2.2.2012 | 16:54
Old skúl matar preff from Sebs
Ég og Sebas vorum sendir til að kaupa í matinn í gærkvöld. Við fórum í Bónus og týndum í körfuna einhvern samtýning héðan og þaðan.
Svo fórum við inn í kæliskápinn þar sem kjötið er.
,,kaupum bjúgu!" segir Sebas í upphrópunarstíl
Eins og hugmyndinni hafði lostið skyndilega niður í kollinn hans
Þetta var svo dramatískt að ég samþykkti það, þó mér þyki bjúgu nú ekkert góð
,,farðu og náðu í bjúgu drengur!"
Hann kom tilbaka með danska lifrakæfu
Ég fór þá með honum að bjúgunum og hann valdi flottasta pakkann
Hrossabjúgu!
Ok, ég veit ekkert um bjúgu en þetta hljómaði revolting
Fokk it
Beta getur pottþétt gert eitthvað sæmilegt úr þessu
Keyptum ekki einu sinni meðlæti eða neitt
Beta var bara
DAFUQ!!!
HROSSABJÚGU!!!!
Þetta endaði á því að Sebas borðaði mest af öllum og við pikkuðum í þetta. Ég faldi góðan hluta af þessum viðbjóði undir kartöflumúsinni svo Sebas héldi að ég hefði borðað þetta.
Hann bara sáttur og stútaði þessu á nó tæm!
Þetta var ekki gott, vægast sagt.
En Sebas svalur á því
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.2.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.