9.12.2009 | 14:07
Völvan ÉG
Lagið hér að neðan eftir Billy Corgan er það fyrsta í röðinni af 44 yfir næstu tvö ár. Hann ætlar að gefa út lag á sirka 2-4 vikna fresti, fríkeypis á síðunni sinni og í lokin selja þetta svo í einhverjum pakka díl uppá söfnunargildið. Sá pakki á að heita Teargarden by Kaleidyscope. Töff.
Hvað hef ég verið að tala um síðastliðin 5 ár? hmmmm?
Kannski bara nákvæmlega þetta!
Ég hef verið að advókeita fyrir nákvæmlega þessari aðferð. Þetta er pæling sem Lennon var í. Að byrja bara að gefa út lag á viku fresti eða svo (2-4 vikur kannski skynsamlegra) og halda sig við það. Nokkurs konar industrial aðferð þar sem listamaðurinn er bara að gera konstant list.
Ekki ósvipað málurum. Þeir juggla ekki 12-15 málverk, dunda sér í þeim í 2-3 ár samtímis og klára þau svo á sama tíma og gefa út eins og um geisladisk væri að ræða. Meira kannski 1-3 í einu og klára hvert og eitt fyrir sig.
John Frusciante var með svipaða industrial hugmynd á sínum tíma. Hann gaf út 5-10 lög á nokkra mánaða fresti. Ekki eins en svipað, þar sem hann vildi koma stöffi konstant út til leikmannsins.
Plata,skífa,diskur og slíkt er bara úrelt fyrirbæri. Núna hlustum við bara á þetta lag frá lagi. Maður gerir playlista, mixdiska eða whatever. Safnar saman góðum lögum með mismunandi flytjendum, þrýstir á play með malibu leche í einni og flatböku í hinni.
ps. lagið a song for a son er samið um soninn sem hann eignaðist aldrei. Enda er hann barnlaus. Líka um samband hans við föður sinn, sem var ekkert spes.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 153613
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.