4.2.2008 | 17:44
Friður
Í nótt gaf Sebastian okkur frí. Hann sofnaði kl 21:30 og vaknaði 6:30. Fyrsta nóttin í laaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaangan tíma sem við sofum rólega alla nóttina.
María og Seba skutluðu mér uppá völl kl 9 þar sem ég æfði sand/vipp/pútt til 13. Át svo samlokur a lá Maria og spilaði 18 á Evrópu. Það gékk upp og ofan, aðalega upp.
Eitt er ég þó ánægður með, sandinn/vippin og púttin.
Á meðan fór María til tengdó í Málaga í búðarráp með mömmu sinni.
Þar sem í dag er bolludagur grunar mig að hún hafi keypt einhversskonar bollu fyrir mig. Allavegana mátti ég ekki kíkja í einn pokann og núna má ég ekki kíkja í ískápinn. Spennandi.
Á miðvikudaginn leikur Spánn við Frakkland í fótbolta hér í Málaga. Það er uppselt. Ég mun horfa á leikinn í sjónvarpinu.
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.2.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ferð varlega í bollurnar, þú veist hvar þær festast við
Kannski of seint að segja það núna, sennilega búinn að gúffa í þig nokkrum. Ertu orðin svona tanaður, ertu að verða einhver hnakki .
Kári Tryggvason, 5.2.2008 kl. 12:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.