Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Lingur

Fór með Ling til dýralæknis. Þetta tók um 3 tíma. Fyrst var hann svæfður og svo var blóð tekið til rannsóknar. Þessi víkingur var ekkert á því að láta svæfa sig.

Hann varð bara fúll á móti og ældi og slíkt.

Ef hann væri lag væri hann Vulgar Display of Power. Enda urraði hann og hvæsti og reyndi að bíta dýralækninn. Ekki nema von, gæjinn rakaði löppina hans og var að stinga hann með beittu járn drasli sem sýgur blóð. Bara heppinn að mjási hafi ekki lamið hann.

Það gekk erfiðlega að taka blóð og Mjási varð bara æstari. Hef aldrei séð hann svona. Enda í raun sauðdrukkinn af þessu svæfingarmeðali sem var hálf farið að virka.

Þegar ég gékk með hann út sofnaði hann loksins. Talandi um misheppnaða svæfingu. Núna er hann sofandi í sófanum, ég þurfti að hlusta hann tvisvar til að fullvissa mig um að hann andaði, svo mikið limp bizkit er hann.

Eftir að ég labbaði út þurfti ég að fara til Málaga (40mín framogtilbaka) að ná í rabíu niðurstöður. Kom heim kl 13 og ekkert getað æft.


Vespa

Við vorum að keyra út úr bílskúrskjallaranum inná götuna þegar ég sé vespu koma mér á vinstri hönd. Ekkert mál, það er soldið í hana og ég kemst auðveldlega inn á götuna áður en hún kemur.

Nei,nei, skyndilega beygir vespan inn á minn vegarhelming og stoppar mig af. Við bara what......

Gæjinn ypptir öxlum af undrun og gefur í skyn að VIÐ höfum köttað HANN af.

Ég skrúfa niður rúðuna til að athuga hvort þessi maður sé algjörlega heimskur eða.

Gæjinn allur reiður og dramatískur.

Hálfviti. Ekta maður sem gerir í því að reyna skapa vandræði.

ok, segjum að ég hafi frekar átt að bíða og ekið smá í veg fyrir hann (sem ég gerði ekki) af hverju hægði hann ekki bara pínu á vespunni (og drullast til að halda sig á sínum eigin vegarhelming) til að hleypa mér út.

Það er ekki eins og ég hafi verið með þrjá bíla fyrir aftan mig í niðurhallandi extreme kjallararampi. Allt stopp í svoleiðis dæmi er mjög leiðigjarnt, sérstaklega með hurð sem lokast sjálfkrafa.

Ég sagði honum vinsamlega að hægja bara á sér næst, hann sparkaði í bílinn okkar, gaf okkur puttann og ók af stað.

Snilldar leið til að byrja daginn.


Mjási

Fer með mjása núna í fleiri sprautur og vesen. Það er núþegar búið að setja rafkubb í hann, svæfa hann og sprauta bak og fyrir. Núna erum við með saursýni fyrir salmonellu með í för sem er jömmí.

Hann er búinn að fasta síðan í gærkveldi og er brjálað svangur. Sá hann horfa grunsamlega mikið á sólbrúna leggina mína áðan. Kannski hann haldi að ég hafi verið að steikja þá fyrir hann.

Á eftir fara María og Sebas með tengdó til Guadíx en ég verð eftir. Því ég fer í mót á morgun en fer síðan eftir það þangað austur.


nýjar myndir

setti inn nokkrar myndir í albúm 16 á myndablogginu hér til vinstri. Gerði það aðallega fyrir Pedro sem vildi fá að sjá afkvæmi Brad,Jessicu og Guðs.

Einnig er myndasería frá fyrsta ísnum hans Sebas og ein golfmynd.


Brenndur

Sæll, ég fór í fyrsta sinn í ár í stuttbuxum í golf. Í.

Djöfull er ég brenndur á löppunum. Þetta var officially heitasti og besti sólardagurinn á spáni í ár segir veðurfrétta stúlkan.

Spilamennskan ágæt en soldið off með ásinn og pútterinn. Það kom á 17.brautinni. Normalt eftir þriggja daga hvíld með ný verkfæri.

Tek netta æfingu á morgun til að lúbríkeita þetta.

Er skráður í tvö mót, eitt á laugardaginn og hitt þann næsta.

Ekkert stórmót á dagskránni. Tja, það næsta verður sennilega á Íslandi í gaddi, hvirfilbyl og viðbjóði ef ég þekki mína rétt.

Úlnliðurinn er alveg jafn slæmur og um helgina. Ég segi bara fokkit og töffa þetta út. Læt ekki þetta moðerfokking drasl stoppa mig. Ride the pain, just ride the painwaves.

ps. fór skyndilega í klippingu sjálfum mér á óvart. Ef Brad Pitt, Jessica simpson og guð myndu eignast barn saman, yrði hann líkur mér.


Sebas

Vek athygli á djúkaranum hér efst til hægri þar sem m.a. má finna viðtal við Sebastian. Tekið fyrir allnokkru af mér rétt fyrir matartíma.

Langt síðan ég hlustaði á þetta og rakst á þetta fyrir tilviljun.

Þetta er þriðja efsti hljóbúturinn

Þarna er aumingja litli pungurinn að reyna að fá pabba sinn til að drullast í mat sbr. mati sem þýðir að sjálfsögðu matinn. Þarna var hann farinn að muldra ýmsa hluti. Núna er hann óstoppandi. Farinn að syngja afmælissönginn og fleiri vinsæl lög. Maður tekur ekki eftir framförinni fyrr en maður rekst á svona gamlan bút.

Er eitthvað sætara en þetta................

ofangreint er ekki spurning heldur de facto.


Úln

Búinn að hvíla í þrjá daga og finn smá mun í úlnliðinum. Fer núna á eftir að spila hring með graham og gabriel og sé þá hvernig draslið virkar.

Það er mannskemmandi að vera svona lengi inni. Hefði nú getað farið út en ég nennti því ekki. Of mikil sól.

Ég er kominn í stuttbuxurnar og verður þetta í fyrsta sinn í ár sem spánverjar fá að sjá spóaleggina.

believe it or not, þeir eru enn tanaðir síðan í fyrra. Kannski eru þeir bara svona skítugur, hlýtur eiginlega að vera.


Sebas

Pasapalabra er þáttur sem ég missi ekki af á telecinco.

Þetta eru þrír á móti þremur. Í hvoru liði eru tveir frægir og einn normal jón jónsson.

Leiknar eru 4 umferðir og vinnast inn stig fyrir hvern sigur. Stigin eru í raun sekúndur sem safnast saman og notast í lokalotunni sem heitir Rosco.

Ein umferðin er t.d. melónurnar, sem gengur útá að vera fyrri til og svara svo spurningunni rétt.

önnur umferð er t.d. flóknuorðaleikurinn sem gengur útá að spyrillinn kemur með lýsingu á orðinu og liðið þarf að geta orðið. Þetta eru erfið orð.

Svo þegar þetta allt er búið er fræga fólkið kvatt og eftir stendur þetta normal fólk, einn á móti einum.

Lokalotan gengur svo útá að hver stafur í stafrófinu er eitthvað orð sem spyrillinn lýsir. Hvor keppandinn er með sitt stafróf og gengið er á alla stafina í röð og sekúndurnar sem unnar eru inn í fyrri umferðum eru tíminn sem viðkomandi hefur. Vanalega um 125-145 sek.

Ef viðkomandi svarar öllum orðunum rétt fær hann alveg frá 100þ evrum uppí hið óendanlega, hef mest séð 350þ€. Því ef engin getur öll orðin safnast þetta nefnilega saman og er notað í næsta þætti. Ef báðir eru með jafn mörg orð rétt þá fara þau bæði áfram í næsta þátt. Ef einn nær ekki öllum orðunum en vinnur hinn þá fer hann áfram í næsta þátt og vinnur sér inn 1200€ í leiðinni.

Það er einn sem er búinn að vera í um 30 skipti í röð og er algjör orðabók. Þessi þáttur er á hverjum degi og er snilld. Allir eru að reyna að slá honum við en hann er brilli.

Það vantar svona skemmtilega þætti á Íslandi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband