Leita í fréttum mbl.is

Fingæ

Tók nettan æfingardag í dag. Frá 9-15 án matarpásu. Át svo tvær tuna&mayo (extra mayo) í bílnum á leiðinni heim. Gerði svo hið sívinsæla ávaxtakurl með dashi af jógúrtu í eftirrétt þegar heim var komið.

Við erum loco í þetta. Skera niður banana, epli, peru, appelsínur. Skella þessu í morgunmatardiskinn, skvetta jógúrti yfir og ef það er kvöld og planið er að liggja yfir skemmtilegri stórmynd þá er um að gera að tríta sig og fylla draslið af rjóma uppí topp. Hell friggin jeeeee.

Það er svo góð tíðin hérna að keppinn er orðinn heltanaður bæði í framan og á handleggjum. Nú bíður maður bara eftir því að hægt verði að fara í stuttarann og tana fæturnar líka.

Golfið er salla ágætt um þessar mundir. Nokkuð solid bara. Myndi jafnvel segja að ég væri solid as a rock.

Framundan er ekki mikið skal ég segja ykkur. Bara eitt mót á sunnudaginn þar sem kallinn hann Miguel Ángel Jimenez verður viðstaddur og mun kenna okkur hitt og þetta. Svo veitir hann verðlaunin og slíkt. Veit ekki meir. Kostar skildinginn sinn (75€) en maður fær 18 holu hring, mat eftir á, veitingar á vellinum (bjór og slíkt), og svo teiggjafir sem verða m.a. mp3 spilari, húfur, bolir og eitthvað drasl. Þetta segir allavega sagan. Mér er svo sem slétt sama, vill bara sjá kallinn og reyna lækka forgjöfina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband