10.8.2009 | 12:22
Íslandsmeistari!!!!!
Ég sný heim sem Íslandsmeistari frá Akureyri.
Þetta var ferð ferðanna. Þvílík skemmtun og læti. Frá upphafi til enda.
Við gistum á Glerá 2 sem er á leiðinni uppí hlíðarfjall. Ég var með Alfreð í herbergi í meistaraherberginu, þar sem við báðir erum núverandi meistarar, hann í GKG og ég í La Cala.
Við horfðum á Hangover fyrsta kvöldið, sem átti eftir að reynast mikilvægur partur í þessari uppskrift af velgengni.
Hún er svo fyndin og það eru svo margir frasar í henni sem við vorum að kvóta alla helgina okkur til mikillar kátínu. Þetta skapaði góðan móral í hópnum og samheldni sem hjálpaði til við að vinna þennan titil að mínu mati.
Það voru leiknar tvær rimmur á dag. Tveir klúbbar á dag sem sagt. Í hverri rimmu voru fimm leikir, einn fjórmenningur og fjórir singles.
Við unnum allar fokkin rimmurnar. Alla klúbbana. GR í úrslitum, GK, Gkj, Gs og Ga.
Við erum KLÁRLEGA besti hópur kylfinga á landinu þetta árið. Höfum unnið þetta núna þrisvar sinnum á sex árum.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ættarlaukurinn í blóma:)
SiggaSiss (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 18:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.