Leita í fréttum mbl.is

LET Úrtökumót

Ég þekki þrjár stelpur sem eru núna að keppa í úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna á La Manga á Spáni.

Jess Wilcox er mjög ung stelpa sem spilaði oft með okkur Gabriel á La Cala. Hún hefur svo sannarlega bætt sig þvílíkt mikið á þessum stutta tíma sem liðin er frá því að ég var úti. Eftir tvo hringi er hún einu höggi frá því að komast á mótaröðina! Sem er mindblowing miðað við að þrátt fyrir að hún væri góð þegar við spiluðum við hana, þá var hún miles away frá getu okkar Gabriels.

Frábært hjá henni miðað við hvað hún er ung.

Svo er þarna hún Monica frá Danmörku sem æfir mikið þarna niður frá. Ég æfði soldið með henni uppí Leadbetter Academíunni og útí Mijas golf. Hún er mjög góður kylfingur og er nýbúin að tjá sig um það á Facebook að hún fór hring uppá -10 þar sem hún fékk 10 fugla og 8 pör.

Henni gengur ekki vel. Hún lék fyrsta hringin á +10 og er rétt innan köttsins. Seinni hringurinn hennar á eftir að koma inn.

Heimasíða Monicu http://monicachristiansen.com/

Svo er það Mari Suursalu sú Eistneska. Hún er besti kylfingur Eista og spilaði með mér á Fischer Open. Svo var hún stundum á Mijas golf að æfa þegar ég var þarna. Hún er gjörsamlega að gera í brók. Hún á klárlega að vera mun betri en hinar stelpurnar tvær. Er mjög reynd og slíkt. Hún er á +12 eftir tvo hringi og er utan köttsins.

Heimasíða Mari http://www.marisuursalu.com/pages/et/avaleht.php

Gaman að sjá að fólk sem maður þekkir sé að reyna við drauminn.

ps. spurning um að fá sér svona kúl heimasíður, oh..wait...sir.blog.is!!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband