15.12.2009 | 11:17
Taylor Made R9
Ég var staddur í Húsgagnahöllinni og ákvað því að heimsækja Hlyn, góðvin minn og félaga. Hann vinnur í Erninum golf.
Þar sem ég var kominn þangað þá spurðist ég fregna af ásnum mínum. Mínum heittelskaða R7 ltd sem ég saknaði svo mikið. Hann átti að vera rétt ókominn frá útt landinu.
Hann fór bakvið, eitthvað að athuga hvernig staðan væri á því máli. Kemur svo sposkur út með glænýjan ás, í pakkningunni, óverðmerktur og allt. Sjóðandi, rjúkandi heitur ás.
Í þokkabót var þetta R9, nýja kynslóðin af TM ásunum.
Ég nálgaðist Hlyn og þennan pakka, svífandi í einhverju móki. Svipað og senan í waynes world þegar hann sá stratocasterinn.
Svo réttir hann mér ásinn.
Ég rétti út faðminn og tek við gripnum.
A new ERA has begun.
Hann tjáir mér að þeir hafi sent þennan frá útlöndum því R7 væri ekki lengur í gangi.
Þetta er bittersweet því ég sakna nú enn fallega R7 ltd en ég er þokkalega sáttur við að fá R9 í staðin. Það eina er skaftið, í R7 var Matrix 5.5 xCon 60s eða 65s(man það ekki) en í R9 er Fujikura Motore 65s.
Annað skaft, held nú samt að það verði ekkert mál. Ég er ekkert öðruvísi en leikmaðurinn, nokkuð basic bara. Nú, ég get þá bara fokkin stillt hausinn og skaftið á milljón mismunandi vegu til að leiðrétta það.
Þakkir fá Rabbi og Hlynur í Erninum fyrir góða þjónustu. Og bannað að væla ef ég rústa ykkur næsta sumar sökum yfirburðar nákvæmni í teighöggum.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.