma og Sebas voru á golfbílnum hans Stebba. Sebas keyrði. Draumi líkast hjá honum. Hann skríkti af gleði. Svo fékk hann að spila eina holu með kylfunni sinni. Ég valdi náttúrulega erfiðustu holu...

Fífl

Ef þið viljið sjá fífl. Kíkið þá á þessa slóð http://youtu.be/cfOa1a8hYP8 Ég sá þetta um daginn og varð agndofa. Ég bara átti ekki orð. Svo kom eitt orð upp í hugann. Fífl. Þvílíkt fífl. Þeir taka sig svo rosalega alvarlega að þeir eru orðnir að...

basic

Þegar mótinu var frestað á laugardaginn kl 15 þá var sagt að þeir myndu reyna að byrja aftur kl 16. Ég nýtti tímann og rauk heim til Kötu og setti allt í þurrkarann. Ég heyrði skrölt í þurrkaranum og fattaði að ég hafði gleymt kúlunum í vasanum á...

vondasta kona ever?

(Margmiðlunarefni)

versti hrekkur allra tíma?

(Margmiðlunarefni)

round up

Spilaði ekki eins vel og í gær. Sjö yfir og samtals +10 sem skilar mér í 29-31 sæti. Lækkaði um 0.1 í gær og hækkaði um 0.1 í dag. Stend í 3.7. Þetta var meira ströggl í dag. Upphafið að endalokunum var á fjórðu. Flengdi drævið en boltinn fór bara 30 mtr...

Íslenska

Ég er ötulll talsmaður þess að það eigi að nota þrjú L í íslensku. Vala Valla Vallla Ég segi t.d. alltaf ,,Salat" eins og "vala" ekki eins og "Halli". Gott dæmi um rugling var t.d. þegar kona ein kom í Golfskálann og var að selja veski merkt "Dilla...

bið

Vaknaði kl 7 og hef ekkert að gera. Búinn að taka einn Tiger golfhring og dunda mér í angry birds. Bíð eftir að fá að spila seinni hringinn. Er löngu búinn með allt í chrome útgáfunni af angry birds og kominn með alla bónuskallana. Er bara að dunda mér...

hmmmm

er að "vinna sigur" það sama og að "sigra vinning"? að vinna að sigra sigur vinningur Þýðir að vinna sigur eitthvað annað en að sigra?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 153615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband