27.10.2008 | 16:37
Drinks are on meeeeee
Komst að því í dag að ef þú ferð holu í höggi þarftu að bjóða öllum uppá drykk í klúbbnum. Í dag var ég í 100 manna móti og það hefði verið dágóður skildingur. Allavega nóg til að setja íslending á hausinn á þessum síðustu og verstu.
Mér finnst þetta náttúrulega til háborinnar skammar að sá sem slær þetta draumahögg lífs síns skuli vera refsað með því að eyða fúlgu í að bjóða öðrum uppá drykk. Algjört crap.
Ég tjáði mig líka um það í hollinu þar sem ég sagði óvart, við gamalt og virðulegt breskt fólk, "fuck that". Var samt snöggur á mér þegar ég sá svipinn á andlitum þeirra og sagði "pardon my french". Þau hlógu reyndar smá histerískum hlátri svona til að sýna hve þau voru hip og kúl en þau voru of bresk til að púlla það off.
Þetta er náttúrulega ekki lógískt. Fólk á að bjóða MÉR uppá drykk og klúbburinn ætti að bjóða uppá sjampó og læti. Maður fær bara einhvern smá platta sem segir well done eða eitthvað svoleiðis crap.
Ekki að ræða það að ég myndi borga. Ég myndi bara segja, já já, drinks are on me og stiffa svo reikningnum í rassvasa starfsmanns La Cala.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.