Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

no ice ice baby

Nú er komið að því. Heimurinn verður aldrei samur.

Ég gerðist meðlimur í hóp á FB sem heitir ,,I asked for a drink, not a shitload of ice"

Êg bið alltaf um alla drykki án klaka. Enda gæti ég bara skrúfað frá krananum sjálfur ef ég vildi vatn í glas.

Þoli ekki þetta klaka dæmi. Sérstaklega ekki í útlöndum. Það er viðbjóður.

Oftast gleymir þjónninn því og setur klaka anyways. Þá verð ég ekki kátur skáti.


8 tímar er plentí

Svo fór um sjóferð þá. Þessi kenning mín um 11 klst svefn hjá Sebas sundraðist sem gler í hálku í nótt. Hann var erfiður að sofna og gaf sig loks bara kl 22 eftir eins og hálfs tíma baráttu.

Vaknaði svo kvartandi kl 06 í morgun og lýsti því yfir að nú væri komin dagur. Ég náði að tala hann af því og um kl 7 sofnaði hann aftur. Svo hringdi vekjaraklukkan klukkan 8 og merkilegt nokk, þá var hann bara semí hress.


Fantasí

Ég verð að segja að ég er ekki að hata það að vera kominn í fyrsta sæti í fantasí deildinni. Loksins náði ég að velta þessum tveim risum í fantasí heiminum af sessi. Títtnefndum Póska og hinum umtalaða Birgi.

Núna er bara að hamsa næstu umferð og fá smá forskot. Er með 7 leikmenn sem taka tvöfalda umferð næst. Ætti að duga í gott skor.


Subb

Mikið er ég hræddur um að Sebastian hafi gleypt hálfa sundlaugina í dag þar sem hann sprikklaði um sem utanborðsmótor.

Hann meig þrisvar á sig í buxurnar eftir þetta og við erum að tala um sirka 5 önnur skipti sem hann actually meig í klóstið. Og það mikið. Þvílíkt magn af vatni sem hann inheilaði. Og þá vill ég ekki hugsa um magnið af viðbjóði sem kom með í bónus. Allt horið og þessi almenna skán sem er í sundlaugum. Nice.

Vanalega pissar hann bara í klóstið öllu jöfnu og kúkar núna líka. Allt orðið normalt. Þannig að þetta var abnormal mikið af vökva.


Pelamó

Note to self: Alltaf þegar litlir kroppar koma upp úr kaldri sundlaug þá hlýnar þeim fljótlega eftir að komið er í fötin. Þá slaknar á öllum vöðvum.

Sebas pissaði því soldið á sig þegar hann var að bíða eftir að ég klæddi mig í mín föt.

Svo heppilega vildi til að ég var með auka sett fyrir hann.

Við skiptum því bara um og fórum í aktu taktu og fengum okkur pullu og kókómjólk.

Note to self: Sjá note 1.

Hann þurfti svo aftur að pissa í bílnum þegar við vorum nýbúnir að borða pulsurnar. Ég rauk þá bara út, tók punginn úr stólnum og vippaði ,,king dingaling" út þar sem við vorum staddir og Sebas meig í sirka mínútu. Ekkert smá mikið magn. Hvernig stendur á því, veit ég ekki. En að sjálfsögðu fór smá aftur í buxurnar og við því beinustu leið heim.

Eftir þetta ævintýri var minn ekki lengi að grjótsofna.

Við ætlum að salta allt tal um strætóferð niðrá hlemm á eftir. Komið nóg af ævintýrum þessa helgina.


Sundferðin

Við feðgarnir fórum í sund kl 11:30

Fórum í laugardalinn. Þar er fínt að vera. Fullt af dóti í lauginni fyrir Sebas. Það var bara svo fáránlega kalt að við erum núna í afþýðingu. Er rétt farinn að finna fyrir eistunum á mér aftur.

Það sem þetta er mikil gróðrarstía fyrir hor. Ég sá það bara á mínum að hann byrjaði skyndilega að framleiða hor í kassavís. Hefði getað farið í útrás ef árið hefði verið 2007. Bottle it and sell it.

Ég fór í stóru rennibrautina við mikin fögnuð Sebas, sem beið niðri í pössun Sigga, kærasta Sigrúnar systur. Hitti hann og Úlf í lauginni.

Svo sendi ég Sebas upp á bakkan til að fara í litlu rennibrautina. Hann var mjög spenntur fyrir þessu. Hann þaut upp á bakkan en svo sá ég skyndilega að hann hægði verulega á sér eftir tvö skref og stoppaði loks eftir um 10 skref. Leit til baka með skeifu og orðinn blár í framan af kulda. Hann gat varla labbað til baka sökum kulda, hann kjögraði eins og mörgæs. Seig niður í fangið á mér og ofan í heita laugina og ældi.

Ekkert smá sjokk fyrir þennan litla búk.

Sem sagt...hor og æla. Gaman að vera í sundi með okkur! Þetta var reyndar lítil æla og engin tók eftir þessu(sem gerir þetta allt í lagi :)

Svo þegar það var búið þá bara hélt hann áfram að sprikla sem óður væri. Fáránlega skemmtilegt hjá okkur. Fyrir utan þegar kork-krókódíllinn kom fljótandi í átt að okkur, þá varð minn hræddur. Við ýttum honum bara í sameiningu í burtu og tókum gleði okkar á ný.

Hann var ekki sáttur við að fara upp úr. Er strax byrjaður að plana næstu sundferð.


Hexia

Sebas vaknaði kl 8 í morgun. Ég er búinn að komast að því að pungurinn sefur bara í 11 klst sama á hvað dynur. Er að pæla að setja hann næst í bólið kl 23.

Við dunduðum okkur hér í tvo tíma og gömlu hjúin enn sofandi. Ég hlunkaðist svo aftur í rúmið kl 10 til að hvíla augun pínku og tók klassíska trixið á sebas.

,,Sebastian! farðu til afa og segðu honum að það sé kominn dagur, fljótur!"

Ég heyrði skilaboðin 10 sekúndum síðar öskruð af öllu afli (í eyrað á pabba frétti ég síðar).

Sebas kom svo aftur til mín skömmu síðar með skilaboð frá pabba. Þannig að ég sendi hann aftur tilbaka með enn önnur skilaboð.

Þannig gékk þetta í nokkra stund. Ég náði að kaupa mér heilar 30 mínútur uppí rúmi með smá trixum hér og þar. Láta hann finna brúna bílinn, hvísla einhverju að afa, segja eitthvað við pjakk og svo fram eftir götunum.


Orðaleikur

Það er fyndin orðaleikur að poppa upp á FB. Er ávallt sökker fyrir þannig húmor.

"Don't Kanye me or I will Chris Brown you and Tiger Woods your Mother."

Svo er náttla þessi klassíski:

YouTube MySpace & I'll Google Your Yahoo!

Man nú ekki eftir fleirum í bili. Anyone?


Ný könnun

Ný könnun er rétt uppbyggð samkvæmt vísindalega uppbyggðum og stöðluðum gagnagrunns skoðanakönnunum Gallup.

Svo ekkert væl!


Typpi

Sebas er að nema þá fræði að kúka í klóstið og pissa og öllu sem því fylgir. Þannig er eðlilega talað aðeins meira um rassa og typpi. Allt mjög eðlilegt og góð framvinda í málinu finnst mér.

Það breytir því samt ekki að það er ekkert vandræðalegra en að standa í sturtu með honum í karlaklefanum ásamt u.þ.b. sex öðrum mönnum með sín börn og Sebas bendandi á typpið á mér og segjandi hátt og snjallt:

"papá með stórt typpi! Sebastian með lítið"

Takk fyrir það PUNGUR!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband