Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010

Hvað ætti maður að kjósa?

 

EÐA

 


Út um gægjugatið leynist Garðabær

Við vorum að gægjast út um gægjugatið á útihurðinni í morgun. Eftirfarandi er samtal sem þá átti sér stað:

Ég: ,,Nau Sebastian! erum við að gægjast út?"
Seb: ,,já"
Ég: ,,hver er þarna úti?"
Seb: ,,uuuu Garðabær"

Hann sagði meira að segja Garðabær með svona duh! tóni. Eins og ekkert væri augljósara.

Mér fannst þetta vera snilldar svar.


Sans bleyja

Drengurinn tók fyrstu nóttina án bleyju. Ég lét hann pissa rétt fyrir svefn. Setti hann svo nánast sofandi á dolluna kl 12 og út kom piss. Svo kl 3:30 rumskaði hann. Ég gerði þá þau leiðu mistök að hafa á orði hvort honum væri ekki mál. Það var sem ég hafði ýtt á hnapp því samstundis pissaði hann á sig.

Note to self: ekki spurja, bara setja á dolluna.

Það var samt ekkert stórmál. Ég vippaði honum úr og setti hann á settið. Þar kláraði hann og svaf svo til sjö bara á nærunum.

Ég náði að snúsa hann í einn og hálfan tíma með því að tala hann til og kveikja á barnaefninu. Svo gat hann ekki meir kl 8:30 og ég dobblaði hann til að fara inn að vekja afa sinn.

Ég heyrði mínútu síðar, hinu megin í húsinu, ,,AFI! FARA Í BAKARÍ!"


Keef

Í ævisögu Keith Richards er vandlega farið yfir allt á hans ferli. Mick Jagger er soldið málaður sem síðri manneskja. Soldið sem tækifærissinna og hommalegum vælukjóa.

Á meðan Keith vildi alltaf bara spila tónlist og var straight forward þá kemur jagger út sem gæji sem vildi geðgt show, marga búininga, make up og sýndarmennsku.

Ef ég hef lært eitthvað í gegnum tíðina þá er það að lesa á milli línanna. Vissulega er Jagger meiri showman en örugglega ekki jafn mikið sissí og Keith vill láta vera.

Ég man t.d. þegar ég las ævisögu Seve Ballesteros. Þá kom það út eins og allir aðrir væru hálfvitar. Seve hafði alltaf rétt fyrir sér og bæði stjórnendur ameríku og evrópu túrsins voru svo vondir menn. Í flestum verkefnum sem hann tók sér fyrir hendur voru oftast einhverjir árekstrar. Svo fattaði maður náttlega að það var Seve sem var hálfvitinn. Ekki allir hinir.

Allavega, það er líka áhugavert að á sjöunda áratuginum var Keith gjörsamlega útúr dópaður á heróíni. Jagger þurfti þá nánast að sjá um Stones eins síns liðs. Svo á áttunda áratuginum þá tók Keith sig á og var fjölskyldumaður. Maður bara....já, gott hjá honum. Svo kemst maður að því að það að vera clean og góður gæji, fjölskyldumaður og ekkert í veseni þýddi að hann tók lítið sem ekkert heróín en drakk í staðinn sirka flösku á dag, var í hassí og snortaði kókaín sem ryksuga.


listna

Það hefur verið algjör pása í nýrri tónlist hjá mér þessa dagana. Er bara sokkinn í Rolling stones útaf þessari ævisögu sem ég er að lesa.

highlights:
mothers little helper
Fool to cry
beast of burden
miss you
mixed emotions
paint it black
anybody seen my baby
love is strong
Lady Jane

Áður var ég bara í David Bowie. Þegar þessi bók er búin byrja ég á ævisögu Bowie þannig að þá verður hann sennilega aftur kominn á fóninn.


Check listi Íslandsmeistarans

Sveifla:

Staða  

  • Standa uppréttar
  • Flippa mjöðm til vinstri
  • Hafa kylfugrip vinstra megin við kylfuhaus
  • Ýta vinstri öxl fram til að skvera axlir við höggstefnu
Aftursveifla
  • Ekki draga kylfuna inn
  • Snúa öxlum alveg svo að ég verði ekki laid off í topp stöðu
Niðursveifla
  • Halda hægri fæti niðri lengur
  • Halda rassi kjurrum, þ.e. ekki ýta honum fram
Framsveifla
  • Leiða með vinstra handarbaki
  • Þegar sveifla er í lokarstöðu, draga auga í pung og þykjast vera einbeittur
 
Vipp:

Staða 

  • omg! of flókið til að ég nenni að lýsa því, muna bara að hafa kylfuhausinn skveran við stefnu ásamt öxlum. 

Sveifla 

  • Sveifla hægar og lengra aftur
  • leiða með vinstra handarbaki 

 

Pútt 

Staða 

  • muna að halda gripinu meira til vinstri en ég held ég þurfi (treysta því sem Úlli segir)
  • vinstri öxl fram til að skvera axlir við stefnu 

Stroka 

  • Sveifla hægar og lengra aftur
  • sveifla bara með öxlunum 
  • klára stroku og ekki líta upp of fljótt 

 

Þetta er svona það sem ég er að pæla í í augnablikinu.


Golf pælingar

Hraunkots æfingu var frestað sökum þess að allir boltarnir voru búnir. Það var búið að slá þeim öllum. Það voru því 50 þúsund boltar að sögn, undir snjónum sem þekur æfingarsvæðið og ekki hægt að týna þá upp.

Engin furða að íslenskir kylfingar séu ekki að gera gott mót svona almennt séð á erlendri grundu. Ekki hægt að æfa því kúlurnar eru fastar undir snjó!!!

Ég fór því bara í kórinn í kópavogi og spjallaði við Derrick þar. Við kíktum á sveifluna og þetta lítur bara vel út. Enn soldið laid off í hæstu stöðu aftursveiflu og hægri fótur of fljótur að stíga upp í niðursveiflu.

Að hægri fótur stígi upp er tengt því að rassinn í niðursveiflunni ýtist aðeins fram og því minna rými fyrir kylfuna að fara framhjá líkamanum.

Derrick var með ráð við því. Hann smellti stólbaki upp við rassinn í upphafsstöðu og sagði mér að ýta stólbakinu pínu í niðursveiflu.

Eins og við manninn mælt þá ekki nóg með að fóturinn haldist niðri og skapar betra rými fyrir kylfuna, heldur er ég ekki lengur laid off í topp stöðu aftur sveiflu!

Er þessi maður ske-nillingur eða hvað.

Fór svo og tók smá skurk í stutta spilinu. Gengur bara vel þar. Vann Simma m.a. í ,,harki" sem er náttúrulega vendipunktur í mínu lífi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband