Leita í fréttum mbl.is

Bæjarferð II

Í neðangreindri bæjarferð gékk mikið á og margar sögur fæddust sem við skemmtum okkur enn við að segja á góðri stundu. Flest svona had to be there móment reyndar.

Við Pétur tókum m.a. vitlausan stætó lokadaginn og fórum eitthvert útá granda á endastöð. Áttuðum okkur á þessu eftir nokkra setu í tómum vagninum, rukum út og hlupum alla leiðina til ömmu Péturs. Hún var að fara yfir um bíðandi eftir okkur spígsporandi á útidyratröppunum því við vorum orðnir ALLT of seinir í rútuna. Það skal áréttað að á þessum tímum var ekkert til sem hét gemsi. Og engin leið til að láta vita.
Rétt náðum rútunni norður. Ævintýri fyrir unga menn.

Þess má geta að Pétur hljóp sem brjálæðingur en ég meira svona joggaði. Ég vildi meira ævintýri og sleppa við skólann næsta dag. Ég reyndi að tefja, en allt kom fyrir ekki.

Við fórum líka í bíó eins og er nánast skylda þegar maður kom suður, í þau fáu skipti sem maður komst í menninguna. Sáum Waynes world í fyrsta sinn. Sem er ekki frásögu færandi nema hvað að Bjössi Alberts var með okkur í för. Sá maður er með mest smitandi hlátur sunnan norðurpólsins. Mjög gaman.

Við sátum eitt sinn inn í golfskálanum ásamt fleirum gæjum (sem við vorum skíthræddir við því þeir voru að sunnan). Þar var Þorkell eitthvað sem var eitt mesta efni íslands á þeim tíma að mig minnir. Man ekki alveg eftir þessu en hann var með 5 eða eitthvað álíka þegar hann var 14 ára (leiðrétti mig sá er man þetta betur).

Aðalmálið á þessu aldurskeiði var náttúrulega að monta sig og slíkt. Þessi Þorkell var að segja hetjusögur sem leiddi mig til að spurja hann hvaða forgjöf hann væri með. Hann sagðist vera með 5 (eða eitthvað álíka), sem var fáránlega gott miðað við aldur. Þá segi ég, ,,nú, bara lélegur!".

Þetta var bara algeng írónía eins og gengur og gerist. Létt spaug að norðan. Ég veit ekki hvort fólkið hérna fyrir sunnan hafði ekki sama húmor og við eða hvað það var en það varð aldrei neitt meira úr þessum efnilegasta kylfingi Íslands eftir þetta komment.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 153391

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband