11.2.2012 | 00:49
TAPAS á Íslandi......ALDREI
Beta fór á Tapashúsið með vinnunni.
Mér blæðir við þá tilhugsun að borga fyrir Tapas!
Það er bara ekki rétt.
Orginal spánverjar, eins og ég, sem actually vita eitthvað um tapas, myndu aldrei borga fyrir tapas
Þegar ég bjó úti þá kynntist ég því hvað tapas er
Það tíðkast úti að stór-fjölskylduhjörðin (kannski um 10-20 manns) fari á röltið um kvöldið og setjist á einhvern bar/mini veitingastað.
Þá eru pantaðir drykkir handa öllum. Case closed.
Út koma drykkir og með því tapas.
Hvernig tapas kemur fer eftir barnum.
En einungis skulu drykkirnir borgaðir.
Svo er þessu sporðrennt og rölt á næsta bar
Þetta er Tapas, gott fólk
Ekki séns að maður fari að borga 2500 kjéll fyrir einhverja smárétti á einhverjum rándýrum veitingastað hér á Íslandi. Frekar myndi ég bara panta almennilegan mat
Tapas var upprunalega eitthvað sem fylgdi drykk í gamla daga. Oftas brauðbiti, og var þetta gert í þeim tilgangi að láta yfir drykkinn til að verja hann fyrir flugum. Þess vegna heitir hann ,,tapas".
Sögnin ,,tapar" þýðir ,,að hylja" eða ,,to cover".
Jú, jú svo komust veitingastaðirnir upp á lagið og byrjuðu að rukka fyrir þetta. Og núna er hægt að finna fullt af tapas veitingastöðum á Spáni. En ef þú ert einhverntíman staddur nálægt Granada á suður Spáni, farðu þá t.d. til smábæjarins Guadíx sem er þar rétt hjá, og taktu tapas upplifunina alla leið!
Mæli með því
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég skil ekki rökin.
Er það... Til hvers að panta vel matreiddan mat úr góðu hráefni þegar það er sumstaðar hægt að fá ókeypis brauð með drykkjum sem þá væntanlega hafa grunsamlega álagningu? Svona sjóaður kaupmaður eins og þú veist að það er ekkert ókeypis í þessum heimi.
Eða ertu að kvarta yfir því hvernig skilningur orðsins hefur breyst í gegnum tíðina og orðið notað til þess að auka spænsk áhrif og aðgreina sig í samkeppni?
David Hauksson (IP-tala skráð) 11.2.2012 kl. 08:10
Þríþætt
Í fyrsta lagi (og mikilvægasti punkturinn) þá meina ég að ég myndi aldrei borga morðfé fyrir smárétti þegar hugmyndafræðin um tapas, hvað það stendur fyrir og hvernig það er þar sem ég bjó, er að hafa þetta ókeypis.
Í öðru lagi þá er þetta líka til fróðleiks því einhver í vinnunni hennar Betu vissi ekkert um Tapas og hélt röngu fram og greyið Beta stóð á gati.
Svo er þetta ekkert bara brauð. Það byrjaði þannig. Núna er þetta mjög fjölbreytt, kjötbitar, brauð, og fullt af stöffi sem ég kann ekki að nefna.
Í þriðja lagi þá já. Mér finnst þetta hér á Íslandi eiga ekkert skilið við það sem Tapas er á Spáni. Nafninu Tapas er skellt á einhvern fansí veitingastað og fólk flykkist þangað og heldur að þetta sé eitthvað thing.
Jú, alltaf gaman að fá nýja veitingastaði, bara ekki opna pitsastað, halda því fram að þú sért ekta ítalskur pitsastaður og sörvera ferkantaðar pitsur með marensbotni og súkkulaði ofan á.
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 11.2.2012 kl. 09:56
Svona eru tapas staðir út um allan heim. Þetta er bara sama og þegar við förum í mexíkósku deildina í hagkaup og höldum að við séum kúltiveruð en erum bara að borða einhverja bandaríska afbökun á sannleikanum. Hveititortillur og sósusósur!
davíð (IP-tala skráð) 11.2.2012 kl. 11:15
Jú, mikið rétt
Gaman að segja líka frá því að Beta biður alltaf gaurana á KFC að taka salsasósuna af borgaranum. Mér finnst það alltaf jafn skrítið því ég er vanur því að salsa þýði sósa. Sósusósuna
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 11.2.2012 kl. 11:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.